24 stundir - 26.02.2008, Síða 43
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2008 43
Í ljósi þess að Toshiba hefur gefið
HD-DVD staðalinn upp á bátinn
hefur Microsoft nú tilkynnt op-
inberlega að fyrirtækið muni
hætta framleiðslu á HD-DVD
spilaranum fyrir Xbox360 leikja-
tölvuna. Microsoft segir þó að
niðurstaða staðlastríðsins hafi
ekki haft nein slæm áhrif á sölu
Xbox leikjatölvunnar. vij
Microsoft gefst
upp á HD-DVD
Nú hefur fyrrverandi samstarfs-
kona leikkonunnar Angelinu Jol-
ie stigið fram í sviðsljósið og full-
yrðir að hún hafi átt í
ástarsambandi við Jolie meðan
þær unnu báðar að gerð mynd-
arinnar Gone in 60 seconds.
Misty Cooper segir að Jolie elski
að stunda kynlíf með öðrum kon-
um og að þær hafi átt ástarfundi í
hjólhýsi leikkonunnar á tökustað.
Hún segir að Brad Pitt skuli vara
sig, því á endanum muni Jolie
snúa sér aftur að kynsystrum sín-
um. vij
Angelina Jolie
var heit fyrir
samstarfskonu
Vinningshafar síðustu viku
Ekki missa af
Skólahreysti
kl. 20.00
á Skjá einum.
Hver sigrar
í kvöld?
www.ms.is
Hvolsskóli
Aðalstyrktaraðili
Skólahreystis
Hið árlega Evróvisjón-æði hefur gripið landann eftir að ljóst er orðið
hvaða lag keppir fyrir Íslands hönd í Serbíu á vormánuðum. Því til stuðn-
ings má benda á tónlistarveislu eða sannkallað Evróvisjón-ball sem Páll
Óskar Hjálmtýsson, einn af áhugasamari mönnum um söngvakeppnina,
stóð fyrir síðastliðið laugardagskvöld á skemmtistaðnum NASA. Honum
til halds og trausts voru ýmsir flytjendur úr forkeppninni sem þöndu
raddböndin fyrir mannhafið og glöddu gesti fram eftir morgni.
bjorg@24stundir.is
Evróvisjón-æði!
Rauðhetta og kanínan Þeir Friðrik
Samúel og Blær Jóhannsson grófu upp
viðeigandi dress fyrir kvöldið.
Knús frá vini Þessi tveir voru gríðarlega hressir og dönsuðu eins og ljón.
Eitt atriðanna á NASA Eitt vöðvatröllið
úr Merzedes Club fór létt með að skella
Rebekku á öxl sér.
Stemning Páll Óskar tróð upp eins og honum einum er lagið.
Dansandi gleði Merzedes Club notaði
gleðina til að syrgja ósigur kvöldsins.
Leikritið Kommúnan eftir mynd
Lukas Moodysson, Tilsammans,
hefur nú verið tekið til sýningar í
Borgarleikhúsinu. Verkið ber aug-
ljós merki alþjóðablöndu og ís-
lenskar útrásar þar sem erlendir
leikarar fara með burðarhlutverk
og sagan fer fram á íslensku í bland
við ensku, en ætlunin er að taka
það til sýningar á fleiri stöðum en á
Fróni. Ljósmyndari 24 stunda kom
við á frumsýningu og tók myndir
af spenntum leikhúsgestum.
Alþjóðlega
Kommúnan
frumsýnd
Áhugafólk um kommúnur Sigríður Jónsdóttir mætti á svæðið ásamt Víkingi Krist-
jánssyni.
Prúðbúin Vinkonurnar Fanneyju Sísí,
Írisi Stefaníu og Ragnheiði Mekkín.
Á milli föngulegra hjóna María Kristjánsdóttir kom sér vel fyrir milli Egils Ólafssonar
og Tinnu Gunnlaugsdóttur.
Spennt þríeyki Þau Áslaug, Lilja og
Gísli voru saman mætt í Borgarleikhúsið.
Ofsakát Guðrún Kaldal ásamt leik-
urunum Jóhanni G. Jóhannssyni og Birni
Inga.