24 stundir - 17.04.2008, Blaðsíða 11
24stundir FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2008 11
Nýjar 1 lítra umbúðir
Hæstiréttur Bandaríkjanna
hefur tekið fyrir mál hins 43
ára Patricks Kennedys, sem
sakfelldur var fyrir að nauðga
átta ára stjúpdóttur sinni árið
1998. Kennedy var dæmdur til
dauða fyrir verknaðinn af
dómstól í Louisianaríki.
Halda lögfræðingar Kennedys
því fram að aftöku skuli ekki
beita í málum þar sem fórn-
arlambið lifir af. Vísa þeir til
ákvörðunar hæstaréttar frá
árinu 1977, þar sem kveðið er
á um að dauðarefsingar eigi
ekki við í nauðgunarmálum.
Segja lögfræðingarnir að hið
sama hljóti að eiga við þótt
börn eigi í hlut. aij
Frumburðir bera meginþunga
af agaviðurlögum foreldra
sinna, samkvæmt nið-
urstöðum rannsóknar sem
birtist í Economic Journal.
Komust vísindamenn að því
að yngri börn í fjölskyldu
þyrftu mun sjaldnar að þola
refsingu en þau elstu. Leiðir
þetta til þess að öðru, þriðja
og fjórða barni í fjölskyldu
hættir til að leiðast af réttri
braut þegar aldurinn færist yf-
ir. Segja skýrsluhöfundar þau
líklegri til að hætta í skóla,
neyta áfengis eða eiturlyfja
eða eignast börn á tánings-
aldri. aij
Sex daga opinberri heimsókn
Benedikts páfa sextánda til
Bandaríkjanna stendur yfir
um þessar mundir. Banda-
ríkjaforseti, George Bush, tók
páfa fagnandi við komuna til
landsins.
Þetta er fyrsta heimsókn
Benedikts til Bandaríkjanna
síðan hann varð páfi. Auk þess
fagnar hann í ferðinni tvenn-
um persónulegum tímamót-
um – í gær varð hann 81 árs
og á laugardaginn eru 3 ár síð-
an hann settist í páfastól. Í til-
efni afmælisins þáði páfi há-
degisverð með forsetanum. aij
Bandaríkin
Má drepa
barnaníðinga?
Agi í fjölskyldum
Elstu börnum
refsað mest
Páfi í Bandaríkjareisu
Höfðingjar
hittast
Andris Piebalgs, sem er æðsti yfirmaður
orkumála í framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins, undirstrikaði í vikunni nauðsyn
þess að auka hlut kjarnorku í framleiðslu raf-
magns til að draga úr losun gróðurhúsaloft-
tegunda í Evrópu. Sagði hann kjarnorkuna
aukinheldur til þess fallna að gera álfuna
óháðari síhækkandi olíuverði.
Piebalgs kom með þessar yfirlýsingar á
fundi evrópskra kjarnorkuframleiðenda í
Brussel. Hann lagði ríka áherslu á að styrkja
þyrfti samstarf Evrópuríkja á sviði öryggis-
mála kjarnorkuvera og meðhöndlunar geisla-
virks úrgangs.
„Við verðum að átta okkur á því að breyt-
inga er þörf þegar fyrirséð er að olíuverð
verði hátt til framtíðar,“ segir Piebalgs. „Sam-
spil framboðs og eftirspurnar í dag leiðir
óhjákvæmilega til hærra verðs.“
Piebalgs segir Evrópusambandið þurfa að
búa sig undir umtalsverða fjárfestingu í nýj-
um orkuverum á næstu árum, eftir því sem
orkunotkun eykst og gömul orkuver úreldast.
Telur Piebalgs ennfremur blikur á lofti um
að Rússland, sem sér Evrópu fyrir stórum
hluta olíu sinnar, hafi náð framleiðsluhá-
marki á síðustu árum. Héðan í frá geti því
verið að olíuframleiðsla Rússlands dragist
saman ár frá ári, sem hljóti að hvetja þjóðir
Evrópu til að leita annarra leiða til að tryggja
orkuöryggi sitt.
Nýútgefnar tölur sýna að útflutningur olíu
frá Rússlandi dróst saman um eitt prósent á
fyrsta fjórðungi þessa árs. Af því tilefni sagði
Leóníd Fedún, varaforseti Lukoil, blaðamanni
Wall Street Journal að hann óttaðist að sú
þróun myndi halda áfram.
andresingi@24stundir.is
Baráttan gegn hlýnun jarðar gæti krafist aukinnar áherslu á aðra orkugjafa
Kallað eftir aukinni kjarnorku í Evrópu