24 stundir - 26.02.2008, Page 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2008 24stundir
Heilsuræktarstöðvar World
Class eru núna orðnar sjö hér á
landi með aðstöðu fyrir um 20.000
iðkendur. Nýju heilsuræktarstöðv-
arnar eru allar búnar fullkomnasta
búnaði til heilsuræktar frá Life Fit-
ness og Hammer Strength auk ým-
issa þæginda.
World Class í Hafnarfirði er 700
fm en þar er tækjasalur, búnings-
herbergi með gufubaði, barnahorn
og veitingasala. World Class í Mos-
fellsbæ verður 1.000 fm með tækja-
sal, leikfimisal, barnaleikherbergi
með gæslu auk aðgangs að Lága-
fellslaug og þeirri aðstöðu sem þar
er. World Class á Seltjarnarnesi
verður stærst nýju stöðvanna, mun
rúma um 2.000 manns, en auk
heilsuræktaraðstöðu verða þar þrír
æfingasalir, baðstofa og barnaleik-
herbergi með gæslu. Gestir munu
hafa aðgang að sundlauginni og
aðstöðu hennar. Í byrjun febrúar
opnaði World Class 700 fm heilsu-
ræktarstöð á 15. hæð í nýja turn-
inum í Smáranum þar sem gestir
njóta einstaks útsýnis til allra átta
og hafa aðgang að tækjasal og bún-
ingsherbergjum með gufubaði.
Viðskiptavinir World Class eru
dreifðir um allt höfuðborg-
arsvæðið en með opnun fjögurra
nýrra stöðva færist fyrsta flokks
heilsuræktaraðstaða skrefi nær
heimilum og vinnustöðum. Með
tilkomu nýju stöðvanna verður
þægilegra að stunda reglulega
heilsurækt en viðskiptavinir munu
hafa aðgang að sjö heilsurækt-
arstöðvum og þremur sundlaugum
með fjölbreyttri aðstöðu til að
rækta bæði líkama og sál.
Auk nýju stöðvanna eru stöðvar
World Class einnig í Spönginni í
Grafarvogi, í húsi Orkuveitunnar
við Bæjarháls og í Laugum í Laug-
ardal, stærstu heilsuræktarmiðstöð
landsins.
World Class hefur opnað 4 nýjar heilsuræktarstöðvar
Þægilegra að stunda heilsurækt
World Class Stöðvarnar eru orðnar sjö hér á landi með aðstöðu fyrir 20.000 iðkendur.
KYNNING
Fæturnir tryggja að við komumst
leiðar okkar og því er ekki nema
sjálfsagt að við sinnum þeim vel.
Apótek og heilsubúðir eru með
hillur fullar af alls kyns fótakrem-
um, skrúbbum og tækjum og tól-
um til þess að fótunum líði sem
best. Gott er að fara í heitt fótabað
á kvöldin, skrúbba fæturna með
grófum bursta, klippa neglurnar
og bera feitt krem á eftir. Fæturnir
verða geislandi á eftir.
Fallegir fætur
tryggja vellíðan
Þeir sem vinna kyrrsetuvinnu eiga
oft við alls kyns vöðvavandamál að
stríða. Það er að sjálfsögðu sniðugt
að standa upp nokkrum sinnum
yfir daginn og hreyfa sig. Ef það er
ekki nóg er hægt að kaupa hita-
krem í apótekum sem gera oft heil-
mikið gagn í baráttunni við vöðva-
verkina. Gott er að fá einhvern til
að nudda aumu vöðvana í stutta
stund með kreminu og hálftíma
seinna ættir þú að finna muninn.
Hitakrem slær
á vöðvaverki
Hvítlaukur er jú mjög góður í mat-
argerð en margir segja líka að hann
lækni kvef. Í hvítlauk er virka efnið
Allicin sem hefur andoxunaráhrif
og getur þannig hindrað oxun í
líkamanum og þar með myndun
skaðlegra efna. Einnig er talið að
regluleg neysla fersks hvítlauks geti
veitt vörn gegn hjarta- og æða-
sjúkdómum. Sumum finnst lyktin
jú vond en það ætti engu að skipta
miðað við gæði hans.
Hvítlaukur
hollur og góður
Góð umhirða tannanna skiptir
höfuðmáli eigi tennurnar að hald-
ast heilbrigðar og fallegar. Tann-
burstun að minnsta kosti kvölds og
morgna með flúortannkremi kem-
ur í veg fyrir að óæskilegar bakt-
eríur þrífist í munninum og ætti
einna helst að bursta tennurnar
eftir hverja máltíð. Eins hafa syk-
urlaus tyggigúmmí gefið góða raun
en tyggjóið hefur góð áhrif á tenn-
urnar og jafnar sýrustigið í munn-
inum.
Ekki nóg að tannbursta
Tannþráðurinn er nauðsynlegur
og er ekki nóg að treysta eingöngu
á tannburstann við umhirðu tann-
anna þar sem hann kemst ekki á
sömu staði og tannþráðurinn en
hann viðheldur heilbrigði gómsins.
Eins er ráð að nota bakteríudrep-
andi munnskol sem ver munnholið
og tennurnar gegn óæskilegum
bakteríuvexti og eykur áhrif flúors-
ins sem vörn gegn tannskemmd-
um. Þeir sem vilja vera vissir um að
allt sé með felldu í munnholinu
ættu að heimsækja tannlækninn
tvisvar sinnum á ári og láta hann
hreinsa tennurnar almennilega.
Heimsækið tannlækninn tvisvar á ári
Góð tannheilsa mikilvæg
10-50%
Vaxtalaus lán í 6 mánuði
Verslunin Rúmgott · smiðjuvegi 2 · Kópavogi · sími 544 2121. Opið virka daga frá kl. 10-18 - laugardaga kl. 11-16
www.rumgott.is
Vinsælu
Gel/ethanOl
eldstæðin
KOmin aftuR
BYltinG í sVefnlausnum
eitt Besta úRVal landsins á heilsudýnum
feRminGaR-
tilBOð
Frí legugreining
og fagleg ráðgjöf
á heilsudýnum.