24 stundir - 17.04.2008, Page 36

24 stundir - 17.04.2008, Page 36
36 FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2008 24stundir ÍÞRÓTTIR ithrottir@24stundir.is a Sérstaklega á ég von á að Rússarnir og Úsbekarnir eigi eftir að reynast okkur erfiðir andstæðingar enda firna- sterkir glímukappar. Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur hilduredda@24stundir.is Fyrsta heimsmeistaramótið í ís- lenskri glímu verður haldið í Dan- mörku dagana 10. og 11. ágúst, og hafa keppendur frá 10 þjóðlöndum í þremur heimsálfum þegar boðað þátttöku sína. Auk Íslands taka þátt glímukappar frá Kamerún, Dan- mörku, Hollandi, Kirgistan, Níger, Rússlandi, Svíþjóð, Úsbekistan og Þýskalandi. Lárus Kjartansson, fram- kvæmdastjóri Glímusambands Ís- lands, segist eiga von á harðri keppni enda frambærilegir glímu- menn frá öllum löndunum. „Sér- staklega á ég von á að Rússarnir og Úsbekarnir eigi eftir að reynast okkur erfiðir andstæðingar enda firnasterkir glímukappar. Þeir eru þjálfaðir í beltaglímu sem er ekki ósvipuð íslensku glímunni, og hið sama gildir um keppendur frá hin- um löndunum. Á Norðurlöndum er þó slatti af fólki sem hefur æft ís- lenska glímu frá grunni og náð góðum tökum á henni,“ segir hann og bætir því við að stefnan sé að senda þrjá íslenska keppendur í hverjum þyngdarflokki hjá báðum kynjum. Glíman í útrás  Keppendur frá 10 þjóðlöndum mæta til leiks á fyrsta heims- meistaramótinu í íslenskri glímu í Danmörku í sumar Íslensk glíma Frá al- þjóðlegu glímumóti í Þróttarhúsinu við Laug- ardal síðasta haust. Stefnt á toppinn Í kvennaflokki er keppt í þremur þyngdarflokkum og í karlaflokki sex, þannig að í heildina má gera ráð fyrir að 27 keppendur fari til Danmerkur og keppi fyrir Íslands hönd. „Það er ekki komið á hreint hverjir það verða sem fara enda er hér mikill fjöldi sterkra glímu- kappa í öllum flokkum. Vitaskuld stefnum við að því að ná bestum árangri allra þjóða á þessu fyrsta heimsmeistaramóti í íslenskri glímu, en það er þó alls ekkert gefið í þeim efnum,“ segir hann. Glíman fari sem víðast Draumurinn er að sjálfsögðu sá að íslenska glíman nái fótfestu í sem allra flestum löndum. „Við höfum verið að kynna hana í nokkrum Evrópulöndum og feng- ið góðar viðtökur. Peningar eru auðvitað af skornum skammti en við stefnum að því að reyna að fara sem víðast.“ Þær Ragna Ingólfsdóttir og Tinna Helgadóttir komust báðar áfram í 2. umferð í ein- liðaleik á Evrópumótinu í badminton í Danmörku í gær. Þá komust Helgi Jóhannesson og Tinna Helgadóttir í 3. um- ferð í tvenndarleik. Hnitspilarar áfram á EM Innkaupastjóri Real Madrid,gamla kempan PredragMijatovic, segir það ómögulegt að lokka Cris- tiano Ronaldo til liðsins. Mi- jatovic hafði vonast til að Ronaldo yrði andlit liðsins, líkt og Zidane hafi verið á sínum tíma. „Það virðist ekki vera raunhæft að fá hann, því miður.“ Spænski landsliðsmaðurinnDavid Villa, sem skorarmörkin fyrir Valencia á Spáni, segist helst vilja fara til Arsenal fari hann á annað borð til Eng- lands. „Þeir spila frábæran einnar snertingar fótbolta með hröðum skyndisóknum, maður hlýtur að hrífast af slíku.“ Miðvallarleikmaður Hamborg- ar, Hollendingurinn Rafael Van der Vaart, vonast til að fara frá liðinu í sumar, en Chelsea er talið vilja fá leikmanninn í sínar raðir. „Ég vildi helst fá þessi mál á hreint sem fyrst. Ég er metn- aðarfullur og vil fá tækifæri til að vinna titla.“ Besti kylfingur heims, Tiger Woods, mun ekki fá neina fugla á næstunni, nema þá í kvöldmat. Verður hann frá keppni í um sex vikur sökum meiðsla á hné, en hann gekkst undir aðgerð síðastliðinn þriðjudag og þarf góðan tíma til að jafna sig. Tiger meiddur SKEYTIN INN Vallý s.510 3728 Böddi s.510 3726 atvinna@24stundir.is PANTAÐU GOTT PLÁSS Í TÍMA ATVINNUBLAÐ

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.