24 stundir - 17.05.2008, Blaðsíða 15
24stundir LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2008 15
Í Evrópusamstarfi er Ísland í sér-
flokki þegar kemur að hlýðni við
regluverk Evrópusambandsins.
Meðan ESB og ESA-stofnunin gáfu
út liðlega 1300 kærur á hendur að-
ildarlöndum var aðeins einni stefnt
að Íslandi en 184 að Frakklandi svo
dæmi sé tekið. Um þetta má lesa í
skýrslu Evrópunefndar forsætis-
ráðuneytis sem út kom á síðasta ári
en þar lögðu saman krafta sína
fulltrúar allra stjórnmálaflokka.
Niðurstaðan er athyglisverð í ljósi
þess hvernig núverandi ríkisstjórn
notar Evrópureglur sem skálkaskjól
fyrir reglugerðarfargan sem hún
leggur á margar atvinnugreinar.
Frægust að endemum er deilan um
hvíldartíma ökumanna. Heldur
minni athygli hlaut vinnutímatil-
skipun hjúkrunarfræðinga sem
vakti þó upp mikla andstöðu í
þeirri stétt. Þegar deilan á sjúkra-
húsunum var komin í hnút hjó
heilbrigðisráðherra svo á allt saman
með því að setja Evrópureglurnar í
pappírstætarann vitandi að vita-
skuld megum við óþekktast gagn-
vart Brusselvaldinu eins og aðrir.
Annað dæmi um fáránleika hinnar
miklu löghlýðni Íslendinga er út-
skipti Grímseyjarferjunnar. Ástæða
þess að leggja varð gamla Sæfara var
ekki óánægja Grímseyinga með
skipið heldur að nokkrir ráðuneyt-
ismenn höfðu fundið út að ferjan
myndi innan tiltekins árafjölda
hætta að uppfylla skilyrði ESB. Um-
talað var að þá fóru starfsmenn og
verktakar ríkisins að leita að skipi
erlendis. Á Írlandi spurðu þessir Ís-
lendingar þarlenda hvort ferjur sem
falar voru myndu nú uppfylla Evr-
ópustaðla. Svörin voru þau að Ír-
arnir sem eru þó í ESB hefðu aldrei
leitt hugann að slíku og ætluðu sér
ekki að gera. En Íslendingar voru
hér eins og englabörn að leita uppi
hvað hægt væri að gera til að þókn-
ast reglugerðarverksmiðjunni
miklu. Í þessu tilviki kostaði þessi
sérstæða samviskusemi landsmenn
hundruð milljóna og ómæld leið-
indi. Og þess í millum eru ESB–
reglur notaðar sem grýla á launþega
eins og í deilu við hjúkrunarfræð-
inga eða skálkaskjól þegar kemur að
eðlilegu viðhaldi á skipalyftu í Vest-
mannaeyjum. Fyrir nokkrum árum
var innleitt að bændur yrðu vegna
Evrópureglna að merkja öll sín
lömb með sérstöku Íslandsmerki
svo að þau rugluðust ekki saman
við búpening Evrópumanna. Síðan
stendur ISLAND í öðru hverju
lambseyra. Á ferðalagi um Frakk-
land gat ég ekki betur séð en vinir
mínir sem stunda þar sauðfjárbú-
skap séu lausir undan sambærilegri
vitleysu og eru þó meiri líkur á að
frönsk kind þvælist yfir til Spánar
heldur en að sú íslenska syndi yfir
til Íra. Kannski erum við bara óhæf-
ir í Evrópusamstarfi vegna minni-
máttakendar gagnvart útlendu
regluverki. Á ástandsárunum voru
það heimasætur sem fengu í hnén
gagnvart dátum, nú eru það
möppudýrin og tæknikratarnir á
landinu kalda. Og vitaskuld eru það
barnalegar viðbárur að Íslending-
um sé nauðugur sá kostur að inn-
leiða hinn forkostulega landbúnað-
arbálk ESB. Sennilegra er að hluti
þeirra stjórnmálamanna sem halda
því fram geri það gegn betri vitund.
Allt tal um að fisksöluhagsmunum
okkar sé ógnað er ósennilegt ef ekki
hrein fjarstæða við ríkjandi aðstæð-
ur þar sem eftirspurn eftir okkar af-
urðum er meiri en nokkru sinni.
Ógnin í þessu máli er sú að hér
verði fluttir inn áður óþekktir dýra-
og mannasjúkdómar því vitaskuld
er ófrosið kjöt afar líklegt til sýk-
inga. Ef menn vilja galopna á inn-
flutning landbúnaðarafurða einir
þjóða og drepa af sér innlenda
framleiðslu þá eiga þeir að hafa
heiðarleika til að viðurkenna það
sem sína skoðun en ekki kenna út-
lendingum um. En það er von að
menn hiki því þetta er frekar skrýtin
skoðun nú þegar kreppir að mat-
vælaframleiðslu í heiminum og
horfir í ofanálag í atvinnuleysi hér
heima. Málið snýst ekki bara um
hagsmuni bænda því bara á Reykja-
víkursvæðinu munu tapast álíka
mörg störf og eru í álverinu í
Straumsvík. Og það hefur þótt
muna um minna.
