24 stundir - 17.05.2008, Blaðsíða 20

24 stundir - 17.05.2008, Blaðsíða 20
 Minnihlutinn er gjarnan áhrifalaus samkvæmt íslenskum skilningi á lýðræði, segir Gunnar Helgi Kristinsson  Tiltrú á stjórnmálamönnum fer minnkandi  Stuðningur við lýðræði en vonbrigði með ýmsar niðurstöður þess Gunnar Helgi „Við Ís- lendingar höfum haft svolítið tréhestalegan skilning á lýðræðinu.“ 24stundir/Ómar „Ég held að við Íslendingar höf- um haft svolítið tréhestalegan skiln- ing á lýðræðinu. Hann gengur út á að við þegnar þjóðfélagsins höfum rétt til að ákveða sumt, við gerum það gjarnan með atkvæða- greiðslum, en veitum minnihlutan- um fá tækifæri til að hafa áhrif,“ segir Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði við Há- skóla Íslands. Gunnar hélt í gær fyrirlestur um lýðræðishugtakið á ráðstefnu um lýðræði í sveitarfélögum. „Það sem ég vildi gera með þessum fyrirlestri var að opna umræðu um það að við Íslendingar ættum kannski að skilja lýðræðið aðeins sveigjanlegri og víðtækari skilningi.“ Áhyggjur af lýðræðinu „Fólk hefur áhyggjur af lýðræði víða um heim. Það virðist vera sem trú fólks á stjórnmálamönnun fari minnkandi og kosningaþátttaka minnki. Á sama tíma er stuðningur við lýðræði almennur, m.a.s. í heimshlutum þar sem ekki ríkir lýðræði. Það er sem sagt almennur stuðningur við lýðræði, en von- brigði með ýmsar af niðurstöðum þess. Það er ekki ólíklegt að ástæða þessa sé að við meinum ólíka hluti með hugtakinu lýðræði.“ Gunnar gerir ekki ráð fyrir að all- ir verði nokkurn tímann sammála um hvernig skilja beri lýðræðið. En með því að kryfja hugtakið megi a.m.k. öðlast samræðugrundvöll og betri skilning á ágreiningnum. Hann segir gagnlegt í því samhengi að velta fyrir sér hverjar þær lyk- ilspurningar sem lýðræðiskenning- ar þurfi að svara séu. Þær spurn- ingar telur hann vera fjórar. Hverjir taka þátt í lýðræðinu? „Í fyrsta lagi þurfa þær að geta svarað því hverjir eigi aðild að lýð- ræðislegum ákvörðunum; þ.e. hverjir eigi réttmæta kröfu á því að taka þátt. Lýðræðiskenningar svara því annars vegar á þrengjandi hátt og hins vegar á víkkandi. Sumar kenningar loka töluvert á ákveðna hópa og ganga út á að það séu fyrst og fremst þeir sem hafa náð ákveðnum aldri og hafa varanlega búsetu á tilteknu svæði sem eigi rétt til þátttöku. En heimurinn er orðinn svo flók- inn og samtvinnaður að það er kannski ekki hægt að ætlast til þess að bara þessi hópur hafi áhrif á það sem gerist í hverri einingu. Þess vegna telja aðrir að við þurfum að skilja lýðræðishugtakið víðari skiln- ingi; við verðum að taka tillit til þess að það eru önnur sveitarfélög þarna úti, önnur ríki, og það eru alþjóða- samtök og fyrirtæki sem við þurfum kannski að hlusta á.“ Slíkir aðilar taka ekki endilega þátt í lýðræðinu með því að kjósa, segir Gunnar, heldur frekar í gegn- um samræðu. Sem dæmi þurfi að velta þessari spurningu upp þegar sveitarstjórnir taka ákvarðanir sem varða landið allt: „Er það t.d. bara mál Hafnfirð- inga hvort þeir heimila skipulag sem leyfir stækkun álvers, eða skulda þeir afganginum af landinu rökræðu um það?