24 stundir - 17.05.2008, Blaðsíða 28

24 stundir - 17.05.2008, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2008 24stundir Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur dista@24stundir.is Hvaða lifandi manneskju líturðu upp til og hvers vegna? Mömmu. Því hún er svo töff. Hver er þín fyrsta minning? Þegar ég var að reyna að hjóla í garð- inum hjá ömmu á bláa mótorhjólinu mínu sem var eins konar þríhjól sem leit út eins og mótorhjól. Hver eru helstu vonbrigðin hingað til? Það er of persónulegt til að segja frá. Hvað í samfélaginu gerir þig dapra? Það er skelfilegt að hugsa til þess hversu mikill ójöfnuður ríkir í heim- inum. Það er alltaf jafnerfitt að vita að í upplýstum heimi, eins og okkar, séu til stríð og þjóðarmorð og að mannslíf séu metin eftir því hvaðan í heiminum þau eru. Leiðinlegasta vinnan? Fiskvinnsla frá átta til fimm, í smá- þorpi í Suður-Frakklandi. Ég var að flokka síld og flaka. Uppáhaldsbókin þín? Einmitt núna er það Truffaut/ Hitchcock-bókin mín en svo er Ronja ræningjadóttir líka klassík. Hvað eldarðu hversdags, ertu góður kokkur? Misjafnt eftir dögum. Ég er fínn kokkur þegar ég legg mig fram. Hver myndi leika þig í kvikmynd byggðri á ævi þinni? Ég er ekki viss um að það fyndist framleiðandi að þeirri mynd svo það yrði mjög ódýr framleiðsla. Kannski væri hægt að plata yngri systur mínar í það en ég leyfi mér að efast um það. Að frátalinni húseign, hvað er það dýr- asta sem þú hefur fest kaup á? Líklega tölvan mín. Mesta skammarstrikið? Ég múnaði einu sinni (múna: bera á sér botninn) á mann fyrir utan Byko með fóstursystur minni. Pabbi er enn að tala um það og ég skammast mín. Annars hafa skammarstrikin verið nokkur eftir það. Hvað er hamingja að þínu mati? Hún er til í svo mörgum myndum. Hvaða galla hefurðu? Ég nenni ekki að telja þá upp. Ef þú byggir yfir ofurmannlegum hæfi- leikum, hverjir væru þeir? Ég væri til í að geta færst milli staða án þess að það tæki tíma og hvenær sem er. Hvernig tilfinning er ástin? Góð. Hvað grætir þig? Stundum bíómyndir en það er sjaldan. Stundum græt ég af gleði en stundum af sorg. Hefurðu einhvern tímann lent í lífs- hættu? Já. En tæknilega er hægt að deyja við að bursta tennurnar. Hvaða hluti í eigu þinni meturðu mest? Ég á marga góða hluti. Ég kann að meta þá, held ég. Hvað gerirðu til að láta þér líða vel? Ég fer í sund. Hverjir eru styrkleikar þínir? Ég nenni ekki að telja þá upp. Hvað langaði þig að verða þegar þú varst lítil? Forseti. Er gott að búa á Íslandi? Já, það hefur marga kosti. Hefurðu einhvern tímann bjargað lífi einhvers? Ég er ekki viss. Hvert er draumastarfið? Að búa til kvikmyndir og tónlist … Og svo horfi ég enn hýru auga til forseta- embættisins. Hvað ertu að gera núna? Ég er í Barcelona að strauja, á leið til Cannes á kvikmyndahátíð. 24spurningar Vera Sölvadóttir Vera er kvikmyndaleikstjóri, söngkona og elur landann á klassískum og góðum kvik- myndum í kvikmyndaklúbbn- um Fjalakettinum. Síðasta stuttmynd Veru, Mon- sieur Hyde, var sýnd á Al- þjóðlegu kvikmyndahátíðinni síðasta haust og fyrir þá mynd hlaut hún tilnefninguna „bjart- asta von Skandinavíu“. Tónlist á einnig hug Veru og myndar hún tvíeykið BB&Blake með Magnúsi Jónssyni. BB&Blake hefur skotist upp á íslenskan poppstjörnuhimin með syk- urskotnu rafpoppi og óborg- anlegri kynningu. Vera er að auki gríðarlega metnaðargjörn, hugðist verða forseti þegar hún var yngri og rennir enn hýru auga til emb- ættisins. a Ég múnaði einu sinni (múna: bera á sér botninn) á mann fyrir utan Byko með fóst- ursystur minni. 24stundir/Halldór
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.