24 stundir - 17.05.2008, Side 24
24 LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2008 24stundir
Málflutningur í Baugsmálinu
fyrir Hæstarétti fór fram í liðinni
viku. 24 stundir hafa undir hönd-
um ýmis gögn málsins svo sem yf-
irheyrslur hjá ríkislögreglustjóra,
tölvupóstssamskipti sakborninga
og útskriftir á málum fyrir erlend-
um dómstólum. Í þessari síðustu
grein um Baugsmálið eru reifuð
aðalatriði þriðja, fjórða og fimmta
kafla ákærunnar í þessu stærsta
dómsmáli Íslandssögunnar.
Þriðji kafli ákæru
Þriðji kafli ákærunnar í Baugs-
málinu snýr að Jóni Ásgeiri Jó-
hannessyni og Tryggva Jónssyni.
Þar eru þeim gefin að sök meiri-
háttar bókhaldsbrot, rangfærsla
skjala og brot gegn lögum um
hlutafélög.
Þá er Jón Gerald Sullenberger
ákærður í einum liðnum fyrir að
hafa aðstoðað þá Tryggva og Jón
Ásgeir við að falsa reikning.
Ákæruliðirnir í þessum kafla eru
sjö talsins og eru númer tíu til sex-
tán í ákærunni. Í ákærunni er Jóni
Ásgeiri meðal annars gefið að sök
að hafa „vísvitandi og í blekking-
arskyni“ skýrt rangt frá högum
Baugs hf. og skapað rangar hug-
myndir um hag félagsins. Þetta er í
ákærunni talið hafa gefið ranga
mynd af hagnaði félagsins og stöðu
eiginfjár þess.
Meiriháttar bókahaldsbrot
Meðal þeirra bókhaldsbrota sem
Jóni Ásgeiri er gefið að sök að hafa
framið er að hafa selt Fjárfari, félagi
sem hann átti hlut í, stjórnaði og
réði yfir, hlutafé Baugs í Baugi.net
fyrir 2,5 milljónir að nafnverði.
Fyrir það greiddi Baugur 50 millj-
ónir króna. Fjárfar greiddi hins
vegar ekki fyrir hlutaféð heldur var
upphæðin færð á viðskiptamanna-
reikning Fjárfars. Í kjölfarið fylgdu
ýmsar færslur í bókhaldi Baugs
vegna þessa sem lauk með eign-
arfærslu 28. febrúar 2002.
Þá eru þeir Jón Ásgeir og Tryggvi
sagðir hafa látið búa til ýmis gögn
sem áttu sér ekki stoð í viðskiptum
með því að mynda tilhæfulausa 25
milljóna króna skuld á viðskipta-
mannareikningi Kaupþings sem
síðan var tækjufærð í bókhaldi
Baugs.
Tryggva er einnig gefið að sök að
hafa, með vitneskju og vilja Jóns
Ásgeirs, fært rúmlega 13 milljónir
til eignar á viðskiptamannareikn-
ingi Kaupþings í bókhaldi Baugs
sem síðar var bakfært. Í ákærulið
þrettán er þeim Jóni Ásgeiri og
Tryggva gefið að sök að hafa fært til
tekna hjá Baugi 40 milljónir. Færsl-
urnar byggðu á tveimur reikning-
um sem 10-11, sem þá var deild í
Baugi, gaf út á hendur Gaumi.
Reikningarnir voru ógreiddir þegar
húsleit fór fram í höfuðstöðvum
Baugs 28. ágúst 2002.
Þeir Jón Ásgeir og Tryggvi eru
einnig sakaðir um að hafa rangfært
bókhald Baugs með þremur til-
hæfulausum færslum sem hafi bú-
ið til hagnað upp á tæplega 165
milljónir á árinu 2000 og búið til
skuld í bókhaldinu á árinu 2001
upp á um 212 milljónir. Þessar
færslur voru leiðréttar á árinu
2003.
Jón Gerald og SMS
Ákæruliður fimmtán snýst um
að Tryggva og Jóni Ásgeiri er gefið
að sök að hafa fært til eignar í bók-
haldi Baugs og til tekna hjá Baugi
tæplega 62 milljóna króna reikning
sem lækkuð vörukaup á grundvelli
tilhæfulauss og rangs reiknings
sem fyrirtæki Jóns Geralds Sullen-
berger, Nordica, gaf út. Jón Gerald
er einnig ákærður í þessum lið fyrir
að hafa aðstoðað þá við þessa
gjörð. Í ákærulið sextán eru
Tryggvi og Jón Ásgeir sakaðir um
að hafa fært til eignar í bókhaldi
Baugs og til tekna hjá Baugi um
46,7 milljónir á grundvelli yfirlýs-
ingar frá P/F SMS í Færeyjum sem
hafi verið útbúin að frumkvæði
þeirra og þeir vitað að átti sér ekki
stoð í viðskiptum aðilanna.
Fjórði kafli ákærunnar
Tryggvi er sagður hafa látið færa,
með vitneskju og vilja Jóns Ásgeirs,
sölu á hlutabréfum Baugs í sjálfum
sér til Kaupþings. Bréfin voru í
raun afhent Kaupthingi Luxem-
bourg til varðveislu á vörslureikn-
ingi sem Baugur átti þar. Þeir eru
síðan taldir hafa ráðstafað bréfun-
um og andvirði þeirra til greiðslu
ýmissa fjárskuldbindinga sem
tengdust Baugi, þar á meðal til
nokkurra af æðstu stjórnendum fé-
lagsins, án þess að slíks væri getið í
bókhaldi Baugs.
