24 stundir - 17.04.2008, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2008 24stundir
VÍÐA UM HEIM
Algarve 18
Amsterdam 7
Alicante 14
Barcelona 15
Berlín 7
Las Palmas 20
Dublin 8
Frankfurt 7
Glasgow 9
Brussel 7
Hamborg 6
Helsinki 3
Kaupmannahöfn 7
London 10
Madrid 19
Mílanó 16
Montreal 8
Lúxemborg 7
New York 9
Nuuk 0
Orlando 16
Osló 8
Genf 5
París 11
Mallorca 15
Stokkhólmur 6
Þórshöfn 6
Léttir til suðvestanlands.
Hiti 3 til 12 stig yfir daginn en búast má við
næturfrosti norðaustan til.
VEÐRIÐ Í DAG
8
7
3
8 5
Léttir til
Hæg suðlæg eða breytileg átt og víða bjart
veður en smáskúrir á stöku stað sunnan til á
landinu. Hætt við þokulofti við sjávarsíðuna.
Hiti 2 til 8 stig, hlýjast á Suðvesturlandi, en
víða næturfrost inn til landsins.
VEÐRIÐ Á MORGUN
6
6
1
5 5
Smáskúrir
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ut-
anríkisráðherra hefur falið tveimur
fyrrverandi hæstaréttardómurum
að fara yfir gögn er varða sprengju-
árás sem íslenskir friðargæsluliðar
urðu fyrir í Kjúklingastræti í Kabúl
í október 2004 og skulu þeir skila
skýrslu um málið á komandi
sumri. Tvær konur létust í árásinni
og þrír íslenskir friðargæsluliðar
særðust.
Íslenska ríkið hefur ekki greitt
bætur til ættingja þeirra sem létust
né heldur til þeirra sem særðust í
árásinni. Þetta kom fram í svari
Ingibjargar við fyrirspurn Árna
Þórs Sigurðssonar, þingmanns
Vinstri grænna, um málið. Ekki
hefðu verið taldar forsendur til
þess að greiða bætur þar eð árásin
hafi verið gerð á íslensku friðar-
gæsluliðana og manntjón ekki ver-
ið af þeirra völdum.
Ingibjörg er nýlega komin heim
úr ferð til Afganistans. Í kjölfar
ferðarinnar hafa skapast nokkrar
umræður um starf friðargæslunnar
í Afganistan. Ingibjörg segir ástæðu
þess að hún hafi ákveðið að fá álit á
atburðunum í Kabúl vera þá að
ýmsir virðist telja að ekki séu öll
kurl komin til grafar í málinu.
„Þetta mál er ítrekað tekið upp í
umræðu um störf friðargæslunnar
og það er von mín að með þessu
getum við metið atvikin svo að haf-
ið sé yfir allan vafa að framganga
og viðbrögð utanríkisráðuneytisins
hafi verið á þann hátt sem þau gátu
best orðið.“ freyr@24stundir.is
Utanríkisráðherra lætur rannsaka árás á friðargæsluliða í Kabúl
Kjúklingastrætisárás könnuð
Heimkoma Friðargæslulið-
arnir við heimkomuna.
„Okkur hafa borist ábendingar
um einelti með myndavélarsímum
á þessum stöðum þar sem þeir full-
orðnu sjá ekki til, á salernum og í
sturtuklefum þar sem þolandinn er
hvað mest berskjaldaður,“ segir
Björk Einisdóttir, framkvæmda-
stjóri Heimilis og skóla.
„Við hvetjum skólayfirvöld til að
fylgjast vel með hvað gerist á þess-
um stöðum og sömuleiðis foreldra
til að ræða við börnin sín um alvar-
leika þessara mála.“
Björk telur að víða þurfi að huga
betur að aðstöðu nemenda í skólum
landsins til að gæta þess að þeir
verði ekki fyrir einelti á stöðum eins
og salernum. „Grunnskólalögin
kveða á um að skólahúsnæðið skuli
vera öruggt og það gildir það sama
um þessi mál.“ aegir@24stundir.is
Einelti með myndavélarfarsímum
Þrífst þar sem full-
orðnir sjá ekki til
Alþjóðahúsið hefur auglýst eftir nýju
húsnæði. Að sögn Helgu Ólafsdóttur
upplýsingafulltrúa er Alþjóðahúsið
fyrir nokkru búið að sprengja núver-
andi húsnæði, á Hverfisgötu 18, utan
af sér. „Starfsemi Alþjóðahússins
hefur vaxið gríðarlega undanfarin ár
og starfsmönnum fer sífellt fjölg-
andi,“ segir Helga.
Ekki hefur enn fundist nýtt húsnæði,
en Helga segir stefnt að því að hið
nýja húsnæði verði í miðbænum líkt og hið gamla. „Það skiptir okkur
miklu að vera miðsvæðis, t.d. til að vera í færi við helstu strætóleiðir.“
Café Cultura, sem hýst er á sama stað og starfsemi Alþjóðahússins,
mun ekki flytja með starfseminni, enda er rekstur Culturu óðháður
rekstri Alþjóðahússins. Helga segir ekki ákveðið hvort kaffihús verður
í nýja húsnæðinu. hos
Alþjóðahúsið í heimilisleit
Tími nagladekkjanna á þessum
vetri er liðinn. Frá og með deg-
inum í gær er óheimilt að aka um
á negldum dekkjum og búast má
við því að lögreglan fari að sekta
menn upp úr mánaðamótum.
