24 stundir - 17.04.2008, Side 31

24 stundir - 17.04.2008, Side 31
24stundir FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2008 31 SLYS Á BÖRNUM Eftir Einar Jónsson einarj@24stundir.is Samhliða því að snjór hverfur af götum og veturinn hörfar undan vorinu fjölgar börnum að leik jafnt í görðum sem á almennum leiksvæð- um. Þó að útivera og hreyfing geri börnum almennt gott er mikilvægt að huga að örygginu því annars er hætt við að illa fari. Sigrún A. Þor- steinsdóttir, sviðsstjóri slysavarna- sviðs Slysavarnafélagsins Lands- bjargar, segir að slys sem tengjast trampólínum séu algeng sem og slys sem tengjast reiðhjólum, hjóla- brettum, línuskautum og öðrum slíkum tækjum. Hún mælir með því að fólk fari eftir leiðbeiningum framleiðenda og noti þann örygg- isbúnað sem mælt er með. Öryggisnetið mikilvægt „Það þarf að vera hlíf yfir gorm- unum og öryggisnet í kringum trampólínið. Maður kaupir yfirleitt öryggisnetið sér og því miður eru margir sem spara sér þann kostn- að,“ segir Sigrún. „Það skiptir mjög miklu máli að vera ekki með tram- pólínið nálægt hlutum sem krakkar geta dottið á svo sem húsveggjum eða stórum steinum. Maður verður líka að reyna að hafa stjórn á því hversu margir nota trampólínið í einu. Það verða svo mörg slys þegar margir eru að hoppa í einu,“ segir Sigrún. Koma misvel undan vetri Slysavarnafélagið gerir reglulega úttekt á opinberum leiksvæðum. „Það er mjög mismunandi hvernig leiksvæði koma undan vetri. Und- irlagið er orðið mjög dapurlegt á mörgum stöðum og mikið af stórum steinum, grjóti, flöskum og rusli á leiksvæðinu sem krakkar geta meitt sig á,“ segir Sigrún og bætir við að leiktæki séu oft illa leik- in eftir veturinn. „Maður sér jafnvel nagla standa niður úr húsum sem standa á leiksvæðum. Oft eru þetta hlutir sem þarf ekki mikið til að lag- færa,“ segir Sigrún að lokum. Huga þarf að öryggi og ástandi leiksvæða eftir veturinn Leiksvæðið búið undir sumarið Trampólín Að hoppa á trampólíni er góð og holl hreyfing en mikilvægt er að hafa öryggismálin í lagi. Huga þarf reglulega að öryggi og ástandi leik- tækja, ekki síst nú þeg- ar sumarið er á næsta leiti og börn leika sér í auknum mæli utandyra. Oft þarf ekki að gera mikið til að draga úr hættu á slysum. ➤ Algengast er að slys á börn-um á aldrinum 1-4 ára eigi sér stað inni á heimilinu. ➤ Eldri börn slasa sig aftur ámóti frekar utandyra og þá gjarnan í leikjum og íþrótt- um. Senn fyllast götur á ný af börnum á reiðhjólum, hlaupahjólum, línu- skautum, hjólabrettum og öðrum farartækjum. Þó að þau bjóði upp á góða hreyfingu og útiveru er skynsamlegt að huga að örygginu áður en lagt er í hann, til dæmis með því að setja upp hlífðarhjálm og hlífar. Slíkur búnaður getur dregið úr áverkum og jafnvel komið í veg fyrir slys. Á þessum árstíma er víða mikið af smásteinum á gangstéttum og göngustígum eftir veturinn. Þeir sem eru á hlaupahjólum, hjólaskóm og línuskautum þurfa sérstaklega að gæta sín á þeim enda auka þeir líkurnar á að þeir detti og meiði sig. Hjólin dregin úr geymslunni Þegar leiktæki eru yfirfarin er sérstaklega mikilvægt að athuga ástand slitflata og annarra hluta þeirra sem eru undir miklu álagi. Þannig ættu menn að skoða efstu hlekki í rólum sem og þá sem eru næstir setunni og legur í vegasölt- um þar sem mestur núningur er. Gott er að huga að ryði og öðru sliti og ganga úr skugga um að hvergi skagi oddhvassir hlutir út. Farið yfir leik- tækin að vori Mannræktarsamtökin Art of Living standa fyrir kynningardögum á öndunartækni í Rósinni, Bolholti 4, 4. hæð. Kynningin fer fram föstu- daginn 18. apríl kl. 19-22, laugardaginn 19. apríl kl. 09-11 og sunnu- daginn 20. apríl kl. 10-12. Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir. Kostnaður er 6.000 kr. fyrir alla tímana en 2.500 kr. fyrir einn dag. Vikuna 22. apríl til 26. apríl standa samtökin síðan fyrir sex daga önd- unarnámskeiði. Námskeiðunum er ætlað að hreinsa hugann, losa um streitu, auka skerpuna og auka gleði og ánægju. Kynning á öndunartækni Full búð af sumarvörum Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsunum Fákafeni) www.gala.is • S:588 9925 Opið alla daga 11.00-22.00 Rýmingarsala! Verslunin flytur í nýtt og enn glæsilegra húsnæði 25-40% afsláttur af völdum vörum Allt á að seljast Arctic Spas Faxafeni 9 (ATH: aðkoma í kjallara bakhús) Sími 554 7755 www.arcticspas.is & www.heitirpottar.is

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.