Höfundur er alþingismaður og bóksali
Af hráu keti, Grýlu og
englabörnum ESB
VIÐHORF aBjarni Harðarson
Málið snýst
ekki bara um
hagsmuni
bænda því
bara á
Reykjavík-
ursvæðinu
munu tapast álíka mörg
störf og eru í álverinu í
Straumsvík.
að stjórnmálamaðurinn komist til vits. Það gangi ekki
að ráðherra eða borgarfulltrúi fái hugmynd á leiðinni á
fund og snúi kannske margra ára vinnu á haus, setji af
stað uppstokkun á vinnustöðum og þjónustu og
heimti niðurstöðu eftir þrjár vikur.
Flestar opinberar stofnanir sinna þjónustu við al-
menning. Reynt er að tryggja góða og gegnsæja stjórn-
sýslu með lögum og reglugerðum. Fólkið hefur hins
vegar enga trú á því að stjórnsýslan sé góð. Sérstaklega
ekki í Reykjavík. NN á ríkisstofnun telur að mikið ein-
elti hafi blossað upp gegn núverandi borgarstjórn. Það
sé langt frá því að uppákomur í borgarstjórn séu allar
stjórnsýsluleg einsdæmi. Fúsk og misbeiting valds sé á
ábyrgð allra flokka sem komist hafi að kjötkötlunum.
„Margur skandallinn kemst aldrei í hámæli og þótt
þeir fréttist þá verður ekki úr þeim einelti eins og í
Reykjavík núna,“ segir þessi NN, sem telur fjölmiðla
vera undir hælnum ekki síður en embættismenn.
Skyldurnar eru við almenning
„Mér finnst að embættismenn eigi fyrst og fremst að
stjórna sinni stofnun eftir bestu vitund og segja sína
meiningu, “ segir Áslaug Brynjólfsdóttir, fyrrverandi
fræðslustjóri í Reykjavík. Hún hefur öðruvísi sýn á
hlutverk embættismannsins en margir sem rætt var
við. „Það hlýtur að vera óskaplega asnalegt og erfitt að
vera embættismaður í borginni núna,“ segir Áslaug.
Henni finnst ekki að embættismenn eigi að þegja ef
þeim ofbýður. Áslaug bendir á Magnús Pétursson, for-
stjóra Landspítalans, sem lýsti afstöðu sinni áður en
hann hætti. En einstigi kerfisins er vandratað. Hér
kvarta embættismenn, en stjórnmálamenn geta líka
kvartað yfir einþykkum embættismönnum sem taka
sjálfir pólitískar ákvarðanir og sigla gegn ríkjandi
stefnu.
beva@24stundir.is
aBjörg Eva Erlendsdóttir
Embættismenn hafa nokkr-
ar leiðir til að láta ekki
ráðskast með sig. Taki
stjórnmálamaðurinn ekki
rökum eða skilji ekki
dæmið, lenda mál gjarnan
í hægagangi og bið eftir
því að hann komist til vits.
*** Örfá herbergi - síðustu sætin ***
Heimsferðir bjóða nú frábært sértilboð í viku á Grand
Hotel ****+ með hálfu fæði. Grand Hotel er glæsilegt
hótel í hjarta Rhodosborgar. Á hótelinu er mjög fín
aðstaða, nokkrir veitingastaðir, barir, flottur
sundlaugargarður og barnalaug, líkamsræktaraðstaða
og sauna svo eitthvað sé nefnt. Herbergin eru öll vel
útbúin með sjónvarpi,síma, öryggishólfi, ísskáp og
baðherbergi með hárþurrku. Svalir eða verönd eru á
öllum herbergjum.
Frábær valkostur sem býður
góðan aðbúnað fyrir
hótelgesti. Njóttu lífsins í
fríinu á eyju sólarinnar. Ath.
Mjög takmarkaður fjöldi
herbergja í boði á þessu
ótrúlega verði.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Rhodos
7. júní
frá kr. 69.990 með hálfu fæði
Verð kr. 69.990
hálft fæði
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli
með hálfu fæði á hótelherbergi á Grand
Hotel ****+ í viku, 7. júní. Aukagjald fyrir
sjávarsýn er kr. 7.000 á mann.
Ótrúlegt sértilboð!
Glæsileg gisting
****
M
b
l 1
0
0
6
3
0
8
+
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson