24 stundir - 17.05.2008, Side 47
margt á Hinsegin daga þar sem
mikill fjöldi homma kemur jafnan
saman þar sem Eurovision-keppnin
er haldin hverju sinni. Ekki svo að
skilja að ég sé neitt hræddur við
homma, þetta verður örugglega
bara gaman.“
Verður þetta mikil vinna?
„Já, þetta verður örugglega
hörkupúl. Ég mun þurfa að eltast
við Friðrik Ómar og Regínu Ósk í
heila viku þannig að það er eins gott
að maður er búinn að vera dugleg-
ur í ræktinni,“ segir Dr. Gunni en
viðtalið var einmitt tekið í World
Class í Laugum þar sem hann var
nýkominn úr spinningtíma.
Flipp með Dr. Spock
Á síðasta ári keppti hann í for-
keppni Eurovision með laginu Ég
og heilinn minn í flutningi Ragn-
heiðar Eiríksdóttur og þó svo að
það hafi ekki borið sigur úr býtum
náði það nokkrum vinsældum.
„Enda var þetta gott lag,“ segir
hann. „Ég ætlaði ekki að senda ann-
að lag í forkeppnina í ár en var beð-
inn um það þannig að ég lét til leið-
ast. Fyrst prófaði ég að senda
dæmigerð popplög en þau skáru sig
engan veginn úr. Þannig að eftir að
lagið Hey hey hey we say ho ho ho
komst áfram sá ég að ég yrði að
koma með eitthvert flipp og hafði
samband við Dr. Spock og fékk þá
til þess að semja með mér lagið
Hvar ertu nú? og flytja það. Það
fékk mikla athygli og í kjölfarið hafa
þeir strákarnir í Dr. Spock fínan
meðbyr fyrir nýju plötuna sína sem
er væntanleg.“
Heldurðu að þú eigir aftur eftir að
taka þátt í forkeppninni?
„Ég efast um að ég eigi eftir að
gera það af sjálfsdáðum en ef ég
verð beðinn um það aftur er alveg
mögulegt að ég muni íhuga það.“
Ný plata á leiðinni
Þessa dagana vinnur Dr. Gunni
að nýrri rokkplötu sem áætlað er að
komi út í sumar. „Hún ber vinnu-
heitið Dr. Gunni með öllum mjalla
og er beint framhald af plötunni
Stóri hvellur sem kom út árið 2002.
Á næsta ári stefni ég að því að gefa
út sérstaka líkamsræktarplötu með
tónlist sem hægt er að svitna við í
40 mínútur,“ segir hann og bætir
því við aðspurður að lögin muni
hugsanlega verða góð fyrir spinn-
ingtímana.
Hvað með barnaplötur? Ætlarðu
að gera fleiri slíkar?
„Í bili er ég ekki í stuði fyrir fleiri
slíkar. Þangað til nýlega var ég í heilt
ár í Hafnarfjarðarleikhúsinu að
sýna söngleikinn Abbabbabb! og
það var mjög gaman og gekk mjög
vel. En núna langar mig að einbeita
mér að því að búa til tónlist fyrir
fullorðna. Það er þó aldrei að vita
með framtíðina, ég er ungur maður
og á nóg eftir.“
Eins og margir vita hefur Dr.
Gunni komið víða við í tónlistinni
og spilað í hinum ýmsu hljómsveit-
um. Af þeim varð popphljómsveit-
in Unun einna þekktust. „Ég byrj-
aði í pönkinu árið 1980 og fór svo
yfir í utangarðsrokkið áður en Un-
un var stofnuð árið 1993,“ segir
hann.
Þegar þú varst í pönkinu og ut-
angarðsrokkinu hefur þig varla órað
fyrir því að þú ættir seinna eftir að
vera titlaður Eurovision-spekingur í
sjónvarpinu?
„Nei, að sjálfsögðu ekki. Til að
byrja með var þetta líka bara ein-
hver hallærislegur svarthvítur sjón-
varpsþáttur sem var sýndur í Rík-
issjónvarpinu einni viku eftir að
keppnin fór fram. Hið sama gilti
um fótboltaleikina, þeir voru líka
sýndir viku eftir á. Það var bara ein
sjónvarpsstöð og ekkert sjónvarp á
fimmtudögum þannig að maður
horfði á þetta allt saman og jafnvel
Húsið á sléttunni líka.“
24stundir/Frikki
Á leið til Serbíu „Hlakka
til að eltast við Friðrik og
Regínu í viku.“
24stundir LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2008 47
Góðgæti á grillið......
grillbrauðið frá Wewalka
er komið í verslanir
_________________________________
Fæst í helstu matvöruverslunum
Umboðsaðili www.godgaeti.is
Auglýsingasíminn er 510 3744