24 stundir - 17.05.2008, Page 9

24 stundir - 17.05.2008, Page 9
Að okkur hlúir vel menntað og sérhæft heilbrigðisstarfsfólk sem býr yfir þekkingu og færni til heilsueflingar, lækninga og líknar. Traustur aðgangur að góðum lyfjum á ríkan þátt í að gera okkur kleift að búa við það heilsufarslega öryggi sem við þekkjum og teljum sjálfsagt hér á Vesturlöndum. Framfarir á sviði læknavísinda hafa verið samtvinnaðar öllum þeim merku áföngum sem náðst hafa í lyfjavísindum. Víst má telja að lyf komi við sögu í flestum þeim tilvikum sem sjúklingur þarf á læknisaðstoð að halda og nær bata. Öll helstu lyf sem við þekkjum urðu til á síðustu öld og nú á 21. öldinni er þekking á sviði lífvísinda að opna nýjar dyr að betri og markvissari meðferð sjúkdóma og forvörnum gegn þeim. Lyf skipta sköpum! Lífsgæði okkar felast einna helst í þeirri öflugu heilsuvernd sem við njótum. Það er á þessum vettvangi sem frumlyfjafyrirtækin starfa. E F L IR a lm a n n a te n g s l / H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.