24 stundir - 08.05.2008, Page 22
22 FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2008 24stundir
LÍFSSTÍLLHEILSA
heilsa@24stundir.is
Eftir Einar Jónsson
einarj@24stundir.is
Mörg slys eiga sér stað í umferð-
inni yfir sumarmánuðina enda er
fólk meira á ferðinni á þjóðvegum
landsins á þeim árstíma. Enn
fremur hafa ökumenn tilhneigingu
til að keyra hraðar þegar veður er
gott og aðstæður með besta móti.
Það er því við hæfi að hópur
hjúkrunarfræðinga efni til fjölda-
göngu gegn umferðarslysum nú í
sumarbyrjun áður en fólk flykkist
út á þjóðvegina. Með göngunni
vilja þeir votta fórnarlömbum
slysa og aðstandendum þeirra
samúð og stuðning og vekja al-
menning til umhugsunar um hve
slys geta haft alvarlegar og víð-
tækar afleiðingar. Bríet Birgisdótt-
ir, hjúkrunarfræðingur og einn að-
standenda göngunnar, bendir á að
slysin hafi einnig áhrif á heilbrigð-
isstarfsfólk og aðra sem að þeim
koma.
Finna samstöðuna
„Við ræðum náttúrlega ekki
einstaka atvik og erum bundin
þagnarskyldu. Mörgum finnst
samt svolítið erfitt eftir að hafa
komið að hörmulegum slysum og
sinnt fólki að geta ekki tjáð sig um
það. Þetta er því vettvangur fyrir
okkur til að koma saman og finna
samstöðuna,“ segir Bríet.
Margir koma að umferðarslys-
um með einum eða öðrum hætti,
allt frá lögreglu og sjúkraflutninga-
mönnum til presta og útfarar-
stjóra. Allar þessar stéttir taka þátt
í göngunni í dag og sýna þar með
samstöðu.
Kvíða sumarhelgum
„Mjög margir þeirra sem farast í
bílslysum eru ungmenni og þegar
slíkur harmleikur kemur upp er
nærvera okkar við aðstandendur
mikil. Það hefur talsverð áhrif á
okkur,“ segir Rúnar Geirmunds-
son útfararstjóri. „Við tökum þetta
að sjálfsögðu inn á okkur því að
það er allt annað að jarða ungt
fólk en þann sem deyr á elliheimili
saddur lífdaga,“ segir hann.
„Við þurfum kannski að ganga
frá illa útleiknu líki sem hefur
dottið út úr bíl og fengið hann of-
an á sig. Það hefur mikil áhrif á
okkur að þurfa að standa í þessu
trekk í trekk í mörg ár og horfa
síðan upp á aðstandendur ganga í
gegnum þá sorg sem fylgir þessu,“
segir Rúnar. „Það grípur mann
kvíðatilfinning hverja einustu helgi
á sumrin, sérstaklega ef maður
heyrir í þyrlu eða sjúkrabíl,“ segir
Rúnar Geirmundsson að lokum.
Snerta marga Umferðarslys hafa
mikil áhrif á heilbrigðisstéttir og
aðra sem koma að þeim.
Gengið verður gegn slysum í umferðinni í dag
Umferðarslysin
koma við marga
Umferðarslys hafa mikil
áhrif á heilbrigðisstéttir
og aðra sem þurfa að
koma að þeim með ein-
um eða öðrum hætti.
Þessar stéttir standa að
göngu gegn slysum í dag.
➤ Gengið verður af stað fráLandspítalanum við Hring-
braut kl. 16:30 í dag.
➤ Sjúkraflutningamenn oghjúkrunarfræðingar halda á
blöðrum sem tákna þá sem
létust og slösuðust í umferð-
inni hér á landi á síðasta ári.
➤ Blöðrunum verður sleppt ígöngulok við þyrlupallinn við
Landspítalann í Fossvogi.
GENGIÐ GEGN SLYSUM
24stundir/RAX
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin
(WHO) skilgreinir afleiðingar
umferðarslysa sem eitt stærsta
heilbrigðisvandamál sem heim-
urinn stendur frammi fyrir. Alvar-
legastur er vandinn í fátækum
löndum heimsins en meira en
80% allra umferðarslysa verða í
þróunarlöndum og fátækari lönd-
um heims. Á hverjum degi látast
um 3.000 manns í umferð-
arslysum í heiminum en það er
rúmlega sá fjöldi sem fórst í árás-
inni á World Trade Center árið
2001. Enn fleiri hljóta alvarlega
áverka sem há þeim jafnvel það
sem þeir eiga eftir ólifað og skerða
getu þeirra til að vinna og njóta
lífsins. Þá má ekki heldur gleyma
því að á bak við hvern þann sem
lætur lífið eða slasast alvarlega í
umferðarslysi er fjöldi aðstand-
enda, ættingja, vina og vinnu-
félaga sem þurfa að takast á við
afleiðingarnar og jafnvel vinna úr
sorginni og missinum.
Umferðarslysum fylgir jafn-
framt mikill kostnaður fyrir sam-
félagið en samkvæmt upplýs-
ingum á heimasíðu
Umferðarstofu er talið að umferð-
arslys á Íslandi kosti á milli 21 og
29 milljarða króna á ári.
Umferðarslys eru eitt helsta heilbrigðisvandamál heimsins
Um þrjú þúsund látast á dag
Heilbrigðisvandi Af-
leiðingar umferðarslysa
eru eitt helsta heilbrigð-
isvandamál heimsins.
Mikið úrval
af glæsilegum kjólum
Suðurlandsbraut 50
(Bláu húsunum Fákafeni)
www.gala.is • S:588 9925
Opið 11-18 og 11-16 lau.