24 stundir - 26.02.2008, Blaðsíða 25
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2008 25
Eftir Maríu Ólafsdóttur
maria@24stundir.is
Aukefni geta bæði verið gerviefni
(nýmynduð á rannsóknarstofu)
eða náttúruleg. Þau eru notuð til
að hafa áhrif á ýmsa eiginleika
matvæla, svo sem lit, lykt, bragð,
útlit geymsluþol og fleira. Dæmi
um náttúruleg aukefni eru C- og
E-vítamín sem notuð eru sem
þráavarnarefni í matvæli og hafa
þá E-númer; C-vítamín (askor-
bínsýra) og sölt þess bera númerin
E300-302 og E-vítamín (tókófe-
rólar) hafa númerin E306-309.
Meira af náttúrulegum efnum
„E-efni eru sett í mat meðal
annars til að auka geymsluþol
hans og eru yfirleitt sett í til að
vernda neytandann og á þann hátt
er betra að hafa þau en ekki,“ seg-
ir Dr. Inga Þórsdóttir, prófessor í
næringarfræði, aðspurð um ágæti
e-efna. Þau séu ekki holl sem slík
líkt og steinefni og vítamín en góð
að þessu leyti. Hins vegar séu í
notkun í dag nokkur aukefni (E-
efni) þar sem upplýsingar skortir
um heilsufarsleg áhrif, en nefnd á
vegum matvælaöryggisstofnunar
Evrópu (EFSA) vinnur nú að því
að kortleggja upplýsingar um auk-
efni í matvælum. „Reglugerðir um
notkun aukefna í matvælum eru í
stöðugri endurskoðun og þegar ný
vísindaleg gögn um skaðsemi eða
öryggi aukefna í matvælum koma
fram er gripið til viðeigandi að-
gerða. Til dæmis er nú nefnd að
störfum hjá EFSA sem metur nið-
urstöður nýlegrar breskrar rann-
sóknar um tengsl milli neyslu á
tilbúnum litarefnum og hegðunar
barna. Framleiðendur leitast í dag
við að takmarka notkun á auk-
efnum, ekki síst vegna kröfu neyt-
enda um náttúrulegan uppruna
matvara.
Óþol líkt og ofnæmi
Óþol gegn aukefnum er vanda-
mál sem hrjáir jafnt unga sem
aldna, en þó er það aðeins lítill
hluti fólks sem verður fyrir slíkum
áhrifum. Einkenni af óþoli eru oft
þau sömu og einkenni af ofnæmi,
en þegar um óþol er að ræða er
ekki hægt að mæla breytingar á
ónæmiskerfi líkamans eða svörun
á sama hátt og þegar ofnæmi er
annars vegar. Þar sem E-efnin eða
aukefnin eru fjölbreytilegur flokk-
ur efnasambanda er alls ekki lík-
legt að sami einstaklingur hafi
óþol fyrir þeim öllum og reyndar
slíkt harla ólíklegt. Inga segir slíkt
hið sama gilda fyrir fólk með óþol
og ofnæmi, það beri að forðast
þau matvæli sem innihaldi óþols-
eða ofnæmisvaldinn.
Víða Aukefni finnast í
ýmis konar matvælum.
Reglugerðir í stöðugri endurskoðun
Aukefni í
matvælum
E-efni eða aukefni eru
fjölbreytilegur hópur
efna sem eru notuð við
framleiðslu matvæla.
➤ Nú til dags er meira notað afnáttúrulegum aukefnum í
matvælum og sum efni hafa
verið bönnuð.
➤ Jafnt ungir sem aldnir getafengið óþol við aukefnum en
stundum er slíkt tímabundið.
AUKEFNI
GÖN
GUG
REIN
INGA
R
INNL
EGGJ
ASM
ÍÐI
SÉRSMÍÐAÐIR SKÓR
SKÓBREYTINGAR
ALMENNAR
SKÓVIÐGERÐIR
STOÐTÆKNI
Jón Gestur Ármannsson
Sjúkraskósmiður
Lækjargata 34A - Hafnarfjörður
533 1314 - 533 1516
jon@stodtaekni.is - www.stodtaekni.is
Fjölþjálfi Infiniti ST950
Glæsilegur hljóðlátur fjölþjálfi frá Infiniti.
Segulviðnám.
Stór LCD skjár.
19 sjálfvirkar aðgerðir á skjá.
4 púlstengdar aðgerðir.
Sterkur stöðugur rammi.
Á hjólum, auðvelt að færa til.
49.520
verð áður
61.900
WWW.GAP.IS
4
Vökvarnir og safarnir
frá Weleda eru hrein
fæðubót,
án allra aukaefna
Björk räsaft
Vatnslosandi birkisafinn
losar bjúg og léttir á
líkamanum, styður við
náttúrulega úthreinsun
Slän elexir
Orkugefandi þyrniberjasafi
er ríkur af járni og
C-vítamíni, gefur þér
nýjann kraft
Havtorn elexir
Styrkjandi C-vítamínsafi
styrkir mótstöðuafl
líkamans, 100% hreinn
berjasafi
Lífrænt ræktað án aukaefna Apótek, Heilsuverslanir, Barnaverslanir og í Heilsuvörudeildum stórmarkaða. www.weleda.is
Auglýsingasíminn er 510 3744