24 stundir - 17.04.2008, Síða 28
28 FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2008 24stundir
Aðalfundur
2008
Aðalfundur Félags bókagerðarmanna
verður haldinn á Grand Hótel v/Sigtún
laugardaginn 19. apríl kl. 10:00.
Reikningar, fundargerðir, tillögur um
lagabreytingar og aðrar framkomnar tillögur
liggja frammi á skrifstofu FBM frá og með
10. apríl 2008.
Boðinn verður morgunverður milli
kl. 9:00 og 10:00 og einnig matur í fundarhléi.
Reykjavík, 29. mars 2008,
Stjórn Félags bókagerðarmanna
In
g
u
n
n
Þr
ái
n
sd
ó
tt
ir
Eftir Írisi Ölmu Vilbergsdóttur
iris@24stundir.is
„Gott er að vera búinn að áætla
magn þannig að allir fái örugglega
nóg. Það borgar sig að setjast niður
í smástund og skrifa matseðilinn
og ekki gleyma meðlætinu. Sem
dæmi þá eru 400 g af kjöti á mann
örugglega nóg, ein og hálf bökuð
kartafla, 60-80 g af salati og 40 g af
grilldressingum,“ segir Arinbjörn.
Gas eða kol?
Spurningin um gasgrill eða ko-
lagrill kemur alltaf upp á vorin en
að sögn Arinbjörns er þetta spurn-
ing um þægindi. „Það er alltaf
ákveðin stemning að grilla á kolag-
rilli og vissulega er ákveðið bragð af
matnum vegna kolanna. Hins veg-
ar fylgir þessu ákveðið bras sem
gott er að losna við með því að
nota gasgrillin. Þau eru fljót að
hitna og frágangur eftir grillið er
mun minni. Þegar kemur að því að
setja matinn á grillið er hitinn aðal-
atriðið. Grillið þarf að hita mjög
vel áður en kjötið er sett á til þess
að koma í veg fyrir að það festist
við grindurnar. Þegar kveikt er á
grillinu er gott að loka því og leyfa
því að hitna í 10-15 mínútur þann-
ig að grindurnar og steinkolin séu
orðin vel heit. Ef grillmaturinn er
settur á um leið og kveikt er á grill-
inu soðnar hann frekar en grillast
og það tekur í heildina lengri tíma.
Eins er gott að loka heitu grillinu í
fimm mínútur þegar búið er að
grilla. Þá er mun auðveldara að
þrífa grindurnar,“ segir Arinbjörn.
Alltaf hægt að grilla
Gasgrillin hafa gert það að verk-
um að hægt er að grilla nánast allt
árið um kring. „Ef kalt er í veðri
tekur það grillið lengri tíma að
hitna og það nær kannski ekki
þeim hita sem til þarf svo best verði
á kosið. Hins vegar eru grillin í dag
flest það öflug að það á að vera
hægt að grilla í nánast hvaða veðri
sem er. Grillin eru því ekki vanda-
málið, frekar að manneskjan við
grillið sé ekki tilbúin að standa yfir
grillinu í skítakulda,“ segir Arin-
björn að lokum.
Grillveislan heppnast best ef gætt er að undirbúningnum
Mikilvægt að hita
grillið mjög vel
Grillveislur eru alltaf sér-
staklega skemmtilegar
en ýmislegt þarf að hafa í
huga áður en gestum er
boðið að setjast við mat-
arborðið. Greifinn á Ak-
ureyri hefur um árabil
rekið grillþjónustu og Ar-
inbjörn Þórarinsson, einn
af eigendum Greifans,
segir að mikilvægast sé
að gæta að magninu.
Grillari Arinbjörn rekur grillþjónustu
Greifans en þar grilla sérfræðingarnir.
➤ Grillþjónusta Greifans gefurmöguleika á að halda veislur
næstum hvar sem er.
➤ Hægt er að setja upp slíkarveislur í tengslum við ráð-
stefnur, fundi, hvataferðir
eða nánast af hvaða tilefni
sem er.
➤ Nánari upplýsingar áwww.greifinn.is.
GREIFINN
Allir góðir grillarar þurfa nýjar
og ferskar uppskriftir til að heilla
matargesti. Þessar uppskriftir er að
finna á vefsíðunni www.noatun.is.
Grillaður sinnepsgljáður lax
800 g lax, laxaflak, beinhreinsað
með roði
pipar, nýmalaður
3 msk. púðursykur
2 msk. Dijon-sinnep
2 msk. sojasósa
1,5 msk. rauðvínsedik eða bal-
samedik
Leiðbeiningar:
Laxinum er skipt í fjögur stykki
og þau krydduð með dálitlum pip-
ar. Púðursykri, sinnepi og sojasósu
blandað saman og laxinn pensl-
aður með gljáanum. Laxastykkin
grilluð í 3-4 mínútur á hvorri hlið
(fyrst með roðhliðina upp),
pensluð aftur og snúið. Laxinn er
grillaður þar til hann er eldaður í
gegn en þá færður á fat. Edik hrært
saman við það sem eftir er af gljá-
anum og dreypt yfir laxinn.
Grilluð T-bone steik
T-bone steikur (2x600 g)
salt
pipar
Leiðbeiningar:
Takið kjötið úr kæli minnst
þremur tímum áður en það er
grillað, því þannig næst jafnari
steiking. Skerið í gegnum sinina á
kjötinu á tveimur stöðum (hægt er
að biðja um það í kjötborði Nóa-
túns). Hitið grillið mjög vel og
grillið kjötið í 3 mínútur á hvorri
hlið á mesta hita. Lækkið þá hitann
og grillið áfram í 5-7 mínútur á
hvorri hlið og kryddið með salti og
pipar. Berið steikurnar fram með
kaldri Nóatúns-villisveppasósu,
fersku salati og bökuðum Duches-
kartöflum. iris@24stundir.is
Girnilegar grilluppskriftir
Grillaður lax og gómsæt steik
Internetið er ómissandi í nútímasamfélagi enda
er þar hægt að fá svör við flestum spurningum sem
á okkur brenna. Grillarar geta til dæmis fengið nær
endalausar hugmyndir að grillréttum með því einu
að fara á google.is. Sláið grilluppskriftir í leitarvél-
ina. Einnig er gott að leita undir „grillmatur“ og
„barbeque recipes“.
Grillað með Google
VORIÐGRILLIÐ
lifsstill@24stundir.is a
Það er alltaf ákveðin stemning að
grilla á kolagrilli og vissulega er
ákveðið bragð af matnum vegna kolanna.