Fimmti kafli ákærunnar
Síðasti kafli ákærunnar fjallar
meðal annars um þann fjárdrátt
sem Tryggvi og Jón Ásgeir áttu að
hafa stundað vegna snekkjunnar
Thee Viking, en þeim er gefið að
sök að hafa dregið rúmlega 32
milljónir frá Baugi til Gaums til að
fjármagna eignarhlut Gaums í
Thee Viking. Þá er Tryggvi einnig
sakaður um fjárdrátt með því að
hafa dregið að sér 1,3 milljónir.
Þetta á hann að hafa gert með því
að láta Baug greiða Nordica, fyr-
irtæki Jóns Geralds, þrettán reikn-
inga sem gefnir voru út vegna per-
sónulegra útgjalda Tryggva.
Úttektirnar voru meðal annars
vegna verslunar í tónlistarverslun,
tískuvöruverslun, golfverslunum,
skemmtigarði, veitingastöðum og
vegna kaupa á sláttuvél. Reikning-
arnir voru færðir inn sem ferða-
kostnaður eða tæknileg aðstoð.
Dómar í Héraðsdómi
Í héraðsdómi var Tryggvi
dæmdur í alls tólf mánaða skil-
orðsbundið fangelsi. Þar var hann
fundinn sekur um brot sem vörð-
uðu reikninga frá Nordica og SMS
í Færeyjum og bókhaldsbrot við
sölu hlutabréfa auk þess sem hann
var fundinn sekur um fjárdrátt.
Jón Ásgeir var fundinn sekur um
að hafa látið gefa út tilhæfulausan
reikning frá Nordica og hlaut
þriggja mánaða skilorðsbundinn
fangelsisdóm.
Jón Gerald var síðan dæmdur til
sömu refsingar og Jón Ásgeir fyrir
að hafa aðstoðað við gerð hins til-
hæfulausa reiknings.
Fjárdráttur, röng skjöl
og bókhaldsbrot
Vörnin Lögmenn sakborn-
inga í Baugsmálinu við
málsmeðferð í Héraðsdómi.
FRÉTTASKÝRING
a
Síðasti kafli ákær-
unnar fjallar meðal
annars um fjárdrátt sem
Tryggvi og Jón Ásgeir
áttu að hafa stundað
vegna snekkjunnar Thee
Viking.
Hæstiréttur Málflutn-
ingur fór fram í vikunni.
Þórður Snær
Júlíusson
thordur@24stundir.is
Síðustu kaflar ákæru í Baugsmálinu snúa meðal annars að meintum bókhaldsbrotum,
rangfærslu skjala og fjárdrætti Eignarhald á Thee Viking meðal þess sem fjallað er um
Tölvupóstar úr gögnum sem
skv. gögnum ríkislög-
reglustjóra fundust í tölvu
Tryggva Jónssonar. Verj-
endur hafa haldið því fram
að póstarnir séu falsaðir.
● 23. 01.2001
Heiti: RE: Innborgun í A
holding SA
Frá: Lindu Jóhannesdóttur
(fjármálastjóra Baugs)
Til: Tryggva Jónssonar
Sæll TJ, ég skil ekki þessi
skilaboð. JÁJ talar um að greiða
þurfi um 150 milljónir á föstu-
dag og hann muni reyna að
redda þeim fjármunum. 3,1
millj. punda er ca. 380 millj-
ónir. Eru þetta ekki sömu bréf-
in og við keyptum og ætluðum
að framselja til Lúx? Það sem
við keyptum er einmitt 3,1
millj. punda og skuld ca. 310
milljónir á gjalddaga 1/2/01.
Ég verð að hryggja þig með
því að sjóður okkar er sprung-
inn og þá meina ég að ég get
ekkert gert, eins valdalaus og ég
er. Staðan er svona: skaamm-
tímalán til 2/2= 1,050 milljónir.
Áætluð staða í lok mánaðar á
heftinu = -470 milljónir (heim-
ild er 380) Skuld v/Arcadia á
gjalddaga 1/2 = -310 milljónir
Áætluð staða þann 2/2, þegar
skammtímalán eru greidd, mun
sjóður okkar vera -700 millj-
ónir og enda í -1200 milljónum
í lok febrúar! ! !
Nú er það svart, litla stúlkan
með eldspýturnar.
● 24.01.2001
Heiti: With a little help from
friends.
Frá: Jóni Ásgeiri Jóhannessyni
Til: Tryggva Jónssonar og
Kristínar Jóhannesdóttur
Sæll. Ljóst að við verðum að
fá hjálp frá Gaumi til að koma
uppgjöri í rétt horf.
45 milljóna reikningur verð-
ur sendir á á Gaum
10 milljónir ferða kostnaður
25 milljónir tölvuþjónusta
10 milljónir annar óskil-
greindur kostnaður
Gaumur færir þetta á eigna-
lykil 25 mills rest gjaldfært.
Gaumur greiðir þetta þegar
Baugur kaupir bréf af Gaumi í
Arcadia einnig gerir þá Gaumur
upp viðskiptareikning skulda-
bréf hjá bónus og önnur smá
mál.
Baugur
Þarf að klára
Viðurkenningu á yfirtöku á
50 mills í Gildingu ásamt yf-
irtöku á þjónustulóð, þá þarf
Baugur að taka 41 milljón
skuldabréf af Eignarhaldsfélag-
inu ISP vegna kaupa á hlut F í
aukningu þetta á að vera leikur
TÖLVUPÓSTAR