24 stundir - 26.02.2008, Side 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2008 24stundir
Sýklalyfjanotkun meðal barna
hefur verið mikil á Íslandi und-
anfarin ár og virðist ekkert lát vera
á þrátt fyrir að dregið hafi úr sýkla-
lyfjanotkun í öðrum löndum. Að
sama skapi eru sífellt fleiri börn
með svokallað sýklalyfjaónæmi en
þá duga venjuleg sýklalyf ekki til að
ráða niðurlögum alvarlegra sýk-
inga. Sýnt hefur verið fram á að tíð
notkun á sýklalyfjum gegn eyrna-
bólgum getur framkallað vítahring
sem felst í því að sýklalyfjagjafir
geri börn enn viðkvæmari fyrir að
fá endurteknar eyrnabólgur, sam-
kvæmt Önnu Björgu Hjart-
ardóttur, framkvæmdastjóra Cel-
sus, sem flytur inn heilsu- og
hjúkrunarvörur. „Otovent er lækn-
isfræðileg aðferð sem sam-
anstendur af litlu nefstykki úr
plasti og sérhannaðri blöðru sem
er blásin upp gegnum aðra nösina í
einu. Rannsóknir sýna að Otovent
er árangursrík meðferð til að leið-
rétta undirþrýsting í miðeyra hjá
börnum og fullorðnum og getur
þannig fyrirbyggt og lagað eyrna-
bólgu. Aðferðin er því vel prófuð
meðferð til að forðast rörísetningu
og sýklalyf. Um 70 prósent barna
fá bót við notkun Otovent. Það er
hægt að nota aðferðina bæði sem
fyrirbyggjandi og líka til að grípa
inn í þegar það er kominn und-
irþrýstingur í miðeyrað og vökvi
sem er byrjunareinkenni eyrna-
bólgu. Um leið og undirþrýstingur
er leiðréttur opnast kokhlustin sem
er mikilvægt og ef vökvi er í mið-
eyranu fer vökvinn að renna sína
eðlilegu leið. Þetta er framkvæmt
þannig að haldið er fyrir aðra nös-
ina á meðan barnið blæs í blöðr-
una.
Þegar barnið nær að blása blöðr-
una upp er það einmitt rétti þrýst-
ingurinn sem þarf til að opna og
laga undirþrýstinginn.“
Skref í rétta átt
Anna Björg segir það vera kost
að Otovent aðferðin er einföld og
að börn hafi gaman af að nota
blöðruna. „Eyrnabólgur eru erfitt
vandamál og Otovent er kærkomin
hjálp í þessari baráttu. Þó þetta sé
ekki fullkomin allsherjarlausn þá
er Otovent skref í rétta átt. Nota
skal Otovent þegar börn finna fyrir
þessum undirþrýstingi og getur
verið gott fyrir krónísk eyrnabörn
að nota Otovent reglulega yfir vetr-
armánuðina sem fyrirbyggjandi.“
Árvakur/SverrirBlásið í blöðru til að koma í veg fyrir eyrnabólgu
Fyrsta stigs meðferð
við eyrnabólgu
➤ Otovent er fyrsta stigs með-ferð til að forðast röraísetn-
ingu í hljóðhimnuna og
sýklalyf.
➤ Það eru engar þekktar auka-verkanir af Otovent.
➤ Otovent-blöðrurnar eru úrnáttúrulatex og þrýstings-
prófaðar og fást í apótekum.
OTOVENTMörg íslensk börn fá
eyrnabólgu reglulega og
hingað til hafa sýklalyf
unnið á þeim vanda. Aft-
ur á móti er sýklalyfja-
ónæmi alvarlegt og vax-
andi heilbrigðisvandamál
en það er tengt mikilli
notkun sýklalyfja.
Eyrnabólgur Sýkla-
lyfjaónæmi tengt mikilli
notkun sýklalyfja er al-
varlegt og vaxandi heil-
brigðisvandamál.
Otovent
Skemmtilegt
fyrir börnin.
Í stað þess að troða í þig alls konar
súkkulaði, bæði afgöngum úr
barnaafmælinu og blandi í poka,
getur verið ráð að splæsa frekar á
sig einu góðu stykki af 60 til 70
prósent súkkulaði. Það kostar dá-
lítið meira, sérstaklega ef það er líf-
rænt, en um leið er það bragð-
sterkara og því ekki jafn-auðvelt að
borða mikið í einu. Það ætti því að
endast þér í dálítinn tíma og börn-
in láta það líka í friði.
