24 stundir - 17.05.2008, Page 46
46 LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2008 24stundir
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur
hilduredda@24stundir.is
Á síðunni má lesa fjöldann allan af
ábendingum sem hann hefur feng-
ið sendar frá almenningi um ok-
urverð á vörum og þjónustu fyr-
irtækja. „Svo eru líka ábendingar
um hagstætt verð þó svo að þær séu
reyndar í minnihluta. Allar ábend-
ingar eru settar í flokka og þær já-
kvæðu eru merktar með appelsínu-
gulum lit. Reyndar má segja að
þetta sé frekar óneytendavæn síða
þar sem formið á henni er mjög
einfalt, enda kann ég ekkert á nein
svona flott umbrots- og vefforrit,“
segir Dr. Gunni. Það stendur þó
ekki til að gera neinar veigamiklar
breytingar á síðunni á næstunni.
„Ég get ekki staðið í því á meðan ég
er í fullu starfi við annað og ég ætla
að halda henni áfram óbreyttri, eða
allavega þar til annað kemur í ljós.“
Tekinn í bakaríið
Hver er ástæða þess að þú ákvaðst
að stofna þessa síðu?
„Hún er einföld. Ég hafði verið
tekinn svo illa í bakaríið að undan
sveið og ég hafði ekki áhuga á að
endurtaka þann leik. Og í staðinn
fyrir að setja inn dæmi á bloggsíð-
una og láta þau týnast þar ákvað ég
að setja þetta á sérsíðu og leyfa fólki
að senda inn ábendingar. Yfirleitt
set ég þær bara inn nákvæmlega
eins og þær voru skrifaðar og það
skín alveg í gegn að það er alls kon-
ar fólk sem skrifar. Ég vil ekki rit-
skoða þetta allt of mikið þótt ég lagi
stundum stafsetningarvillur og
mildi einstaka sinnum orðalagið ef
það er mjög gróft. Sem dæmi má
nefna að það er betra að vera tekinn
í bakaríi heldur en einhvers staðar
annars staðar.“
Skemmtilegt nöldur
Hann viðurkennir að margt af
því sem fram komi á síðunni megi
flokkast sem hreint og klárt nöldur
en bætir því við að það komi alls
ekki að sök. „Þrátt fyrir allt eru
þetta afskaplega skemmtileg dæmi
og ég held það hafi vantað svolítið
af slíku hjá þessum helstu neyt-
endafrömuðum. Það er einhvern
veginn allt svo leiðinlegt og stofn-
analegt sem frá þeim kemur og fyrir
vikið nenna kannski færri að spá
mikið í neytendamál. Fyrir þá sem
hafa áhuga á þeim er oft lítið í boði í
fjölmiðlum annað en verðtöflur
sem fólk þarf að rýna í í stað þess að
fá þetta bara svart á hvítu: Þessi búð
er okurbúlla en þessi búð er fín. Þar
fyrir utan getur reitt fólk verið mjög
fyndið og orðheppið.“
Fyrirtæki sem kvartað er undan á
okursíðunni hafa líka stundum
samband. „Þau senda mér stundum
útskýringar og/eða leiðréttingar og
þá bara birti ég það líka,“ segir Dr.
Gunni.
Reynir að vera hagsýnn
Ertu mjög hagsýnn heimilisfaðir
sjálfur?
„Já, svona þokkalega, enda var
ástæðan fyrir því að ég byrjaði með
síðuna sú að á mér hafði verið okr-
að og ég vildi ekki að það endurtæki
sig. Það er þó ekki þar með sagt að
ég horfi í hverja einustu krónu, ég
er ekki alveg kreisí þannig. En ég
hef alltaf verið talsmaður þess að
við Íslendingar ættum að vera dug-
legri að sniðganga dýrustu fyrirtæk-
in og versla frekar við þau ódýrari.
Það segir sig enda sjálft að ef enginn
myndi versla í verstu okurbúllun-
um myndu verslunareigendur sjá
að það borgaði sig að vera sann-
gjarn. Ef þjófur kemst endalaust
upp með að stela er hætt við að
hann haldi því áfram. Þess vegna
finnst mér mikilvægt að fyrirtækj-
um eins og Ikea sé hampað fyrir að
halda verðlaginu í hófi á meðan
aðrir voru að hækka og að fólk
beini viðskiptum sínum frekar til
þeirra.“
Aðspurður segir hann áhuga
sinn á neytendamálum hafa kvikn-
að snemma. „Ég held ég hafi alltaf
verið frekar neytendasinnaður enda
hefur mér alltaf fundist gaman að
fara í búðir, ekki síst erlendis þar
sem ég skoða hvað er í boði og
smakka eitthvað nýtt. Því meira
sem maður sér erlendis kemst mað-
ur alltaf betur að því að Ísland kem-
ur ekkert æðislega vel út í saman-
burðinum, hvorki í sambandi við
verð né vöruúrval. Ef til vill eru al-
veg eðlilegar skýringar á því að
grænmeti og ávextir eru ekki alltaf
mjög ferskir í búðunum hérna, en
miðað við að við erum fiskveiði-
þjóð þá skýtur skökku við hvað úr-
valið í fiskborðunum er oft lítið. Í
pínulitlum matvöruverslunum á
Spáni er úrvalið oftast betra en í
stærstu búðunum hér. Svo er alltaf
verið að útskýra hátt matarverð hér
á þá leið að hér sé fólk með svo hátt
kaup að það sé eðlilegt. En ég held
að það sé búið að gera alveg nógu
mikið af könnunum sem leiða í ljós
að Ísland sé dýrasta land í heimi,
Reykjavík sé dýrasta borg í heimi,
við skuldum langmest af öllum og
svo framvegis, sem sýna að ýmislegt
þurfi að breytast.“
Hefur heimsóknum á síðuna þína
fjölgað mikið eftir að þú fékkst neyt-
endaverðlaunin?
