24 stundir - 17.04.2008, Side 6

24 stundir - 17.04.2008, Side 6
TILBOÐ FYRIR ALLA FÉLAGA Í VILDARKLÚBBI ICELANDAIR Dagana 16.–18. apríl bjóðum við öllum okkar félögum 50% afslátt af flugi þegar greitt er með Vildarpunktum. Ferðatímabil er til og með 31. desember. Bókunum lýkur föstudaginn 18. apríl kl. 17:00. Tilboðið bókast inn á www.vildarklubbur.is. Barnaafsláttur Vildarklúbbsins gildir. Flugvallarskattar ekki innifaldir. Evrópa 19.–21.000 Vildarpunktar Bandaríkin 25.–30.000 Vildarpunktar Kanada 25.000 Vildarpunktar * Tilboðið gildir ekki til Barcelona, Mílanó og Madrid. + Skilmálar og allar nánari upplýsingar á www.vildarklubbur.is. FLUG FYRIR HELMINGI FÆRRI VILDAR- PUNKTA* – TAKMARKAÐ SÆTAFRAMBOÐ Vildarklúbbur ÍS L E N S K A S IA .IS IC E 41980 04 /08 WWW.VILDARKLUBBU R.IS Vegna mikils álags á símkerfinu, bendum við á www.vildarklubbur.is hefur staðið ókláraður í tugi ára. Það er talað um að kostnaður við að kaupa hann og standsetja verði að lágmarki um 290 til 300 millj- ónir króna,“ segir Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæjarstjóri Árborg- ar. Útilokar ekki neitt Ragnheiður segir að þó tillaga sjálfstæðismanna hafi verið felld á síðasta bæjarstjórnarfundi sveitar- félagsins hafi ekki verið ákveðið að útiloka kaup á salnum. „Áður en við ráðumst í svona fjárfestingu viljum við líta yfir völl- inn til að sjá hvað hér sé í gangi, hvað sé til af húsnæði og hvað fólki finnst vanta. Við viljum gera vel en það er mjög mikilvægt að þörfinni sé mætt þegar ráðist verður í jafn viðamikið verkefni.Við höfum ekki útilokað kaup á menningarsalnum.“ Að sögn Ragnheiðar mun um- rædd nefnd RHA skila áliti sínu fyrir næsta haust. ➤ Heildarstærð húsnæðisins ersamkvæmt fasteignamati 1365 fermetrar. ➤ Stærð salarins er 650 fermetr-ar með sviði og er 300 fer- metra kjallari undir salnum. MENNINGARSALURINN 24stundir/Árni Sæberg  Sjálfstæðismenn í Árborg vilja kaupa menningarsal Hótels Sel- foss  Kaup sveitarfélagsins á menningarhúsi er í þarfagreiningu Salurinn skuli keyptur strax Eftir Ægi Þór Eysteinsson aegir@24stundir.is „Það er í sjálfu sér ekkert óeðlilegt að sveitarfélagið láti gera þarfa- greiningu fyrir sig áður en ráðist er í jafn mikla fjárfestingu og menn- ingarhús vissulega er, en tækifærið er fyrir hendi við dyrnar hjá bæj- arstjórninni og það gæti glatast ef ekki verður brugðist við fljótlega.“ Þetta segir Eyþór Arnalds, odd- viti sjálfstæðismanna, sem mynda minnihluta í bæjarstjórn Árborgar. Á síðasta fundi bæjarstjórnar lögðu sjálfstæðismenn fram tillögu um að gengið yrði til viðræðna við eig- endur Hótels Selfoss um kaup á rúmlega þrettán hundruð fermetra menningarsal hótelsins, sem staðið hefur ókláraður síðan 1984. Til- lögu sjálfstæðismanna var hafnað. „Það hafa verið uppi ýmsar hug- myndir um nýtingu á salnum og ég tel að við gætum misst af þessu tækifæri á meðan við bíðum eftir að nefnd á Akureyri skili áliti um menningarhús á Selfossi.“ Bæjarstjórn Árborgar óskaði eft- ir því á haustdögum að nefnd á vegum Rannsókna- og þróunar- miðstöðvar Háskólans á Akureyri ynni þarfagreiningu á menningar- húsi í sveitarfélaginu. Salurinn falur fyrir 90 milljónir Samkvæmt heimildum 24 stunda er salur Hótels Selfoss falur fyrir um níutíu milljónir króna sem myndi verðleggjast sem 66 þúsund krónur á fermetrann. Þá hafa verið uppi hugmyndir um að bærinn geti greitt fyrir salinn með því að fella niður fasteignagjöld af hótelinu í nokkur ár. Þannig kæm- ist sveitarfélagið hjá því að taka lán fyrir menningarsalnum. „Salurinn er fokheldur og hann Biðstaða Bæjarstjórn Árborg- ar útilokar ekki að kaupa menn- ingarsal Hótels Selfoss þegar þarfagreining liggur fyrir. 