24 stundir - 08.05.2008, Side 1

24 stundir - 08.05.2008, Side 1
24stundirfimmtudagur8. maí 200886. tölublað 4. árgangur Mikið úrval notaðra bíla á góðum kjörum! Rafn Hafnfjörð ljósmyndari leyf- ir náttúrunni að njóta sín í myndum sem hann hefur tekið og sýnir í Start Art galleríi við Laugaveg. Rafn hefur tekið tugi þúsunda mynda á ferli sínum. Náttúran í mynd KOLLA»20 Nú eiga allir að hjóla í vinnuna og spara bensín en heilsuátak er í gangi þessa dagana. Hjólreiðar sporna við offitu og lækka tíðni ýmissa sjúk- dóma. Guðlaugur Þór er einn hjóla- kappanna. Út með hjólið HEILSA»23 Skýluleiga lægst í Bolungarvík NEYTENDAVAKTIN »4 Þúsundum ungra kaþólikka munu berast skilaboð í far- símana sína meðan sex daga heimsókn Benedikts páfa sex- tánda til Ástralíu stendur yfir í júlí. Vonast Páfagarður til að ná betur til yngri kynslóð- arinnar með því að taka tæknina í þjónustu sína. Búist er við að um 225.000 ungmenni muni mæta á hátíð kaþólskra í Ástralíu og mun þeim daglega berast boð- skapur andagiftar og vonar í símann sinn. aij Benedikt páfi sendir SMS GENGI GJALDMIÐLA SALA % USD 77,00 -0,18  GBP 150,40 -1,28  DKK 15,89 -1,12  JPY 0,73 -0,95  EUR 118,61 -1,13  GENGISVÍSITALA 153,30 -0,91  ÚRVALSVÍSITALA 4.940,65 1,15  »14 6 10 6 2 4 VEÐRIÐ Í DAG »2 „Við efnum til vatnsslags á prófatíma til þess að líta um stund upp frá krefjandi próflestrinum,“ segir nemandi í ML. Þarna keppa heimavistarhúsin sín á milli í blautri og kaldri skemmtun. Húsvörður skólans, Pálmi Hilm- arsson, fylgist með og sér um að ekki skorti vatn og reglum sé fylgt. Þessi hefð er rótgróin í skólalífinu, þótt ekki sé hún jafn víðfræg og táskoðanir og naflaskoðanir sem tíðkast hafa árum saman, auk busavígslu í Laugarvatni. Vorannarprófum lýkur í ML í lok næstu viku og skólaslit verða 24. maí. „Þetta er ein af fjölmörgum hefðum í ML“ Laugarvatnsslagur Mynd/Páll Magnús Vanþekking á kynferðisofbeldi Skólakerfið kann ekki að greina eða taka á kynferðisofbeldi sem nemendur verða fyrir, segir fram- kvæmdastjóri Blátt áfram. Mörg kynferðismál liggi óupplýst. »2 UMFÍ hefur gert leigusamning við Icelandair hotels um rekstur fjöl- skyldugistingar á Tryggvagötu 13, sem UMFÍ hefur fengið vilyrði fyr- ir. Minnihlutinn setur spurning- armerki við ákvörð- unina. UMFÍ stefnir á hótelrekstur »6 Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@24stundir.is „Landsvirkjun Power stefnir að því að stofna fé- lag með tyrknesku jarðhitafyrirtæki sem heitir ORME og ætlunin er að eiga það til helminga,“ segir Bjarni Bjarnason, forstjóri Landsvirkjunar Power, dótturfélags Landsvirkjunar sem meðal annars er ætlað að halda utan um verkefni hennar erlendis. Byggja virkjanir til að eiga, reka eða selja Bjarni segir að ekki sé búið að ganga frá stofnun félagsins en að það verði vonandi gert á næstu vikum. Ef af félaginu verður er ætlun þess að byggja jarðhitavirkjanir í Tyrklandi. „Félagið verður stofnað til að vinna að jarðhitaverkefnum. Það eru hins vegar engin slík verkefni komin, en við munum leita þeirra. Ef svo færi að þau kæmu þá myndum við væntanlega byggja virkjanir, eiga þær, reka eða selja. Það er allt opið með það. En hugmyndin er að samnýta þekkingu okkar. Tyrkneska félagið sem við erum í sambandi við hefur mikla reynslu í lághita á meðan við höfum mikla reynslu í vinnslu háhita. Okkur sýnist því að þetta gæti geti farið mjög vel saman.“ Enn engar fjárhagslegar skuldbindingar Bjarni segir Landsvirkjun Power ekki hafa undirgengist neinar fjáhagslegar skuldbindingar enn sem komið er. „Ef við stofnum þetta félag þá aukast þær í takt við þau verkefni sem við fáum. En við borgum einungis lágmarkshlutafé inn í þetta félag við stofnun þess.“ Landsvirkjun hefur verið í tengslum við ORME í nokkur ár þar sem Íslensk jarðhita- tækni, dótturfélag Landsvirkjunar Power, hefur þjónustað það með dælur í borholur. Átta milljarðar króna í hlutafé Landsvirkjun Power hóf störf í upphafi þessa árs þegar nafni annars dótturfélags, Landsvirkj- un Invest, var breytt. Félagið er í 100% eigu Landsvirkjunar sem lagði til átta milljarða króna í hlutafé. Landsvirkjun er síðan að fullu í eigu íslenska ríkisins. Landsvirkjun Power starfar hins vegar sem hlutafélag þrátt fyrir að vera að fullu í opinberri eigu. Þegar tilkynnt var um stofnun félagsins í desember í fyrra var tekið sérstaklega fram að ekki kæmi til greina að selja hluti í félaginu til einkaaðila né setja það á almennan markað. Meðal eigna félagsins er HydroKraft Invest sem það á ásamt Landsbankanum, en hvor aðili fyrir sig lagði um tveggja milljarða króna hlutafé í það félag. Önnur félög í eigu Landsvirkjunar Power eru Íslensk jarðhitatækni ehf., Hecla SAS sem er stað- sett í Frakklandi og Sipenco sem er staðsett í Sviss. Power til Tyrklands ➤ Landvirkjun Power er í 100% eigu móð-urfélagsins Landsvirkjunar, en starfar sem hlutafélag. Landsvirkjun er síðan að fullu í eigu íslenska ríkisins ➤ Við stofnun Landsvirkjunar Power lagðimóðurfélagið átta milljarða króna í hlutafé þess. Ekki kemur til greina að selja hluti í félaginu til einkaaðila. LANDSVIRKJUN  Landsvirkjun Power ætlar að stofna félag til að byggja virkjanir í Tyrklandi  Samstarfs- aðilinn tyrkneskt jarðhitafyrirtæki  Mun eiga, reka eða selja virkjanirnar, segir forstjóri

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.