24 stundir - 26.02.2008, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2008 24stundir
Stoðtækni skósmiðja ehf.
verður tveggja ára í næsta mán-
uði en þar er hægt að fá sér-
smíðaða skó sem og fara í
göngugreiningu. Jón Gestur Ár-
mannsson sjúkraskósmiður seg-
ist fyrst og fremst sérsmíða skó
fyrir fatlaða og þá sem geta ekki
keypt sér skó út úr búð. „Yf-
irleitt þarf fólk sérsmíðaða skó
vegna aflögunar á fótum eða
vegna þess að þörf er á sér-
stökum stuðningi eða fleira í
þeim dúr. Skósmíðin er oft í
samvinnu við Tryggingastofnun
en við erum með samning við
þá. Ég sinni líka skóbreytingum
en það er mikið um upphækkun
á skóm en þá er fólk með annan
fótinn styttri, sem er talsvert al-
gengt,“ segir Jón Gestur sem
hefur unnið við skósmíðar í 20
ár. „Það eru margir sem þurfa á
göngugreiningu að halda áður
en þeir kaupa sér skó enda finna
margir fyrir óþægindum í baki,
hnjám eða öðru. Hér getur það
því fengið ráðleggingar um val á
skóm og kannað hvort það þurfi
á innleggi eða annars konar
stuðningi að halda. Í göngu-
greiningu skoða ég ökklastöð-
una, tek fótstimpil af viðkom-
andi en þannig sé ég
þungadreifinguna á fótinn auk
þess sem viðkomandi gengur á
göngubretti og gangan er tekin
upp. Síðan eru öll gögnin skoð-
uð og þetta er metið út frá því
hvernig viðkomandi beitir fót-
unum við gang.“
Stoðtækni skósmiðja sérsmíðar skó frá grunni
Margir þurfa göngugreiningu
Jón Gestur Ármannsson:
Það eru margir sem þurfa á
göngugreiningu að halda.
KYNNING
Nú um miðjan vetur er kvef og
flensa að ganga úti um allan bæ. Á
meðan slíkt leggst á líkamann er
mjög mikilvægt að drekka sem allra
mest. Það er að segja af vatni og
hreinum ávaxtasafa en betra er að
sleppa gosi og kaffi. Sumum finnst
betra að drekka eitthvað heitt í
flensunni en þá er jurtate á borð við
piparmintute gott eða bara soðið
vatn með hunangi og sítrónu.
Piparmintute
í flensunni
Nálastungur virðast auka lík-
urnar á því að kona verði ófrísk,
sérstaklega ef nálastungum er beitt
rétt áður eða eftir að frjóvgun á sér
stað, ef marka má niðurstöður ný-
legra rannsókna.
Eykur blóðflæði í leginu
Í nálastungum er litlum, þunn-
um nálum stungið í ákveðna staði
eða punkta á líkamanum. Þegar
nálastungum er beitt samhliða
gervifrjóvgunum er það í þeim til-
gangi að auka blóðflæði um legið,
slaka á leghálsi og koma í veg fyrir
neikvæð áhrif streituhormóna sem
geta gert það að verkum að það er
erfiðara fyrir fósturvísinn að ná ból-
festu.
Erica Manheimer, rannsakandi
við háskólann í Maryland, gerði
allsherjargreiningu á rannsóknum
sem gerðar hafa verið á áhrifum
nálastunga á glasafrjóvgun en nið-
urstöðurnar voru nýlega birtar í
The British Medical Journal. Grein-
ingin náði til rannsókna á 1.366
konum í fjórum löndum sem höfðu
gengist undir glasafrjóvgun með
eða án nálastungu. Helstu nið-
urstöðurnar voru þær að líkurnar á
því að kona yrði barnshafandi juk-
ust um 65% væri nálastungum beitt
samhliða meðferðinni.
Manheimer tekur þó fram að
slíkt sé ekki staðfesting á því að
nálastungur auki líkurnar jafnt hjá
öllum konum, sérstaklega í ljósi
þess að niðurstöður rannsókna á
þessu hafa verið mjög mismunandi
í gegnum tíðina. „Það lítur þó út
fyrir að fjöldi kvenna beri vissulega
hag af þessu og því ekki verra að láta
á það reyna,“ segir Dr. James Grifo
við New York háskóla. „Nálastung-
ur skaða að minnsta kosti ekki.“
Auka blóðflæði og draga úr streitu
Nálastungum beitt samhliða glasafrjóvgun
Þungun Nála-
stungur geta auk-
ið líkur á þungun.
Árvakur/Arnaldur
Tíminn er oft óvinur okkar
þegar kemur að líkamsrækt. Þeg-
ar vinnudeginum er lokið og
krakkarnir bíða heima er ekki í
boði fyrir alla að skreppa í rækt-
ina. Flestar líkamsræktarverslanir
bjóða þó, sem betur fer, upp á
ýmiss konar líkamsræktardót fyr-
ir heimilið.
Til dæmis er hægt að kaupa
æfingahjól, mismunandi lóð og
jafnvel lyftingabekk sem tekur
lítið pláss heima fyrir, svo eitt-
hvað sé nefnt. Vissara er að hafa
sterkt gólfefni undir bekknum.
Þeir sem ekki vilja lyfta geta
keypt trampólín eða sippuband
til að brenna og mottu og teygjur
til að nota við styrktaræfingar.
DVD-diskar með hinum ýmsu
æfingum eru gríðarlega vinsælir í
Bretlandi og Bandaríkjunum en
þar hefur nánast hver einasta
smástjarna gefið út DVD. Þeir
bjóða upp á einfalda lausn fyrir
þá sem hafa gaman af líflegum
æfingum en best er að eiga
nokkra diska og nota þá til skipt-
is.
iris@24stundir.is
Líkamsrækt þarf ekki að vera tímafrek
Gott að taka á því í stofunni
Tímafrekt Erfitt get-
ur verið að finna tíma
fyrir ræktina
Árvakur/Árni Sæberg
Össur hf.
Orkuhúsið
Suðurlandsbraut 34
Sími 515 1300
Nánari upplýsingar: www.ossur.is/unloaderone
verkjameðferð án lyfja
Unloader® One spelkan veitir
nýja möguleika við meðferð á
slitgigt í hnjám.
Spelkan:
• Minnkar álag á slitnum liðum
• Minnkar verki
• Eykur hreyfifærni
Össur_Gigtarfélagsins_AD.indd 1 27.11.2007 13:56:46
Sækjum styrk
í íslenskt náttúruafl!
www.sagamedica.is
Aukin orka
og sjaldnar kvef
1100 ára reynsla af notkun
ætihvannar fær› til
nútímans.
Fæst í lyfja- og heilsuvöruverslunum
Vallý s.510 3728
Böddi s.510 3726
ÐI
Ð
AL
B
U
N
NI
VTA atvinna@24stundir.is
PANTIÐ
GOTT
PLÁSS
Í TÍMA