24 stundir - 08.05.2008, Page 14

24 stundir - 08.05.2008, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2008 24stundir Óskum eftir að kaupa sumarbústað, fokheldan eða fullbúinn, tilbúinn til fluttninga gegn staðgreiðslu uppl í síma 840-6100 Skeifunni17 • Smáralind • Akureyri • Ísafirði • Egilsstöðum • Vestmannaeyjum • Selfossi • Hafnarfirði (Bókabúð Böðvars) Allt fyrir skrifstofuna undir 1 þaki 24stundir Útgáfufélag: Ritstjóri: Fréttastjórar: Ritstjórnarfulltrúi: Árvakur hf. Ólafur Þ. Stephensen Björg Eva Erlendsdóttir Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Þröstur Emilsson Elín Albertsdóttir Auglýsingastjóri: Gylfi Þór Þorsteinsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711 Netföng: frettir@24stundir.is, auglysingar@24stundir.is, 24stundir@24stundir.is, Prentun: Landsprent ehf. Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, talaði skynsamlega um Evrópumál á fundi miðstjórnar flokksins um síðustu helgi. Eins og í öðrum stjórnmálaflokkum á Íslandi eru skiptar skoðanir um aðild Íslands að Evrópusambandinu í Framsóknarflokknum. Guðni óttast greinilega klofning í flokknum vegna deilna um Evrópumálin. Tillaga formannsins að leið út úr þeim ógöngum er að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Ísland eigi að sækja um aðild að ESB, og svo verði aðildarsamningurinn lagður fyrir þjóðina í annarri atkvæðagreiðslu. Guðni er fyrsti flokksformaðurinn, sem leggur þetta til, en forystumenn annarra flokka ættu að hafa ástæðu til að skoða tillöguna með opnum huga. Fyrir því eru margar ástæður. Í fyrsta lagi hefur þeirri skoðun vaxið ásmegin undanfarin ár, að ástæða sé til að nýta kosti beins lýðræðis á Íslandi; leyfa almenningi að kjósa beint um stór mál. Eru mörg mál stærri en þetta? Hvorki andstæðingar né fylg- ismenn ESB-aðildar hafa ástæðu til að leggjast gegn þessari lýðræðislegu leið; þeir hljóta að hafa nægilega trú á málstað sínum og sannfæring- arkrafti. Í öðru lagi gæti atkvæðagreiðsla um aðildarumsókn losað Evrópumálin úr spennitreyju flokkakerfisins. Þessi aðferð myndi leysa upp flokkslín- urnar í þessu máli og gera stjórnmálamönnum og kjósendum í öllum flokkum kleift að skipa sér í fylkingar, burtséð frá flokkslínum, og vera sammála um að vera ósammála. Þingmenn, sem ekki vildu skipa sér í þessar fylkingar, gætu sleppt því að gefa upp sína afstöðu eins og þeir þyrftu að gera ef Alþingi ætti eitt að ráða hvort sótt yrði um aðild. Hins vegar yrði að gera ráð fyrir að Alþingi virti þjóðarviljann þegar ákveðið yrði hvort sótt yrði um aðild að ESB eða núverandi ástandi viðhaldið. Í þriðja lagi er það alveg rétt hjá Guðna Ágústssyni að með því að fara þessa leið myndi Evrópuumræðan öðlast nauðsynlega jarðtengingu og báðar fylkingar gætu farið að ræða efni málsins, kosti og galla aðildar. Meiri umræður þurfa auðvitað að fara fram um það hvaða skilyrði slíkri þjóðaratkvæðagreiðslu yrðu sett. Þar eru margar leiðir í boði. Guðni Ágústsson virðist ganga út frá að breyta þyrfti stjórnarskrá til að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-aðild. Það er hins vegar alls ekki nauðsynlegt; um hana mætti setja sérstök lög ef menn teldu brýnt að taka ákvörðun um aðildarumsókn áður en til alþingiskosninga kæmi. Þjóðaratkvæði? SÆKTU LEIÐARANN Á WWW.MBL.IS/PODCAST Í vikunni tók HB Grandi þá ákvörðun að reka fyrirvaralaust alla starfsmenn Síldarbræðslu Granda á Akra- nesi. Starfs- mönnum var réttur miði þar sem stendur: Þér er hér með sagt upp störfum. Þér mun verða greiddur