“ Leiðin að niðurstöðu Önnur spurningin sem lýðræð- iskenningar þurfa að sögn Gunnars að svara, er hvernig við komumst að lýðræðislegri niðurstöðu um mál þar sem hagsmunir eru ólíkir og ósamrýmanlegir. „Það má segja að lýðræðiskenn- ingar hafi tvenns konar viðhorf til þessa. Annars vegar eru það þeir sem segja að opinber stefnumótun eigi að endurspegla sem best óskir og hagsmuni almennings. Hins vegar eru þeir sem segja að tilgangur lýðræðisins sé fyrst og fremst að koma í veg fyrir misnotk- un á valdi. Það sé óraunhæft að ætla að taka tillit til hinna ólíku óska, en það sé mikilvægt að ábyrgð stjórn- valda sé skýr.“ Samkvæmt síðara viðhorfinu er ekkert ólýðræðislegt við það að lýð- ræðislega kjörnir fulltrúar taki ákvarðanir sem kjósendur eru al- mennt á móti. Það sé hins vegar kjósenda að gera upp við sig á kjör- dag hvort hinar óvinsælu ákvarð- anir veiti tilefni til að skipta um valdhafa. Hvaða undirbúning þarf til? „Þriðja spurningin fjallar um hvers konar undirbúning ákvarðan- ir þurfi til þess að geta talist lýðræð- islegar. Er nóg að einfaldlega boða til kosninga, eða þurfum við að leggja vinnu í að þróa valkosti, miðla upplýsingum og eiga rök- ræðu um þá?“ Enn eru tvær leiðir til að svara þessari spurningu. Annars vegar eru það þeir sem aðhyllast það sem Gunnar kallar skynsemiskenningar. Þeir svara því til að almenningur skilji hagsmuni sína, það sé ólíklegt að hann skipti um skoðun við rök- ræðu um kosti og leiðir, og því sé nóg að boða til kosninga um ákvörðun til þess að hún teljist lýð- ræðisleg. „Hins vegar er sú skoðun að kosningar séu ófullkominn mekan- ismi og það þurfi að ræða hvaða kostir komi til greina og upplýsta umræðu áður en gengið er til kosn- inga.“ Staða minnihluta Fjórða spurningin sem Gunnar segir að lýðræðiskenningar þurfi að svara er hvaða stöðu og rétt minni- hlutinn hefur. „Viljum við að sá sem hefur tapað máli geti haldið því áfram, kært það, skotið því til ann- ars stjórnstigs eða framkallað al- menna atkvæðagreiðslu? Eða viljum við að málinu sé einfaldlega lokið þegar t.d. niðurstaða fæst á þingi? Það eru tvær skoðanir á þessu. Annars vegar sú skoðun að það eigi að vera ótvíræð forysta sem stendur ábyrg gjörða sinna í kosningum. Hins vegar er sú skoðun að minni- hlutar eigi að geta haft úrræði af ýmsu tagi og áhrif.“ Meira vald til sveitarfélaga Gunnar segist telja að sveitar- félögin muni taka að sér fleiri verk- efni í framtíðinni. „Þróunin virðist vera í þá átt, og ég held að það sé skynsamleg þróun að sveitarfélögin, sem eru nær vettvanginum, taki fleiri ákvarðanir. Ég held þó ekki að almenn atkvæðagreiðsla sé svarið við ákallinu um meira lýðræði. Því það eru margir aðrir hlutir sem þarf að styrkja; t.d. sú tegund af umræðu sem þarf að fara fram áður en ákvörðun er tekin til að hægt sé að kalla hana lýðræðislega. Einnig þarf að fara fram umræða um hver rétt- indi minnihlutans séu. Að þessum hlutum þurfum við að huga, frekar en endilega að hugsa alltaf um taln- ingu hausa.“ Íslendingar með þröngan skilning á lýðræðishugtakinu FRÉTTAVIÐTAL ➤ Hverjir eiga rétt á þátttöku ílýðræðislegu ferli? ➤ Hvernig sættum við ósam-rýmanlegar óskir? ➤ Hvað þarf að eiga sér stað fyr-ir kosningar? ➤ Hvaða rétt hefur minnihlut-inn? SPURNINGARNAR FJÓRAR Hlynur Orri Stefánsson hlynur@24stundir.is 20 LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2008 24stundir Umsóknarfrestur er til 30. maí Kynntu þér námið á www.hr.is Á H U G A V E R T N Á M – S T E R K A R I S T A Ð A – A U K I N F Æ R N I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.