24 stundir - 26.02.2008, Síða 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2008 24stundir
Náman námsmannaþjónusta Landsbankans
410 4000 | landsbanki.is
Árlega veitir Lands
bankinn viðskiptav
inum Námunnar
veglega námsstyrk
i. Nú er komið að þ
ví að velja hæfustu
umsækjendur til N
ámsstyrkja Landsb
ankans í 19. sinn.
Umsóknarfrestur
er til 3. mars 2008
. Allar nánari uppl
ýsingar
og skráningarblöð
er að finna á land
sbanki.is
Styrkirnir skiptast
þannig
3 styrkir til framh
aldsskóla- og iðnn
áms, 150.000 kr. h
ver
3 styrkir til háskól
anáms (BA/BS/BEd
), 300.000 kr. hver
4 styrkir til framh
aldsnáms á háskó
lastigi, 350.000 kr
. hver
3 styrkir til listnám
s, 350.000 kr. hver
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
L
B
I
40
96
2
02
/0
8
Sony hefur kannski ekki tilkynnt
formlega um tilvist tölvuleiksins
Motorstorm 2 en BBC hefur nú
svipt hulunni af þessum vænt-
anlega leik sem mun koma út fyr-
ir árslok. Motorstorm hefur nú
selst í 3 milljónum eintaka um
heim allan og var því aldrei
spurning hvort framhald af leikn-
um kæmi á markaðinn.
Í Motorstorm 2 er kappaksturinn
færður úr eyðimörkinni og að
þessu sinni gerist leikurinn á
gullfallegri eyju þar sem bifreiðar
tæta í sig viðkvæman gróðurinn.
Hinn upprunalegi Motorstorm
var harðlega gagnrýndur fyrir að
bjóða upp á þann möguleika að
tveir leikmenn gætu spilað saman
á sömu tölvunni en úr því verður
bætt í Motorstorm 2 þar sem allt
að fjórir geta spilað í einu. vij
Motorstorm 2 á leiðinni
Hinn vinsæli YouTube vefur var
tekinn í „gíslingu“ á sunnudag, af
yfirvöldum í Pakistan. Í rúma tvo
tíma gátu netverjar ekki farið inn
á vefinn víðsvegar í heiminum,
því starfsmenn Pakistan Telecom
höguðu því þannig til, að hverj-
um, sem heimsótti hina vinsælu
slóð, var beint annað. Var þetta
ritskoðun á dönsku skopmynd-
unum af Múhameð spámanni,
sem voru á vefnum og taldar
móðgun við múslima.
YouTube gísl
Pakistans
Third er eins og nafnið bendir til
þriðja plata sveitarinnar Port-
ishead, og aðdáendur hennar
hafa beðið lengi því síðasta plata
kom árið 1997. Gítarleikarinn
Adrian Utley sagði í viðtali við
Billboard: „Third hljómar ekkert
eins og fyrri plöturnar en er eins
og stór bróðir eða systir þeirra.
Þar er sami hugsunarháttur en
hefur þróast aðeins.“ Hann sagði
nokkur stuðlög vera á plötunni
en Portishead hefur hingað til
verið þekkt fyrir rólegheit. Third
kemur út þann 28. apríl. re
Portishead tjá
sig um „Third“
Þegar hafa skapast miklar um-
ræður um nýkjörið framlag Íslend-
inga til Eurovison í ár á vefnum
Esctoday.com. Vefurinn er sá mest
lesni af þeim sem fjalla um keppn-
ina sem allir hata að elska og að
vanda eru skiptar skoðanir um lag-
ið sem við sendum til leiks.
Notendur vefjarins geta sagt
skoðun sína á lögunum sem taka
þátt í keppninni í Serbíu í maí og
eru fleiri jákvæðir en neikvæðir í
garð þeirra Friðriks Ómars og Reg-
ínu. Sumir ganga svo langt að segja
að This is My Life eigi mjög góða
möguleika á sigri, en öðrum finnst
það fremur litlaust og þreytt.
Hörðustu Eurovision-aðdá-
endur hafa þó sjaldnast rétt fyrir
sér þegar á hólminn er komið,
þannig að lítil ástæða er til þess að
missa svefn yfir skoðunum álfu-
systkina okkar.
EUROVISION-AÐDÁENDUR TJÁ SIG UM THIS IS MY LIFE
lina esc
„Ísland ég elska ykkur!!! Reykjavík
2009!“
Ulrik Raben
„Ísland gæti komist mjög nærri því að
vinna keppnina í ár.“
galantis loukakis
„Frábært! Ísland er eitt af
vanmetnustu löndum Eurovision.
Vona og óska ykkur alls hins besta í
ár. 10 stig af 10 mögulegum.“
Giselle Artois
„Ég sé hreinlega ekkert gott við
þetta lag. Ég er handviss um að það
kemst ekki í úrslitin. Samanborið við
íslenska lagið í fyrra er það hræðilegt.