löglegur uppsagnarfrestur. Óskum þér hins besta í framtíð- inni. Aðrar útskýringar fengust ekki. Eggert Guðmundsson for- stjóri mætir svo í viðtal við fjöl- miðla og segir að nýir starfsmenn muni taka við og ekki sé óskað að eldri starfsmenn vinni uppsagn- arfrestinn. […] Hvað er forstjór- inn að gefa í skyn? Guðmundur Gunnarsson gudmundur.eyjan.is BLOGGARINN Reynslan út Ætli flestir séu ekki búnir að fá nóg af „Eurovision“-ferðum ut- anríkisráðherra um heiminn undanfarið. Rök annarra ráð- herra og einnig forsetans fyrir endalausum ferð- um sínum um heiminn er ein- mitt þátttaka í þessari „Eurovisi- on-keppni“ utan- ríkisráðherra. Gildir þar einu hvort ferðast er með einkaþotum eða í almennu farþegaflugi, allt hlýtur þetta að kosta sitt. Gæti það verið að stefna rík- isstjórnarinnar í utanríkismálum mótist fyrst og fremst af smjaðri fyrir ríkjum hér og hvar í heim- inum í þágu keppninnar … Jón Bjarnason jonbjarnason.blog.is Eurovision Og hvað um Íbúðalánasjóð? Svör óskast. Á að verða við kröfum fjármálastofnana um að slátra sjóðnum eða á að láta almanna- hagsmuni ráða og efla sjóðinn? Þá þarf að endur- skoða þau frum- vörp sem koma í stríðum straum- um út úr Stjórn- arráðinu. Halda menn til dæmis að stjórn- arfrumvarp um að afnema skatta af söluhagnaði fyrirtækja af hlutabréfum sé líklegt til að vekja fögnuð á meðal láglauna- og meðaltekjufólks? Halda menn að einkavæðingarstefna Guðlaugs Þórs og Ágústs Ólafs sé til þess fallin að stuðla að þjóðarsátt? Ögmundur Jónasson ogmundur.is Þjóðarsátt? Ólafur Þ. Stephensen olafur@24stundir.is Hægt er að lesa í bókum um uppboð á gömlu fólki og niðursetningum. Þar er sagt frá grimmilegri framkomu yfirvalda í garð þeirra sem minna máttu sín. Munaðarleysingjar, sjúklingar og gamalmenni sem engan áttu að vissu ekki hvar þau myndu eiga að vera eftir næstu fardaga. Uppboðin réðu því - sá bóndi sem minnst bauð tók fólkið að sér og í sumum til- vikum bjuggu þessir niðursetningar við afar bág kjör. Þessar hugsanir fóru um huga minn þegar ég las frétt 24 stunda í gær um flutning gamalmenna frá Þingeyri til Ísafjarðar. Ég vil taka það fram að ég er þess fullviss að allir sem vinna á þessu sviði á Ísafirði eru frábært fólk er sýnir gamla fólkinu alúð og hlýju. En með fullri virðingu; það er ekki hægt að gera þetta sem 24 stundir greina frá. Það er ekki hægt að loka dyrum þessa heimilis. Eða hvernig yrði manni sjálfum við ef maður kæmi heim einn dag- inn og það væri búið að loka dyrunum. Og mað- ur mætti svo koma eftir einn mánuð. Svei attan! María Kolbrún Valsdóttir, starfsmaður á þessu heimili, Tjörn á Þingeyri, komst vel að orði þegar hún sagði m.a.: „Það virðist enginn hugsa um hvernig flutningurinn fer í fólkið. Það er heil- mikið álag fyrir gamalt fólk að fara á elliheimili og verður það margt mjög þunglynt fyrst á eftir. Auðvitað eru svipuð áhrif af því að flytja á milli staða.“ Þetta gæti ekki verið betur orðað og á skýrari hátt. Já, þessi gerningur er vís til þess að skapa óöryggi og jafnvel ótta hjá gamla fólkinu, sem þarna býr. Ætti það ekki að vera í lófa lagið að fá fólk til þjón- ustu þegar svo mikill nið- urskurður er á þorskveiðum sem frægt er orðið? Ég vona það af al- hug að nauðungarflutningar á gömlu fólki verði ekki teknir upp að nýju í landi okkar, sem hefur státað af velferð og velsæld. Nú skulum við staldra við. Höfundur er alþingismaður Nauðungarflutningar ÁLIT Karl V. Matthíasson kvm@althingi.is

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.