24 stundir - 26.02.2008, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2008 24stundir
Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur
kolbrun@24stundir.is
„Það eru örugglega tíu ár eða
meira síðan ég sýndi jafn margar
stórar myndir. Inn í þessar stóru
myndir rata oft áleitnar hug-
myndir sem ekki er mögulegt að
útfæra í litlar myndir,“ segir
Daði Guðbjörnsson sem sýnir
þrettán myndir sínar í Listasafni
Reykjanesbæjar. „Ég tek mér
góðan tíma til að mála þessar
stóru myndir, hef þær á vinnu-
stofunni og tek þær fram aftur
og aftur. Ég legg mikið í að út-
færa hugmyndirnar og eyði mikl-
um tíma í að ná fram ákveðnum
litum og stemningu. Í þessum
myndum geri ég ýmislegt sem
ekki er hægt að gera í litlum
myndum. Ég er ánægður með
myndirnar á sýningunni og hef
fengið góða gagnrýni fyrir þær.“
Tískan er harður húsbóndi
Ertu ánægður með þá gagnrýni
sem þú hefur fengið á ferlinum?
„Ég hef fengið góða gagnrýni
síðustu árin. Síðasti áratugur síð-
ustu aldar var hins vegar ekki
mjög lífvænlegur fyrir mig í því
tilliti en það er hægt að komast
mjög langt á þrjóskunni. Tískan í
myndlistarheiminum er harður
húsbóndi og ef maður velur þá
leið að fylgja henni ekki út í ystu
æsar getur maður lent í and-
streymi. Mér hefur samt í heild-
ina gengið ágætlega, venjulegt
fólk hefur gaman af myndunum
mínum og kaupir þær og ég
kvarta ekki.“
Andlegt tímabil
Hvað einkennir myndirnar á
þessari sýningu?
„Síðustu árin hef ég verið að
fara í gegnum andlegt tímabil.
Ég hef alltaf haft áhuga á and-
legum málefnum en fann ekki
rétta staðinn fyrr en ég fór að
stunda Sahaja-jóga og það hefur
gjörbreytt lífi mínu, bæði innra
og ytra lífi. Þessi andlega leit
kemur fram í þessum myndum.
Þarna er til dæmis mynd þar sem
ég set gralinn upp í Snæfells-
jökul. Í myndum mínum hef ég
alltaf verið að vinna með ljós.
Það er þetta ljós sem er eins og
rammi utan um sýninguna.“
Daði „Ég er ánægður
með myndirnar á sýn-
ingunni og hef fengið
góða gagnrýni fyrir þær.“
Daði Guðbjörnsson sýnir í Reykjanesbæ
Andleg leit listamanns
➤ Daði er fæddur árið 1954.Hann var við nám í Myndlist-
arskóla Reykjavíkur á ár-
unum 1969-1976 og í Mynd-
lista- og handíðaskóla Íslands
á árunum 1976-1980.
➤ Veturinn 1983-1984 var hannvið Rijksakademi van Beel-
dende Kunsten í Amsterdam.
MAÐURINN„Síðustu árin hef ég verið
að fara í gegnum andlegt
tímabil,“ segir Daði Guð-
björnsson sem sýnir
myndir sínar í Reykja-
nesbæ. Hann segir mynd-
irnar bera vitni um and-
lega leit.
Árvakur/Sverrir
Skáldskapur á ís Þessi
mynd Daða á sýningunni
sýnir gralinn á Snæfellsjökli.
Á þessum degi árið 1942 fékk leikkonan Joan Fon-
taine Óskarsverðlaun fyrir leik sinn í Hitchcock-
myndinni Suspicion. Hún lék þar eiginkonu sem
grunar mann sinn um að ætla að myrða sig. Joan fékk
einnig verðlaun gagnrýnenda í New York fyrir leik
sinn í myndinni. Joan er systir Oliviu de Havilland
sem einnig er óskarsverðlaunahafi. Systurnar voru
gríðarlega vinsælar leikkonur á fjórða og fimmta ára-
tugnum en samkomulagið á milli þeirra var allt frá
barnæsku mjög stirt og þær hættu algjörlega að talast
við árið 1975. Fontaine á Alfred Hitchcock mikið að
þakka en hann valdi hana til að fara með aðal-
hlutverkið í fyrstu myndinni sem hann leikstýrði í
Bandaríkjunum, Rebekku, árið 1940. Myndin hreppti
Óskarsverðlaun sem besta mynd ársins.
Joan giftist fjórum sinnum og skildi jafnoft. Hún
býr í Carmel í Kaliforníu.
Joan fær
Óskarinn
MENNINGARMOLINN
Tveir af tónlistarjöfrum
nítjándu aldarinnar leggja til
verkin á tónleikum Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands næsta
fimmtudag, Franz Liszt og
Anton Bruckner.
Ungur Pólverji, Ewa Kupiec,
glímir við píanókonsert Liszts
númer 2, en hún þykir einn
fremsti píanóleikari Póllands
þótt ung sé að árum. Verkið
sem flutt er eftir Bruckner er
sinfónía nr. 3
Stjórnandi á tónleikunum er
eistneski hljómsveitarstjórinn
Arvo Volmer.
Píanósnillingur
og róman-
tískar öfgar
Egill Sæbjörnsson opnar sýn-
ingu í i8 fimmtudaginn 28.
febrúar.
Egill fæddist árið 1973 og hef-
ur síðastliðin ár verið búsettur
í Berlín. Hann stundaði nám
við Myndlista- og hand-
íðaskóla Íslands og síðar við
Parísarháskóla 8 St. Denis. Eg-
ill blandar saman á óvenju-
legan hátt hljóði, mynd-
böndum, innsetningum og
myndböndum. Á sýningunni í
i8 verður Egill með þrjár slík-
ar innsetningar í myrkvuðu
rými.
Egill í i8
AFMÆLI Í DAG
Christopher Marlowe
leikritahöfundur, 1564
Victor Hugo
rithöfundur, 1802
Jackie Gleason leikari, 1916
Buffalo Bill
veiðimaður, 1846
KOLLAOGKÚLTÚRINN
kolbrun@24stundir.is a
Ég hef komist að því að besta aðferðin
til að gefa börnum sínum ráð er að
komast að því hvað þau vilja og ráðleggja
þeim síðan að gera það. Harry S. Truman
• Íslensk myndlist 1-2
• Svarfdælingar 1-2
• Breiðfirðingur 1-29 ib
• Deildartunguætt 1-2
• Fremrahálsætt 1-2
• Ættir húnvetninga 1-4
• Vestfirskar ættir 1-4
• Bergsætt 1-3
• Ættir síðupresta
• Bækur Þorvaldar
Thoroddsen
• Ferðabók 1-4
• Landfræðisaga 1-4
• Lýsing Íslands 1-4
• Árferði á Íslandi
• Freyr 1-73 árg. ib
• Fritzner ordbog 1-4
• Textabók Megasar
Bækur til sölu
Upplýsingar í síma 898-9475
Seljast
saman}