24 stundir


24 stundir - 08.05.2008, Qupperneq 4

24 stundir - 08.05.2008, Qupperneq 4
Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@24stundir.is Hjúkrunarheimilið Sóltún færði rangar upplýsingar inn í skráning- arkerfi sem ákvarðar greiðslur til þess frá heilbrigðisráðuneytinu á árinu 2006. Þetta kemur fram í greinargerð Ríkisendurskoðunar sem 24 stundir hafa undir hönd- um. Færslurnar hækkuðu þyngd- arstuðul sem notaður er til að ákvarða greiðslurnar. Sóltún fékk alls 108 milljónir í viðbótar- greiðslur árin 2003 til 2005 og fór fram á 22,7 milljónir til viðbótar árið 2006. Í samningi heilbrigðis- ráðuneytisins og Sóltúns er kveðið á um að meðaltals-þyngdarstuðull Sóltúns eigi að vera á bilinu 1,05 til 1,20. Frá árinu 2003 hefur stuðull- inn þó ávallt farið yfir 1,20 og Sól- tún krafist viðbótargreiðslu frá ráðuneytinu vegna þessa. Ráðu- neytið féllst ekki á kröfur Sóltúns og því fór ágreiningurinn fyrir sér- staka sáttanefnd sem úskurðaði að Sóltún ætti rétt á greiðslum fyrir árin 2003 til 2005. Ráðuneytið greiddi upphæðina án þess að við- urkenna réttmæti kröfunnar og hóf í kjölfarið að bera saman þyngdarstuðla hjúkrunarheimila hérlendis. Þar skar Sóltún sig úr. Örfáar færslur stóðust skilyrði Um mitt ár 2007 skýrði ráðu- neytið Ríkisendurskoðun frá þessu og í kjölfarið ákvað stofnunin að kanna málið. Í niðurstöðum henn- ar kemur fram að fjöldi færslna í skráningarkerfið hefði verið 427 á árinu 2006. Til að skráning teljist gild þarf hún að uppfylla ákveðin skilyrði og samkvæmt skýrslunni voru einungis sex færslur sem gerðu það, eða 1,4 prósent. Þar kemur ennfremur fram að þyngd- arstuðull Sóltúns hafi verið 1,07, ekki 1,26 líkt og heimilið hélt fram. Því beri ekki að greiða þær 22,7 milljónir sem Sóltún fór fram á vegna ársins 2006. Ríkisendur- skoðun mun í kjölfarið gera sam- bærilega athugun á útreikningum Sóltúns árin 2003 til 2005, en heimilið fékk þá greitt108 milljónir í viðbótargreiðslur. Sóltún heldur því þó fram að sáttin sem var gerð í janúar 2007 sé endanleg og því ekki hægt að fara fram á endurgreiðslu. Ráðuneytið er því ósammála. Reyna sáttir, annars dómstólar Berglind Ásgeirsdóttir, ráðu- neytisstjóri í heilbrigðisráðuneyt- inu, segir að nú sé verið að fara yfir skýrsluna jafnt varðandi Sóltún og aðrar ábendingar sem lúta að mat- inu sem notað er til að ákvarða greiðslur til heimilanna. Hún tekur fram að frá síðustu áramótum hafi eftirlit með þjónustusamningum verið aukið mikið. Aðspurð um hvort til greina komi að segja upp þjónustusamningum við Sóltún segir Berglind það ekki hafa verið rætt. „Samkvæmt samningi þá ber að vísa ágreiningi í sáttanefnd. Við viljum skipa slíka nefnd með sér- fræðingum í RAI-mati. En ef það takast ekki sáttir þá er það dóm- stólaleiðin.“ Í yfirlýsingu frá eig- endum Sóltúns er vísað á bug „þeim aðdróttunum sem felast í greinargerð Ríkisendurskoðunar en hún vegur alvarlega að starfs- heiðri okkar“. Of háar greiðslur  Sóltún fór fram á 23 milljóna viðbótargreiðslur frá yfirvöldum sem það átti ekki rétt á samkvæmt skýrslu Ríkisendurskoðunar ➤ Einkafyrirtækið Öldungur hf.opnaði hjúkrunarheimilið Sóltún 7. janúar 2002. ➤ Heimilið er með þjónustu-samning við heilbrigðisráðu- neytið um rekstur þess til 25 ára. SÓLTÚNSHEIMILIÐ Sættir? Skipuð verður sátt- arnefnd. Ef sáttir nást ekki þá verður dómstólaleiðin farin. 24stundir/Golli 4 FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2008 24stundir „Lög númer 95 frá árinu 2000 virðast vera að skila því að feður upplifi aukin til tilfinningatengsl við barn sitt,“ segir Auður Arna Arnardóttir, lektor við Háskólann í Reykjavík, en hún heldur í dag fyr- irlestur á vegum Rannsóknarstofu í kvenna- og kynjafræðum þar sem hún segir frá rannsókn um reynslu feðra og maka þeirra af fæðingar- orlofi. Tilgangur að auka tengsl „Einn aðaltilgangur fæðingaror- lofslaganna var að tryggja að börn nytu samvista við báða foreldra. Þess vegna finnst okkur spennandi að skoða tengsl feðra við börnin,“ segir Auður Arna. Niðurstöður rannsóknarinnar leiða í ljós að um 72% feðra segja að taka fæðingarorlofs hafa hjálpað þeim að átta sig á því hverjar þarfir ungbarna eru. Þá segja 85% þeirra að það hafa aukið ánægju þeirra af því að annast barnið, auk þess sem 83% karlmanna eru sammála þeirri staðhæfingu að taka fæðing- arorlofs hafi aukið tilfinningaleg tengsl við barnið. „Það virðist vera að þeim mun lengur sem karlar eru í fæðingaror- lofi þeim mun sterkari verður svör- unin varðandi þessa þætti,“ segir Auður Arna. fifa@24stundir.is Lög um fæðingarorlof auka tilfinningatengsl feðra og barna Því lengra orlof því betra Feðraorlof Orlofið stuðlar að auknum tilfinningatengslum. Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í gær þrjá karlmenn fyrir fjölda brota, þar á meðal þjófnað, nytja- stuld, eignaspjöll, akstur undir áhrifum fíkniefna og fíkniefna- og vopnalagabrot. Tveir voru dæmdir í tveggja mán- aða fangelsi, annar skilorðs- bundið, en sá þriðji til greiðslu sektar. Fíkniefni voru jafnframt gerð upptæk. Mennirnir voru meðal annars ákærðir fyrir þjófn- að og innbrot í sumarbústaði á Suðurlandi í fyrravor. aí Þrír dæmdir fyrir fjölmörg brot Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda. Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is Neytendasamtökin gerðu könnun á leigu á sund- skýlum. Verðmunur er 20% eða 60 króna munur á lægsta og hæsta verði, þar sem Íþróttamiðstöðin í Bol- ungarvík kom ódýrast út en Breiðholtslaug og Sund- laug Akureyrar voru dýrastar. Ekki er heimilt að vitna í þessa könnun í auglýsingum. Skýlan ódýrust í Bolungarvík Ingibjörg Magnúsdóttir NEYTENDAVAKTIN Leiga á sundskýlu Sundlaug Verð Verðmunur Íþróttamiðstöðin Árbær Bolung- arvík 290 Íþróttamiðstöðin Egilsstöðum 300 3,4 % Suðurbæjarlaug 300 3,4 % Sundhöllin Selfossi 320 10,3 % Sundlaug Akureyrar 350 20,7 % Breiðholtslaug 350 20,7 % VIKUTILBOÐ VÍKURHVARF 6 SÍMI 557 7720 WWW.VIKURVERK.IS Cadac 8150 Vinsælasta ferðagasgrillið á frábæru tilboðsverði. OPIÐ ÖLL FIMMTUDAGSKVÖLD TIL KL. 21:00 Í SUMAR Ferðaskrifstofa Fyrstur kemur, fyrstur fær. Nánari upplýsingar og bókanirá www.plusferdir.is Verð frá: 44.719kr. á mann miðað við 2 fullo rðna og 2 börn á Alagom ar í 7 nætur. Verð miðað við 2 í íbúð 59.874 kr . Verðdæmið miðast við b rottför 28. ágúst. Innifal ið í verði: Flug, flugvallaskattar, gi sting og íslensk fararstjó rn. Hefur þú ekki efni á stórstjörnu í afmælið í ár? Portúgal –Sólarstaður fjölsk yldunnar

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.