„Já, mjög mikið. Á meðan athygli
fjölmiðla er á þessu er síðan auðvit-
að mjög vel sótt og svona síður eru
að sama skapi fljótar að missa niður
heimsóknartíðnina þegar kastljósið
beinist eitthvað annað. Svo þegar
Ísland verður fyrirmyndarríki verð-
ur þessi síða náttúrlega orðin
óþörf.“
Heldurðu að það verði einhvern
tímann?
„Já, eigum við ekki að segja það
bara? Það er auðvitað endanlegt
markmið.“
Poppspekingur
Undanfarna tvo laugardaga hef-
ur Ríkissjónvarpið sýnt þáttinn Alla
leið þar sem Dr. Gunni, hefur verið
einn af þremur álitsgjöfum um lög-
in 43 sem keppa í Eurovision-
keppninni í ár. Páll Óskar Hjálm-
týsson er stjórnandi þáttanna og
verður sá síðasti sýndur í kvöld.
Spurður hvort hann gangist fúslega
við því að vera Eurovision-speking-
ur segir Dr. Gunni það nokkuð
frjálslegan titil. „Ég hef skrifað um
þessa keppni í fjölmiðlum undan-
farin tvö, þrjú ár og í fyrra og núna í
ár tók ég þátt sem lagahöfundur.
Áður fyrr hafði ég eiginlega ekki
aðra skoðun á þessari keppni en þá
að hún væri ömurleg og flest lögin
leiðinleg. Af þessum 43 lögum sem
taka þátt í ár held ég að ég hefði
hlustað á svona þrjú ótilneyddur,
afganginn ekki. En það er vissulega
skárra starf en mörg önnur að
hlusta á leiðinleg lög. Svo er ég mik-
ill poppáhugamaður og þetta er
klárlega popp þótt í misjöfnum
gæðum sé.“
Út frá hverju meturðu lögin og
möguleika þeirra?
„Ég dæmi þau bara eftir mínum
eigin smekk í stað þess að taka með
í reikninginn hvað hvert land á
marga vini og þar fram eftir göt-
unum,“ segir hann. Í þættinum í
kvöld segja álitsgjafarnir hvaða
lönd þeir telja að muni vinna
keppnina í ár og vill Dr. Gunni því
ekki gefa upp sitt mat fyrirfram.
Fyrsta lagið sem fjallað var um var
að sjálfsögðu íslenska lagið og voru
allir sammála um að það myndi
komast upp úr forkeppninni.
„Maður hefði auðvitað aldrei farið
að segja neitt annað, enda hefði
svartsýni alveg eyðilagt stemn-
inguna í þáttunum. En ég hef satt
að segja ekki hugmynd um hvernig
þetta fer og mér virðist sem Íslend-
ingar séu almennt komnir frekar
mikið niður á jörðina. Við erum
búin að vera föst í þessari undan-
keppni frá árinu 2004 þannig að ef
lagið kemst áfram núna býst ég við
að það muni koma mörgum á
óvart,“ segir hann. Að þessu sinni
verður hann sjálfur á staðnum þar
sem hann verður fréttaritari Frétta-
blaðsins í Serbíu. „Ég hef aldrei far-
ið áður og er því mjög spenntur.
Mér skilst að þetta sé alveg gríð-
arlega skrautlegt og minni um
Ættum að beina viðskiptunum
til hinna sanngjörnu
Tónlistarmaðurinn Gunn-
ar Hjálmarsson, betur
þekktur sem Dr. Gunni,
tók við Íslensku neyt-
endaverðlaununum fyrr í
vikunni en þau hlaut
hann fyrir hina afar vin-
sælu Okursíðu sem hann
hefur haldið úti und-
anfarna átta mánuði.
a
Þrátt fyrir allt
eru þetta af-
skaplega
skemmtileg dæmi og ég
held það hafi vantað svo-
lítið af slíku hjá þessum
helstu neytendafröm-
uðum.
Dr. Gunni „Hef alltaf verið
neytendasinnaður.“