24 stundir - 17.04.2008, Page 22
22 FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2008 24stundir
ÁSTANDHEIMSINS
frettir@24stundir.is a
Abbas er að leita fjárstuðnings Rússlands. Í staðinn
hjálpar hann til við að bæta ímynd Rússlands með því
að fallast á friðarviðræður.
Alexei Malashenko, Carnegiemiðstöðinni í Moskvu.
Mahmoud Abbas, leiðtogi Palest-
ínumanna, er nú í þriggja daga
heimsókn í Moskvu. Er talið að
hann muni ræða við rússneska
ráðamenn um skipulagningu við-
ræðna um frið í Mið-Aust-
urlöndum, sem Rússar hafa gefið
til kynna að þeir vilji halda í júní.
Yrðu þær viðræður í beinu fram-
haldi af fundi deiluaðila í Anna-
polis í nóvember síðastliðnum.
Rússland er einn meðlima Mið-
Austurlandakvartettsins, hóps
sem leitast við að koma á friði í
Mið-Austurlöndum. Að auki eiga
þar sæti Bandaríkin, Evrópusam-
bandið og Sameinuðu þjóðirnar.
Ísraelar hafa lagst gegn því að
Hamas-samtökin eigi aðild að
friðarviðræðum, og hafa þrír
meðlima kvartettsins fallist á þá
kröfu. Heimsókn Abbas til Rúss-
lands kyndir undir því að Rússar
skjóti ekki fyrir það loku að rödd
Hamas fái að heyrast.
Sergei Vershinin, deildarstjóri í
rússneska utanríkisráðuneytinu,
segir svo ekki vera. „Það er ekki
til umræðu að bjóða Hamas á
fund í Moskvu,“ hefur Interfax
eftir Vershinin. aij
Hornsteinn
að friðarvið-
ræðum
Nýlentur Mahmud Abbas, leiðtogi Palestínumanna, lenti í Moskvu í gær. Hann hyggst ræða friðarhorfur fyrir botni Miðjarðarhafs við rússneska ráðamenn í dag.
Barnalán ljóna Þriggja vikna ljónshúnarnir tóku á móti ljósmyndurum í Kronesirkusinum í
Freising í suðurhluta Þýskalands.
Konungleg þingsetning Spænska konungsfjölskyldan virðir fyrir sér heiðursvörð
hersins fyrir utan þinghúsið í Madríd í athöfn sem haldin var vegna setningar nýs þings.
Beðið eftir strætó Stjórnvöld Sameinuðu arabísku furstadæmanna lýstu í gær yfir áhyggjum sínum af félagslegum afleiðingum
þess að vera með of stóra hópa fólks af erlendum uppruna innan landsins.
Barnalán Belga Bakari mætti glaður í bragði með tertu handa nýfæddri prinsessu.
Matthildur, eiginkona Filippusar krónprins Belgíu, ól dótturina Elenóru í gær.
AFP