24 stundir - 08.05.2008, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2008 24stundir
Eftir Atla Ísleifsson
atlii@24stundir.is
Dmitri Medvedev sór embættiseið
sem forseti Rússlands í Kreml í
Moskvu í gær. Medvedev tekur við
embættinu af Vladimir Pútín, sem
hefur gegnt því síðustu átta ár, en
eitt fyrsta verk Medvedev var að til-
nefna Pútín sem forsætisráðherra.
Medvedev sagðist ætla að vinna
að því að bæta Rússland og sagði
mikilvægustu verkefnin vera að
tryggja borgaralegt og efnahagslegt
frelsi og að virðing sé borin fyrir
lögum.
Erfið verkefni
Nýs forseta bíða mörg erfið verk-
efni, svo sem víðtæk spilling innan
stjórnkerfisins, hækkandi verð-
bólga, fólksfækkun, slæmt ástand
iðnaðar og landbúnaðar í landinu
og æ stirðari samskipti við ná-
grannaríki og vesturveldin. Forveri
Medvedevs í forsetastóli var jafn-
framt sakaður um, bæði af innlend-
um og útlendum andstæðingum
sínum, að trampa á mannréttind-
um og frelsi almennra borgara.
Ekki hvikað frá fyrri stefnu
Í ræðu sinni í gær þakkaði Pútín
Rússum fyrir það traust sem þeir
hefðu sýnt honum síðustu átta ár.
Hvatti hann þá til að styðja við bak-
ið á nýjum forseta, en að nauðsyn-
legt væri að víkja ekki frá þeirri
stefnu sem hann hafði sjálfur
markað. „Það er mjög mikilvægt
fyrir alla að halda áfram á sömu
braut og sem hefur þegar sýnt sig
vera sú rétta.“
Pútín áfram valdamikill
Pútín lýsti yfir stuðningi við
Medvedev sem næsta forseta í des-
ember síðastliðinn, en stjórnar-
skráin kom í veg fyrir að Pútín gæti
boðið sig fram þriðja kjörtímabilið
í röð. Yfirlýsingin er talin hafa haft
langmest um það að segja að
Medvedev vann stórsigur í forseta-
kosningunum í mars, þar sem hann
hlaut rúmlega 70% atkvæða.
Félagarnir hafa unnið náið sam-
an frá upphafi 10. áratugarins og
telja margir að Pútín muni áfram
gegna mjög viðamiklu hlutverki í
rússneskum stjórnmálum í krafti
forsætisráðherraembættisins, for-
mennskunnar í stjórnarflokknum
Sameinuðu Rússlandi og gríðar-
legra vinsælda sinna.
Pútín hefur sjálfur sagt að hann
muni ekki eiga í vandræðum með
að starfa með Medvedev og að völd
forseta og forsætisráðherra muni
haldast óbreytt. Rússar eru hins
vegar vanir því að hafa sterkan leið-
toga og hafa margir lýst yfir áhyggj-
um af nýju fyrirkomulagi, hvað
myndi gerast þegar neyð steðjar að
og tveir menn eru í brúnni.
Sór embættiseið
Nauðsynlegt að tryggja frelsi og að virðing sé borin fyrir lögum
Pútín áfram áhrifamikill í krafti stöðu og gríðarlegra vinsælda
© GRAPHIC NEWS
ELDFLAUGAVARNIR
Rússlandsstjórn grunar
Bandaríkjanna í Austur-
Evrópu sé ætlað til að
Samskipti Bandaríkjanna
og Rússlands verða líklega
áfram stirð vegna þessa.
STÆKKUN NATO
Rússar telja að stækkun muni
í Evrópu og ógna öryggi
Rússlands. Rússnesk stjórn-
völd eru andsnúin
nýlegum samningi
NATO við Úkraínu
og Georgíu um
aðild í framtíðinni.
SAMSKIPTI VIÐ ESB
Tilraun til að koma á sam-
vinnuramma við ESB, sem
Rússar eiga í mestum við-
skiptum við, var slegið á frest
2006. Líklegt er að ósætti um
tolla- og orkumál og mann-
réttindi einkenni viðræður,
verði þær teknar upp á ný.
KÍNA
Kínverjar vilja ólmir komast
í rússneska orku, en litið er
á aukin hernaðarleg og
pólitísk völd Kínverja grun-
samlegum augum. Med-
vedev hyggst sækja Kína
heim skömmu eftir að
hann tekur við völdum.