Ég veit að margir hérna kunna vel að
meta það og kannski höfðar það til
ákveðins hóps, en ég skil það ekki.“
Knut Viking
„Eitt af mínum uppáhalds, en þau
eru ekki orðin mörg. Áfram Ísland!
Á Íslandi er eitthvert indælasta og
vinalegasta fólk sem ég hef hitt.“
Milan S
„Mjög gott. Ekki beint minn tebolli, en
ég vona að það komist í úrslitin.“
Christos Loumas
„Þetta lag og svissneska lagið gefa
mér von um að Eurovision verði
bjargað í ár.“
chi chi larue
„Eurodance-rusl frá tíunda
áratugnum! Hvern halda þau að þau
séu að blekkja?“
lucio
„Það yrði frábært að sjá Ísland sigra
eftir að hafa verið rænt alltof oft, en
ég er hræddur um að Ísland verði
rænt aftur.“
Sandra Åhlander
„Frábært lag Ísland. Ég elska það.“
w s
„Hræðilegt, úrelt eurodance-lag. Mér
líkar ekki við það.“
joy muurahainen
„Frábærar raddir og mjög góð
sviðsframkoma. Ég mun kjósa Ísland
upp úr undankeppninni.“
Nick Wilson
„Frábært lag Ísland. Reykjavík 2009?
Að mínu mati eru Sviss og Ísland með
bestu lögin í ár. En eiga Íslendingar
nógu stóran stað til þess að halda
Eurovision?“
Dieter Dieter
„Fínt lítið lag, en eru Íslendingar
virkilega næstir í röðinni? Mér
finnst það ekki eiga skilið að sigra
keppnina.“
Jacques Dusart
„Virkilega, virkilega, virkilega ekkert
varið í þetta lag. 0 stig!“
Basset Hound
„Fínt lag býst ég við, en ekki beint
minn tebolli. Ég vildi að In My Dreams
ynni eða lagið sem hafnaði í öðru
sæti.“
Dennis K
„Ég er svo ánægður með að þetta
lag hafi verið valið. Það fer beint í
efsta sæti yfir uppáhalds lögin mín
í keppninni í ár og ég efast um að
nokkurt lag muni skáka því. Áfram
Ísland! Reykjavík 2009 takk.“
Frédéric Tonton
„Þetta lag er drasl. Ég hata það af
því að það er ömurlegt. Ísland veldur
miklum vonbrigðum. Meira að segja
lagið í öðru sæti var betra, miklu
betra.“
Pau PV
„Virkilega gott. Ég held að í ár
munum við sjá lönd í úrslitum sem
við erum óvön að sjá, eins og Ísland
og Pólland ... Ísland hefði átt að
komast upp úr undankeppnunum
2005, 2006 og 2007.“
Notendur vefsíðunnar ESCToday
liggja ekki á skoðunum sínum um
framlag Íslands í Eurovision.
Notendur Esctoday.com hafa skiptar skoðanir á Eurovision-framlagi Íslendinga
Rusl eða sigurvegari?
This is My Life fær fín við-
brögð í Eurovision-
samfélaginu. 24 stundir
könnuðu viðbrögð not-
enda Esctoday.com við
laginu og tóku út nokkur
vel valin ummæli.
Söngvarinn knái Prince neyðist
til að gangast undir mjaðmaað-
gerð þótt hann sé einungis 49 ára
gamall. Í aðgerðinni verður kúlu-
liður fjarlægður úr mjöðm hans
og í staðinn komið fyrir gerviliði
úr títani. Prince er alveg eyðilagð-
ur yfir þessum grimmu örlögum
en hann hefur lagt mikið upp úr
mjög líflegri sviðsframkomu og
dansi á tónleikum sínum. Ólík-
legt er að hann nái fyrri fimi og
sveigjanleika eftir aðgerðina en
verkurinn í mjöðminni var þó
farinn að hafa töluverð áhrif á
getu hans til danssýninga. re
Prince í
mjaðmaaðgerð
24LÍFIÐ
24@24stundir.is a
Hörðustu Eurovision-aðdáendur hafa þó
sjaldnast rétt fyrir sér þegar á hólminn er
komið, þannig að lítil ástæða er til þess að missa
svefn yfir skoðunum álfusystkina okkar.
Samkvæmt fregn-
um kvikmynda-
ritsins Variety
hefur Universal
kvikmyndaverið
sannfært að-
standendur Bo-
urne myndanna
um að gera enn
eina mynd um njósnarann ráða-
góða Jason Bourne. Matt Damon
mun hafa samþykkt að fara með
aðalhlutverkið enn eina ferðina
en þetta mun verða fjórða mynd-
in um hinn knáa njósnara. vij
Enn af Bourne