24 stundir - 08.05.2008, Page 27
Á gangi Vaskir göngu-
garpar á Reykjanesinu.
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur
hilduredda@24stundir.is
Gönguverkefnið AF STAÐ á
Reykjanesið hófst um síðustu helgi
og heldur áfram næstu fjóra laug-
ardagana. Boðið er upp á menn-
ingar- og sögutengdar gönguferðir
um hluta af gömlu þjóðleiðunum í
upplandi Hafnarfjarðar. Farar-
stjóri verður Sigrún Jónsdóttir
Franklín, kennari og leiðsögumað-
ur. „Tilgangurinn með þessum
ferðum er fyrst og fremst að hvetja
fólk til gönguferða á Reykjanes-
skaganum, og það er einmitt sér-
staklega við hæfi núna þegar mikil
áhersla er lögð á eldsneytissparn-
að. Enginn hörgull er á náttúru-
perlum á Reykjanesinu þannig að
það er tilvalið fyrir þá sem búa
þar og á höfuðborgarsvæðinu að
fara í gönguferðir þar, enda mjög
stutt að fara,“ segir hún. Í ár verð-
ur lögð áhersla á gönguleiðir ná-
lægt Hafnarfirði og fyrir því eru
tvær meginástæður að sögn Sig-
rúnar. „Í fyrsta lagi á Hafnarfjarð-
arbær 100 ára afmæli í ár og í öðru
lagi er mikilvægt að ná til íbúa
höfuðborgarsvæðisins. Það er al-
veg einstakt í heiminum að vera
með svona mikið víðerni með
ósnortinni náttúru jafnstutt frá
þéttbýli.“
Fyrir alla
Göngurnar hefjast allar klukkan
11 á laugardögum og taka að jafn-
aði um þrjá til fjóra klukkutíma.
„Það er heildartíminn með öllum
stoppum. Gönguleiðirnar eru allar
í kringum 7 kílómetra langar og
reglulega er stoppað þar sem ég
fjalla um það sem fyrir augu ber.
Fólk á öllum aldri hefur tekið þátt
og ég veit til dæmis að næsta laug-
ardag ætlar að koma móðir með
fimm mánaða gamalt barn. Þetta
eru allt gönguleiðir á flatlendi
þannig að flestallir ættu að ráða
við þær,“ segir Sigrún.
Ekkert þátttökugjald er í ferð-
unum en rúta flytur göngufólk til
baka á upphafsstað í lok hverrar
göngu og kostar 500 krónur í rút-
una. „Þátttaka er frjáls og ekki er
nauðsynlegt að skrá sig. Þeir sem
taka þátt í þremur eða fleiri göng-
um fá nafn sitt í pott sem verður
dregið úr í lokin. Í vinning eru úti-
vistarvörur frá Cintamani,“ segir
hún að lokum.
Næsta laugardag, 10. maí, verð-
ur gengið um svokallaðan Ketils-
stíg. Ekin er Krýsuvíkurleið frá
Hafnarfirði að skilti sem á stendur
Djúpavatn, beygt til hægri og ekið
að gulum stikum merktum Ketils-
stíg.
Gönguverkefni á Reykjanesskaganum
Náttúruparadís
innan seilingar
Gönguverkefnið AF STAÐ
á Reykjanesið hófst um
síðustu helgi og heldur
áfram næstu fjóra laug-
ardaga. Um er að ræða
menningar- og sögu-
tengdar gönguferðir fyrir
fólk á öllum aldri. Mark-
miðið er að hvetja til úti-
vistar á Reykjanesskag-
anum.
➤ Nánar má lesa um næstu fjór-ar gönguferðir á vefsíðu Sig-
rúnar á sjfmenningarmidl-
un.is.
AF STAÐ Á REYKJANESIÐ
24stundir FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2008 27
Arctic Spas Faxafeni 9 (ATH: aðkoma í kjallara bakhús)
Sími 554 7755 www.arcticspas.is & www.heitirpottar.is
Mest seldu
pottar á Íslandi
Nokkrar staðreyndir um gæði pottanna.
• 3,5 hestafla dælur.
• TruGard hitari 4,4 kw, sá besti á markaðinum.
• Lokið þolir 1000 kg.
• Öflugt Ozon hreiniskerfi fylgir öllum okkar pottum.