GEORGÍA
Samskiptin hafa versnað
vegna deilu um Abkasíu-
hérað, sem hefur lýst
Harðlínumenn í Kreml eru
sagðir þrýsta á Medvedev
um að hann verði á skjön við
stjórnir Vesturveldanna.
AÐILD AÐ WTO
Samningur um aðild Rússa
er í hættu vegna andstöðu
ESB, eftir að Rússar hækkuðu
andstöðu Georgíu vegna Abkasíu-deilu.
Medvedev segir mögulegt að taka upp
aðildarferli á þessu ári.
ÍRAN
Ólíkt Vesturveldum
þá vilja Rússar beita
hvatningu í stað
viðskiptabanns til að
fá Írana til að láta af kjarnorkuáætlun sinni.
Ólíklegt er að stefna Rússlandsstjórnar
breytist með valdatöku Medvedevs.
Lögfræðingurinn Dmitri Medvedev er talinn hafa litla reynslu
af utanríkismálum, en mun sem Rússlandsforseti stjórna ríki
með kjarnorkuvopnabúr, neitunarvald í öryggisráði SÞ og
ríki með stirð samskipti við Vesturveldi í leit að frekari orku.
Ljósmynd: Getty Images
raska viðkvæmu valdajafnvægi
MEDVEDEV OG UTANRÍKISMÁLIN
➤ Medvedev er 42 ára lögfræð-ingur og hefur lengi verið ná-
inn bandamaður Pútíns.
➤ Hann er giftist æskuástinniSvetlönu árið 1982 og eiga
þau soninn Ilya.
➤ Medvedev er 162 cm á hæð,en Pútín 165 cm.
➤ Medvedev syndir 1.500 metratvisvar á dag, og þykir
skemmtilegt að lyfta lóðum,
tefla og hlusta á rokktónlist.
DMITRI MEDVEDEV
Alþjóðastofnanir hafa hafið
dreifingu á hjálpargögnum í þeim
héruðum Mjanmar sem verst urðu
úti í fellibylnum Nardis. Opinberar
tölur herforingjastjórnarinnar um
mannfall hafa hækkað dag frá degi,
en bandarískur embættismaður í
Rangoon lýsti því yfir í gær að
rúmlega 100 þúsund manns kunni
að hafa týnt lífi í hamförunum.
Matvælaáætlun Sameinuðu
þjóðanna dreifði í gær hrísgrjónum
til bágstaddra í Rangoon, en tregða
stjórnvalda til að þiggja utanað-
komandi aðstoð tefur hjálparað-
gerðir. Leiðtogar víða um heim
hvetja herforingjana til að þiggja
sem fyrst þá aðstoð sem býðst. aij
Hjálparstofnanir koma mat til bágstaddra
Mjanmar fær hjálp
©
In
te
r I
KE
A
Sy
ste
m
s B
.V
. 2
00
8 úti á túni
SOMMAR djúpir diskar,
Ø18 cm. 50 stk. 695,-
SOMMAR pokar,
B45, H45 cm. 150,-/stk.
GRENÖ gólfdýna,
Ø50 cm. 2.990,-
SOMMAR ilmkerti, ýmsir
litir H12 cm. 495,-/stk.
SOMMAR löber,
B45xL140 cm. 695,-
SOMMAR
flugnaspaðar, 95,-/2 stk.
195,-/stk.
SOMMAR íspinnamót,
ýmsir litir
www.IKEA.is/sumar
Það er
Stærsta dreifikerfið inn
um lúguna á morgun
Stuðningsmenn stjórnarandstöð-
unnar í Líbanon boðuðu til alls-
herjarverkfalls í gær. Kveikt var í
bílum og byssuskot heyrðust víða
í höfuðborginni Beirút þegar
stjórnarandstæðingum og stjórn-
arliðum laust saman. Spenna hef-
ur magnast undanfarna 5 mánuði
þar sem ekki hefur náðst eining
um útnefningu forseta. aij
Róstur í Líbanon
Eitt fyrsta emb-
ættisverk nýkjör-
ins borgarstjóra
Lundúna var að
banna áfengi í al-
mennings-
samgöngu-
tækjum
borgarinnar. Frá
og með 1. júní verður refsivert að
vera með opin áfengisílát í stræt-
isvögnum og neðanjarðarlestum.
Bannið nýtur stuðnings lögreglu-
yfirvalda, sem telja það leiða til
fækkunar alvarlegra glæpa. aij
Boris bannar
sprútt í strætó