24 stundir - 17.05.2008, Side 62
62 LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2008 24stundir
„Ég hef ekki úr háum söðli að
falla þegar kemur að málfari. En
um mig hríslast aulahrollur við
að hlusta á þá afkáralegu frasa
sem virðast eiga upp pallborðið
hjá íþróttafréttamönnum. Nýj-
asta dæmið er að ekki er lengur
talað um mót, leiki eða keppnir,
heldur verkefni.“
Andrés Jónsson
andres.eyjan.is
„Nú vilja menn hafa það einfalt.
Vélræna veröld. Diggital mann-
eskjur.Guð er vandræðastærð í
svoleiðis heimsmynd og sé pláss
fyrir hann verður hann líka að
vera einfaldur og óflókinn. Fara
vel í vasa - til að hann verði jafn
viðráðanlegur og við viljum hafa
heiminn og manneskjuna.“
Séra Svavar Alfreð Jónsson
svavaralfred.blog.is
„Ég er að lesa Dís. Samt fer hún í
taugarnar á mér, svoldið eins og
að lesa stebbafr. Maður hatar en
getur samt ekki hætt. Ég er alveg
með eye roll í gangi mér finnst
hún svo glötuð eitthvað. Sé þetta
alveg fyrir mér: "æi stelpur við er-
um svo ógisla mikill kaffibar. Og
lýsingarnar á kynlífinu ohhhgh!“
Katrín Atladóttir
katrin.is
BLOGGARINN
Eftir Birgi Örn Steinarsson
biggi@24stundir.is
Eitt af athyglisverðari atriðum
Listahátíðar Reykjavíkur í ár er
sambræðingur kynlífsráðgjafans
Dr. Ruth og „ömmu gjörningalist-
arinnar“ Marinu Abramovic frá
fyrrverandi Júgóslavíu. Gjörningur
þeirra er hluti af Tilrauna-
maraþoni hátíðarinnar og fer fram
á sunnudag í Listasafninu. Eitt-
hvað hefur þeim gengið illa að ná
saman um hvernig verkið eigi að
vera og á föstudag var gjörning-
urinn í uppnámi og þær höfðu náð
litlu sem engu samkomulagi.
„Þetta er í smá uppnámi en það
bara kristallar fegurðina við svona
tilraunamennsku,“ sagði Marina í
gær. „Ég hitti Dr. Ruth fyrst á
fimmtudaginn. Ég kynnti mig og
hugmyndina mína en hún tengdi
sig ekkert við hana. Skildi ekki
hvert ég var að fara. Hugmynd mín
var að við sætum báðar við borð
með stórum rauðum síma sem
hringdi á fimm mínútna fresti. Á
línunni áttu að vera frægir lista-
menn, svo sem Frida Kahlo eða
Kafka, að spyrja hana ráða um
kynlíf sitt. Hún þvertók fyrir þetta
og sagðist ekki hafa neinn áhuga.
Hún sagði að sitt starf væri að leysa
vandamál. Að hún gæti sagt mér
hvaða stelling myndi henta mér
best, og ekkert annað.“
Kynlífstal við ömmu
Marina tekur þó fram að gjörn-
ingalistin verði mikið til í núinu.
Þar sem þær eiga ekki að sýna fyrr
en á sunnudag sé því nægur tími til
stefnu í undirbúning á því litla sem
hægt sé að undirbúa. Marina segist
ætla að fara varlega að henni þar
sem hún sé öldruð sjónvarps-
stjarna, og því eflaust ekki vön svo
opnu umhverfi þar sem mikið sé
um lausa enda. Það er augljóst að
Marina ber mikla virðingu fyrir
Dr. Ruth.
„Þegar ég var ung heillaðist ég af
Dr. Ruth í sjónvarpinu. Dáðist að
því hversu opin hún var varðandi
kynlíf. Þar sýndi hún hvernig ætti
að fróa sér og hvernig ætti að
snerta typpi. Samt er hún pínulítil
kona með austurrískan hreim sem
minnti mig á ömmu. Ég skamm-
aðist mín smá að horfa, því ég gat
ekki ímyndað mér að heyra ömmu
tala um kynlíf. Á mínu heimili var
sneitt framhjá þessu umræðuefni.
Þess vegna fannst mér hún hug-
rökk.“
Ekki gengur allt sem skyldi hjá Dr. Ruth og Marinu Abramovic
Kynlífsgjörningur
í uppnámi
Eitt af atriðum Listahátíð-
ar er sambræðingur kyn-
lífsráðgjafans Dr. Ruth og
listakonunnar Marinu
Abramovic. Þeim hefur
gengið illa að ákveða
hvernig atriðið skuli vera.
Marina leggur sig fram við að ögra.
Marina Hissa á
kynlífsfræðingnum.Dr. Ruth Ekki til í allt.
