24 stundir - 17.05.2008, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2008 24stundir
Lögreglan í Reykjavík fékk í fyrri-
nótt tilkynningu um grun-
samlegar mannaferðir á bílastæði
í Breiðholti en þar sást maður
sem grunur lék á að væri inn-
brotsþjófur. Hann var að skoða
bíla hátt og lágt og áleit tilkynn-
andi að maðurinn hefði eitthvað
illt í huga.
Lögreglan var fljót á vettvang og
spurði manninn hvaða erindi
hann ætti. Maðurinn reyndist þá
hafa orðið fyrir því óláni að
missa nokkra ketti úr vörslu sinni
og var nú að reyna að end-
urheimta þá. Hann var með fulla
vasa af kattarmat en hafði skriðið
árangurslaust meðfram nokkrum
bílum til að lokka til sín kettina.
Lögreglan segir að viðleitni
mannsins hafi litlu skilað enda
séu kettir þekktir fyrir flest annað
en að láta vel að stjórn. mbl.is
Meintur þjófur reyndist kattaeigandi
Eftir Auði Alfífu Ketilsdóttur
fifa@24stundir.is
07.00 Vaknaði með fjöl-skyldunni og við
maðurinn minn vöktum tveggja
ára drenginn okkar með kossi.
Þetta er fegursti tími dagsins í okk-
ar fjölskyldu. Eftir það dreif ég mig
í sturtu, borðaði morgunmat og las
blöðin.
08.00 Byrjaði að vinna ítölvunni. Ég þurfti
að svara alls konar tölvupósti, vera
í samskiptum út af stofnun Félags
Litháa, finna æfingahúsnæði fyrir
tónlistarmennina okkar og að sjálf-
sögðu stoppaði síminn ekki á með-
an. Eitt ánægjulegasta símtalið var
frá litháíska sendiherranum í Dan-
mörku en ég er að aðstoða hana við
að skipuleggja ferð til Íslands.
13.00 Hitti Einar, fram-kvæmdastjóra Al-
þjóðahúss. Hann er að hjálpa til við
stofnun félagsins og við fengum
bæði frábærar hugmyndir að sam-
starfi í framtíðinni.
15.00 Við maðurinn minnnáðum í barnið til
dagmömmu og fórum beint í rækt-
ina. Það hálpar til upp á einbeit-
inguna og eflir viljastyrkinn. Eftir
æfingu slökuðum við á í SPA.
18.00 Kvöldmatur meðfjöskyldunni. Í dag,
eins og aðra daga, lék ég af fingrum
fram í eldhúsinu og bakaði græn-
meti með myntu með grilluðum
kjúklingi og var mjög ánægð með
útkomuna!
20.00 Við lékum okkur viðbarnið en enn var
verk að vinna við að undirbúa
stofnfundinn auk þess sem ég að-
stoða manninn minn við pappírs-
vinnu fyrirtækis hans.
22.30 Barnið var löngusofnað svo ég hafði
tíma til að glugga í bók, er að lesa
sögu Tíbets í mjög góðri bók eftir
litháískan höfund. Sofnaði svo vit-
andi það að dagurinn á morgun
verður jafn góður og dagurinn í
dag og ef sólin skín veit ég að ég á
eftir að hafa enn meiri orku til að
takast á við verkefni dagsins.
Besti tíminn
á morgnana
24stundir með Ingu Minelgaite í félagi Litháa á Íslandi
➤ Inga Minelgaite er fædd oguppalin í Litháen, í næst-
stærstu borg landsins, Kau-
nas.
➤ Hún er með MBA-gráðu meðáherslu á mannauðsstjórnun.
➤ Inga flutti til Íslands fyrirtveimur árum.
INGA MINELGAITE
Félag Litháa á Íslandi
verður stofnað í Alþjóða-
húsinu í Reykjavík í
kvöld. Markmið félagsins
eru meðal annars að
kynna litháíska menn-
ingu, bæta ímynd Litháa
á Íslandi og vera í forsvari
fyrir þá hérlendis. Inga
Minelgaite viðskipta-
fræðingur er í forsvari
fyrir félagið.