Ekki var þó merkjanleg aukning
hjá hjólbarðaþjónustum í gær að
sögn starfsmanna. fr
Undan með
nagladekkin
Samninganefnd Icelandair ætlar
að svara því á fundi hjá rík-
issáttasemjara í dag hvort léð
verði máls á því að semja við Fé-
lag íslenskra atvinnuflugmanna,
FÍA, til skemmri tíma en til 30.
nóvember 2010 eins og lagt var
upp með, að því er Örnólfur
Jónsson, formaður samninga-
nefndar flugmanna, greinir frá.
Flugmenn vilja skammtíma-
samning fram á næsta vor vegna
óvissunnar í þjóðfélaginu. Á fé-
lagsfundi FÍA í síðustu viku var
lagt til við samninganefnd félags-
ins að hún hæfi undirbúning að
verkfalli flugmanna. ibs
Funda á ný hjá ríkissáttasemjara
Eftir Þóru Kristínu Þórsdóttur
thorakristin@24stundir.is
Í Reykjavík eru um 550 biðstöðvar
fyrir strætisvagna og eru strætó-
skýli á um 350 þeirra. Þar með bíða
farþegar án skjóls fyrir veðri og
vindum á um 200 biðstöðvum.
Strætóskýli borgarinnar tilheyra
þremur aðilum. Reykjavíkurborg
sér um kaup á rauðu og gráu skýl-
unum en viðhald og rekstur þeirra
er í höndum Strætó bs. Þeir síð-
arnefndu ráða jafnframt miklu um
staðsetningu skýlanna.
AFA JCDecaux sér svo um við-
hald og rekstur auglýsingaskýlanna
svokölluðu og semur um staðsetn-
ingu þeirra við Reykjavíkurborg.
Farþegum mismunað
„Við röðum skýlunum auðvitað
eftir farþegafjölda en spurningin
snýst um það hvort mismuna eigi
farþegum eftir því hvort þeir taka
strætó á mikið eða lítið notaðri
biðstöð. Okkur líður ekki vel með
að mismuna farþegum á þennan
hátt, sérstaklega ekki eins og veð-
urfarið er hér á landi og myndum
heldur vilja að skýli væru á öllum
stöðvum,“ segir Einar Kristjáns-
son, sviðsstjóri þjónustusviðs
Strætó bs.
Ætlar að fjölga skýlunum
Ólafur F. Magnússon borgar-
stjóri, sem verið hefur talsmaður
betra aðgengis í strætó og lægri
gjalda, segir sjálfsagt að fjölga
strætóskýlum borgarinnar.
„Það er augljóst að ef við ætlum
að bæta aðgengi að strætó þurfum
við bæði að auka tíðni ferða og
bæta aðgengi farþega.
Við í meirihlutanum leggjum
mikla áherslu á að efla vistvænar
samgöngur og því tilheyrir að
fjölga strætóskýlum. Svo að já, við
ætlum okkur að gera þetta,“ segir
hann.
Ólafur tekur þó fram að hann
hafi ekki kynnt sér þetta mál og
ætli að skoða hvort nú þegar sé
unnið að fjölgun skýla í borginni.
Jafnframt segist hann ekki vita hve-
nær skýlunum verður fjölgað.
ÞEKKIR ÞÚ TIL?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á frettir@24stundir.is
Ekkert skýli á
200 biðstöðvum
Strætó bs. líður ekki vel með að mismuna farþegum í íslenskri
veðráttu „Sjálfsagður hlutur að fjölga skýlum,“ segir borgarstjóri
Veður Fólk bíður eftir
strætó í íslensku vetrarveðri
➤ Í borginni eru um 140 rauðskýli og um 70 rauð skýli.
Rekstur þeirra er á ábyrgð
Strætó bs.
➤ Jafnframt eru um 140 grænskýli sem kölluð eru auglýs-
ingaskýli. Þau eru í umsjá
AFA JCDecaux. Um þau samdi
borgin við AFA árið 1998 til
tuttugu ára.
STRÆTÓSKÝLI
STUTT
● Eldsneyti Eldsneytisverð
hefur hækkað hér á landi síð-
ustu daga. Lítrinn af bensíni
hefur hækkað um tvær krón-
ur hjá flestum olíufélögum og
er algengt verð 149,60 krón-
ur. Verð á dísilolíu hefur
hækkað um eina krónu og er
algengt verð í sjálfsafgreiðslu
159,50 krónur.
● Sinubruni Slökkviliði höf-
uðborgarsvæðisins barst til-
kynning um sinubruna í
Grafarvogi í gær. Einn bíll
var sendur á vettvang, og
hafði töluverður reykur
myndast vegna brunans.
Leiðrétt
Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
0
8
-0
6
0
8
Tökum við umsóknum núna
Kynntu þér námið á www.hr.is