HEYRST HEFUR …
Gillzenegger ætlar að opinbera sig á hátt sem
hann hefur aldrei gert áður í útvarpsþættinum
Úr plötuskápnum á Rás 2. Þátturinn er í umsjón
Erlu Ragnarsdóttur en í honum fær hún til sín
góða gesti til þess að spila lög í uppáhaldi. Heim-
ildir blaðsins segja að á listanum verði m.a. að
finna lög eftir Celine Dion, Scooter og Guns N’
Roses. bös
Barði Jóhannsson undirbýr nú komu um 40
manna hóps frá Frakklandi og Belgíu í kringum
tónleika Bang Gang og Keren Ann með Sinfóníunni
í næsta mánuði. Þarna mun vera blanda af blaða-
mönnum, bransafólki og aðdáendum er vilja ekki
missa af viðburðinum. Nýja platan er tilbúin og
kemur í búðir hérlendis 28. maí en mánuði síðar í
Evrópu. bös
Skítamóralsmenn anda líklegast léttar í dag en þeir
sáu fram á heljarinnar samkeppni í kvöld um ball-
gesti á Selfossi og nágrenni. Skítamórall spilar í
Hvíta húsinu en Sálin hans Jóns míns átti að vera í
Ölfushöll. Stefán Hilmarsson og félagar neyddust
þó til þess að aflýsa sínu balli þar sem brunavörn-
um var ábótavant í Höllinni. Skítamórall getur því
fagnað með sínu fólki lengst fram eftir kvöldi. bös
„Bærinn mun umturnast. Við
breytum honum í Eurovision-þorp
í næstu viku og það stendur fram-
yfir laugardag,“ segir Dalvíking-
urinn Júlíus Júlíusson en hann og
aðrir íbúar Dalvíkur eru nú í óða-
önn að undirbúa sig undir Euro-
vision-söngvakeppnina sem fram
fer í næstu viku. Friðrik Ómar
Hjörleifsson, annar söngvari Euro-
bandsins, er Dalvíkingur og því
ríkir mikill spenningur í heima-
byggð Friðriks.
Íbúar munu bregða undir sig
betri fætinum í aðdraganda keppn-
innar en meðal annars verða versl-
anir með sérstök Eurovision-
tilboð, börn bæjarins búa til stuðn-
ingsskilti ásamt því að íbúar
Dalvíkur eru hvattir til að kveikja á
ljósaseríum sínum og draga fána
að húni til að fagna.
„Á fimmtudagskvöldinu kom-
um við saman í félagsheimilinu og
horfum á undankeppnina. Það
verður bara í rólegheitunum því
við vitum alveg að okkar maður er
öruggur áfram. Laugardagurinn er
aðaldagurinn.“ Dagur úr-
slitakeppninnar verður nýttur í að
hita upp bæjarbúa fyrir keppni
kvöldsins en um kvöldið verða all-
ar stofur og betri salir bæjarins þétt
setnir af eldheitum stuðnings-
mönnum Eurobandsins.
Hátíðarhöld Dalvíkur einskorð-
ast þó ekki bara við Eurovision því
Dalvíkurbyggð fagnar við sama
tækifæri tíu ára afmæli sínu. „Við
hristum upp í bæjarlífinu, styðjum
Friðrik Ómar og Eurobandið og
fögnum 10 ára afmæli í leiðinni,“
segir Júlíus en hann spáir Íslandi
góðu gengi í söngvakeppninni. vij
Mikil spenna í heimabyggð Friðriks Ómars
Dalvík breytist í
Eurovision-þorp
Bjartsýnn á góðan árangur Júlíus
segir Ísland öruggt í úrslitakeppnina.
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Su doku
5 6 2 7 9 3 8 1 4
4 3 7 5 8 1 6 2 9
8 1 9 2 4 6 7 5 3
3 8 5 9 2 7 1 4 6
2 7 6 8 1 4 9 3 5
9 4 1 6 3 5 2 7 8
1 9 8 3 5 2 4 6 7
6 5 4 1 7 9 3 8 2
7 2 3 4 6 8 5 9 1
Mamma þín hefur aftur komist í vínið.
24FÓLK
folk@24stundir.is a
Nei, reyndar ekki. Ég er í síðkjól og
stífmáluð meira að segja!
Sigríður, fórstu nokkuð í kynskiptaaðgerð?
Dagskrárgerðarkonan Sigríður Pétursdóttir var í gær-
morgun karlkennd sem Sigurður Pétursson af stallsystur
sinni og vinkonu, Önnu Kristínu Jónsdóttur, á Morg-
unvakt Rásar 1.
HAFNAFJARÐARLEIKHÚSINU
SUN 18. MAÍ ÖRFÁ SÆTI LAUS
FÖS 23. MAÍ LAUS SÆTI
SUN 25. MAÍ LAUS SÆTI
AÐEINS SÝND Í MAÍ
TRYGGIÐ YKKUR MIÐA!
Fær hugann til að fljúga og kemur
tilfinningum á rót”
M.K MBL
Falleg, fyndin,sönn og kvenleg”
V.G Bylgjunni
“Ég hvet fólk til að drífa sig
á leikinn og njóta”
Jón Viðar DV