6 FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2008 24stundir Atvinnubílstjórar söfnuðust saman fyrir utan Alþingishúsið síð- degis í gær til að minna á að þeir séu ekki hættir andófi gegn háu eldsneytisverði og efndu til kyrrð- arstundar eins og einn þeirra kall- aði mótmælin. Eins og nafnið gefur til kynna voru mótmælin afar friðsamleg en um tíu sendibílar voru fyrir utan Alþingi þegar mest var. Lögregla mætti á svæðið þegar skammt var liðið á mótmælin og ritaði hjá sér númer bílanna. Skömmu síðar var sendibílunum ekið á brott um leið og bílstjórarnir þeyttu flautur. Þess má geta að stofnfundur hagsmunasamtaka flutningabíl- stjóra verður haldinn á morgun en þeir hafa unnið að stofnun þeirra undanfarið. mbl.is Bílstjórar efndu til kyrrðarstundar Söfnuðust saman fyrir utan Alþingi Á fyrstu 102 dögum þessa árs voru 6955 ökutæki ný- skráð hér á landi. Í fyrra voru 5999 ökutæki ný- skráð eftir jafn marga skráningardaga og hefur því nýskráðum ökutækj- um fjölgað um 15,9% á milli ára. Fyrstu 53 daga ársins hafði nýskráning öku- tækja hins vegar aukist um 46,8% miðað við sama tíma í fyrra og virðist því heldur vera að draga úr aukningunni, segir á heimasíðu Umferðarstofu. Sama má sjá í eigendaskiptum ökutækja, því þeim hefur fækkað á milli ára. Voru skráð eigendaskipti 26402 á fyrstu 102 dögum ársins en 26773 á sama tímabili í fyrra. Þar með hefur orðið 1,4% samdráttur í eigendaskiptum. Fyrstu 53 daga ársins var þó 2,6% aukning í eig- endaskiptum miðað við í fyrra. þkþ Nýskráðum bílum fjölgar „Ég hélt að þetta væri orðið hallærislegt í dag, ég hélt að það væri tilfinningin. Ég leyfi mér að trúa því að þetta séu leifar af fortíðinni,“ segir Ólafur Rafnsson, forseti Íþróttasambands Ís- lands, um nektardans á karlakvöldi sem félagar í Hestamannafélaginu Herði héldu síðastliðna helgi og 24 stundir sögðu frá á þriðjudag. „Þeir verða að svara fyrir þetta sjálfir en mér finnst þetta ekki til fyrirmyndar og þetta er íþróttahreyfingunni ekki þóknanlegt undir merkjum hennar,“ segir hann en tekur að öðru leyti undir orð Líneyjar og Stefáns á þriðjudag. Hélt að strippið þætti hallærislegt Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks segjast allir sem einn ekki vita hvers konar fyrirtæki styrktu síðustu prófkjörsbaráttu þeirra, enda hafi þeir skipað nefnd til að afla sér fjár til að geta staðið í baráttunni. Þetta kemur fram í svörum borgarfulltrúa við fyrirspurn 24 stunda um hvort þeir hafi þegið styrki frá byggingarfélögum, verk- tökum, verkfræðistofum og arki- tektastofum vegna prófkjörs fyrir kosningarnar 2006. Óskar Bergsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokks, segist hafa þeg- ið styrki frá fyrirtækjum úr áður- nefndum geirum til að fjármagna prófkjör fyrir síðustu borgarstjórn- arkosningar. Hann vildi þó ekki gefa upp nöfn þeirra, til að draga þau ekki inn í pólitíska umræðu. Dagur gefur ekki upp Dagur B. Eggertsson, borgar- fulltrúi Samfylkingar, vildi ekki gefa upplýsingar um hverjir hafi styrkt síðasta prófkjör hans, þar sem það átti sér stað fyrir daga laga um fjármál stjórnmálaflokka og ekki sé hefð fyrir slíkri upplýsinga- gjöf. Aðrir borgarfulltrúar Samfylk- ingar segjast ekki hafa þegið fé frá umræddum fyrirtækjum og sama gildir um báða borgarfulltrúa Vinstri grænna. Samkvæmt lögum um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóð- enda frá því í desember 2006 skulu frambjóðendur tilkynna Ríkisend- urskoðun um nöfn allra lögaðila sem veita framlög til kosningabar- áttu þeirra. Hámarksstyrkur er 300 þúsund krónur. hlynur@24stundir.is Spurt um styrki frá byggingariðnaðinum Vita ekki hverjir styrktu prófkjörin

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.