Bætir ímyndina Inga Minel-
gaite er í forsvari hóps sem
stofnar félag Litháa á Íslandi
Í ályktun sem BHM sendi frá sér í
gær að loknum aðalfundi er lýst
yfir áhyggjum vegna þeirrar patt-
stöðu sem samningaviðræður við
ríkið eru komnar í. „Það er óá-
sættanlegt að samninganefndir
aðildarfélaga
bandalagsins
mæti á fund
eftir fund með
samn-
inganefnd rík-
isins án þess
að nokkrar
eiginlegar við-
ræður eigi sér
stað,“ segir í
ályktuninni. Þar segir jafnframt
að kyrrstaðan sé alfarið á ábyrgð
fjármálaráðherra. Aðild-
arfélögum BHM sé enn boðið
upp á samning með forsendu-
ákvæði sem þegar sé brostið. Því
sé það skýlaus krafa aðalfundar
að fjármálaráðherra veiti samn-
inganefnd sinni umboð til að
ræða um samningsmarkmið sem
sátt gæti náðst um. ibs
Kyrrstaða á
ábyrgð ráðherra
Alþjóðahúsi voru afhent Mann-
réttindaverðlaun Reykjavíkurborg-
ar fyrir árið 2008 í gær. Í rökstuðn-
ingi segir að Alþjóðahús hafi gegnt
lykilhlutverki í mannréttindamál-
um í borginni og unnið ötult
frumkvöðlastarf í þjónustu og
fræðslu í þágu innflytjenda.
Verðlaunin voru afhent í fyrsta
sinn í gær, en þau verða framvegis
afhent 16. maí ár hvert, þegar
Reykjavíkurborg mun halda sér-
stakan mannréttindadag.
Í fréttatilkynningu frá borginni
segir að Alþjóðahús byggist á hug-
myndafræðinni um fjölmenning-
arleg samfélög þar sem allir íbúar
samfélagsins geti notið þeirra kosta
sem slík samfélög bera með sér.
Meginhlutverk Alþjóðahúss snýr
að aðlögun innflytjenda að ís-
lensku samfélagi, meðal annars
með upplýsingagjöf, ráðgjöf, lög-
fræðiþjónustu, túlkaþjónustu og
félagsstarfi. aí
Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar
Alþjóðahús fær verðlaun
Guðlaug Sturlaugsdóttir hefur
verið ráðin skólastjóri Grunn-
skóla Seltjarnarness frá og með
næsta skólaári. Bæjarstjórn Sel-
tjarnarness staðfesti ráðninguna
á fundi sínum í fyrradag.
Guðlaug er fráfarandi skólastjóri
Ingunnarskóla í Grafarholti og
hefur hún stjórnað honum frá
upphafi. Þar áður var hún meðal
annars skólastjóri á Hellissandi.
Auk þess hefur Guðlaug kennt í
fjölmörgum skólum, bæði í
Reykjavík og á landsbyggðinni.
Alls sóttu 8 um starf skólastjóra
Grunnskóla Seltjarnarness.
mbl.is
Nýr skólastjóri á
Seltjarnarnesi
Lágmúli - Smáratorg - Laugavegur - Smáralind - Spöngin - Garðatorg - Setberg - Keflavík - Grindavík - Selfoss - Laugarás - Borgarnes - Stykkishólmur - Grundarfjörður - Búðardalur
Ísafjörður - Bolungarvík - Patreksfjörður - Sauðárkrókur - Blönduós - Hvammstangi - Skagaströnd - Húsavík - Kópasker - Raufarhöfn - Þórshöfn - Egilsstaðir - Seyðisfjörður - Fáskrúðsfjörður - Höfn
Neskaupstaður - Reyðarfjörður - Eskifjörður
www.lyfja.is - Lifið heil
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
L
Y
F
4
23
25
0
5.
20
08
HÆTTU Í ALVÖRU
Skynsamleg leið til að hætta því þú hættir á eigin hraða.
NicoBloc hindrar allt að 99% af nikótíni og tjöru í filternum.
Þú venur þig af nikótíni áður en þú drepur í.
TILBOÐ MÁNAÐARINS
25% afsláttur
Verð 2.990 kr. í Lyfju.
Verð áður 3.990 kr.
Viðskiptavinir í Stofni fá fjölbreytt úrval
af hjólahjálmum á 30% afslætti í Markinu,
Ármúla 40, 108 Reykjavík.
ENN EINN KOSTUR ÞESS AÐ VERA Í STOFNI
30% AFSLÁTTUR AF HJÁLMUM
Allir undir 15 ára aldri eru skyldugir til að vera með
hjálm á hjóli, hlaupahjóli, hjólabretti eða línuskautum
og skiptir öllu máli a› velja réttan hjálm.