Dökkt og gott
súkkulaði
Streita hefur verið kölluð nú-
tímasjúkdómur vegna þess hversu
margir í samfélagi nútímans þjást
af streitu og streitutengdum sjúk-
dómum. Einkenni streitu geta ver-
ið ýmiskonar eða allt frá vöðva-
verkjum og hausverkjum til
svefntruflana og lystarleysis. Það
gefur augaleið að mikil streita
minnkar lífsgæðin til muna og því
er mikilvægt að reyna að ná stjórn
á henni.
Fyrsta skrefið er að minnka
streituvaldandi áhrif í umhverfinu.
Ef starfið eða fjölskyldulífið veldur
þér vanlíðan þá ert þú engu bættur
með því að viðhalda núverandi
lífsstíl. Einnig er mikilvægt að átta
sig á því hversu mikið af vand-
anum er frá þér komið. Ef þú þarft
að hafa lokaorðið varðandi alla
hluti og hefur sett þig í hlutverk
reddarans þá ert þú að bjóða upp á
streitu. Dragðu djúpt andann og
gerðu þér grein fyrir því að heim-
urinn mun snúast í réttan hring þó
að þú sért ekki á staðnum. Gættu
þess svo að borða reglulega og sofa
í minnst átta tíma á næturnar.
iris@24stundir.is
Streita er ekki óyfirstíganlegt vandamál
Náðu stjórn á streitunni
Polarolje
Selolía, einstök olía
Gott fyrir:
Maga- og þarma starfsemi
Hjarta og æðar
Ónæmiskerfið
Liðina
Pólarolía góð fyrir líkamann
Í nýlegri doktors rannsókn Linn
Anne Bjelland Brunborg kom í ljós
að selolía, sem var gefin í gegnum
sondu beint niður í skeifugörn,
linar liðverki og dregur úr lið-
bólgum og hefur að auki jákvæð
áhrif á þarmabólgu. Fæða á Vestur-
löndum inniheldur hlutfallslega
mikið magn af omega 6 fitusýrum
í samanburði við omega 3 fitusýrur.
Þetta getur orsakað ójafnvægi í
líkamanum, sem að einhverju leyti
getur útskýrt af hverju margt fólk
þjáist af offitu og ýmsum lífsstíls-
tengdum sjúkdómum eins og
hjarta- og æðasjúkdómum,
sykursýki og krabbameini. Besta
Þarmabólga og liðverkir
Rannsókn Brunborgs á selkjöti
bendir til að það sé bæði holl og
örugg fæða. Selspikið er mjög ríkt
af langkeðju omega fitusýrum sem
hefur áhrif á staðbundin hormón
sem meðal annars eru mikilvæg
fyrir bólguviðbrögð líkamans.
Virkni selolíunnar á bólguviðbrögð
var prófuð í klínískri tilraun á
sjúklingum með liðverkiog IBD.
IBD-sjúklingarhafa oft minnkandi
starfsgetu og lífsgæði vegna
sjúkdómsins og möguleikar á
lækningu eru litlir. Lyf sem draga
úr liðverkjum geta gert þarma-
bólguna verri. Brunborg sýndi
með tilraunum að selolía sem var
gefin í gegnum sondu linar lið-
bólgur og liðverki og hefur að
auki jákvæð áhrif á þarmabólgu.
Að neyta nægilegs sjávarfangs
með omega fitusýru getur haft
fyrirbyggjandi áhrif þegar um
þróun sjúkdóma eins og IBD og
annarra bólgusjúkdóma, hjarta-
og æðasjúkdóma er að ræða.
Selolía fæst í öllum helstu
apótekum og heilsubúðum og
ber nafnið Polarolje.
Linar verki og minnkar bólgur
A U G L Ý S I N G
leiðin til greiða úr þessu ójafnvægi
er að auka neyslu á sjávarfangi
sem almennt er auðugt af lang-
keðju omegafitusýru og samtímis
að minnka neyslu á matvörum
sem eru ríkar af omega fitusýrum.
Polarolían fæst í:
apótekum, Þín verlsun Seljabraut,
heilsuhúsum, Fjarðarkaupum
og Melabúð
Meiri virkni
Hátt hlutfall Omega 3
fitusýrur