• Botninn eru úr trefjagleri, (rotnar eða fúnar ekki.)
• 100% músheldur.
• Opnanlegar aðgangslúgur frá öllum hliðum.
• Gegnheill cedrusviður.
• Lífstíðarábyrgð á skelinni, sem er úr trefjagleri.
• 5 ára ábyrgð á öllum mótorum, rafkerfi.
• 24 tíma öflugt hreinsikerfi.
Arctic Spas eru framleiddir í Kanada.
Þola -50 gráður frost og henta einstaklega vel
íslenskum aðstæðum.
Vissir þú að Arctic
Spas eru ódýrastir
í rekstri af öllum
pottum framleidd-
um í heiminum!!
Út er komin árbók Ferðafélags
Íslands 2008 og er höfundur henn-
ar Hjörleifur Guttormsson nátt-
úrufræðingur sem skrifar hér um
Úthérað ásamt Borgarfirði eystra,
Víkum og Loðmundarfirði. Fjöl-
margar ljósmyndir skreyta bókina
og eru flestar þeirra eftir höfund-
inn sjálfan. Auk þess hefur hún að
geyma nákvæm kort af þeim
byggðarlögum sem fjallað er um.
Bókin fjallar um fjölbreytt og
einkar áhugavert svæði bæði hvað
varðar náttúrufar og möguleika til
útivistar. Þar skiptast á eyðibyggðir
í hrikalegri umgjörð og nærliggj-
andi svæði með byggð í blóma.
Loðmundarfjörður og Víkur
eiga sér langa og merkilega byggð-
arsögu sem náði fram yfir miðja
síðustu öld. Nú njóta þessir staðir
með sitt einstaka náttúrufar mikilla
vinsælda meðal útivistarfólks.
Sama má segja um Borgarfjörð
eystra með sinni margrómuðu um-
gjörð.
Daníel Bergmann annaðist um-
brot á bókinni, en kortin í henni
eru teiknuð af Guðmundi Ó. Ingv-
arssyni að forskrift höfundar hvað
örnefni varðar. Auk staðfræðiupp-
drátta er þar að finna fjölda skýr-
ingarmynda um jarðfræði, lífríki
og fornminjar. Prófarkalestur var í
höndum ritnefndarmannanna
Árna Björnssonar, Eiríks Þormóðs-
sonar og Guðrúnar Kvaran. Helgi
Magnússon vann að skráargerð og
Jón Viðar Sigurðsson ritstýrði
verkinu.
Árbók Ferðafélags Íslands 2008 komin út
Fjölbreytt landsvæði
Á vefsíðunni ganga.is má finna
ýmiss konar fróðleik fyrir göngu-
fólk og annað útivistarfólk. Meðal
þess sem í boði er eru göngukort
frá öllum landshlutum, upplýsing-
ar um skipulagðar gönguferðir,
ráðleggingar um réttan búnað á
göngum um landið, umgengnis-
reglur og margt fleira. Þá geta not-
endur síðunnar komið nýjum
gönguleiðum á framfæri með því
að skrá þær inn. Nú þegar inni-
heldur vefurinn um 800 gönguleið-
ir víðsvegar um landið. Tæplega
300 þeirra teljast stuttar og um 500
langar.
Ganga.is er gagnlegur vefur
Um 800 gönguleiðir
Útilegukortið 2008 er nú komið í
sölu. Um er að ræða kort sem
veitir handhafa þess, maka og
fjórum börnum undir 16 ára
aldri möguleika á að gista á 33
tjaldsvæðum í allt sumar. Ein-
ungis er greitt einu sinni fyrir
kortið og síðan er hægt að nota
það að vild á þeim 33 tjald-
svæðum sem eru samstarfsaðilar
Útilegukortsins. Hægt er að festa
kaup á kortinu á vefsíðunni uti-
legukort.is, á tjaldsvæðum sam-
starfsaðila Útilegukortsins, á
þjónustustöðvum N1 og í flestum
útivistarverslunum. Verðið er
12.900 krónur.
Útilegukort fyrir
fjölskylduna
LÍFSSTÍLLÚTIVIST
lifsstill@24stundir.is a
Í fyrsta lagi á Hafnarfjarðarbær 100 ára
afmæli í ár og í öðru lagi er mikilvægt að
ná til íbúa höfuðborgarsvæðisins.