24 stundir - 06.06.2008, Blaðsíða 30
30 FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 2008 24stundir
Sparnaður
eða eyðsla?
„Ég myndi segja að herratískan í sumar
einkennist af fötum í fínni kantinum sem
þó eru létt og í fallegum sniðum,“ segir
Stefán Svan Aðalheiðarson hjá Kronkron.
„Skyrtur til að nota hversdags eru áber-
andi í öllum regnbogans litum t.d. gular,
grænar og ljósbláar svo og fínköflóttar í
litum eins og gráu með bláu í.“ Hann segir
þó litina í sumar ekki æpandi en ákveðna.
„Síðan eru hnepptar peysur mjög fínar í
sumarrigningunni. Skórnir núna eru dálít-
ið fínir sem er flott við bæði gallabuxur og
fín föt og svo líka íþróttaskór sem fara vel
við bæði. Þá er nauðsynlegt að vera í flott-
um sokkum við stuttar buxur. Fylgihlut-
irnir eru helst prjónuð bindi, sokkar og
sólskyggni.“
Herrakvöld Kronkron verður haldið í
kvöld og hefst gleðin klukkan 18.30. Þetta
er tilvalið tækifæri fyrir vini til að taka sig
saman og skoða sumarvörurnar. Í boði
verða grill og fljótandi veigar og munu
þeir Gísli Galdur og Benni B. Ruff spila
tónlist.
Stelpurnar eru að sjálfsögðu velkomnar
líka en eingöngu eftir klukkan 20.
maria@24stundir.is
Hversdagslegar skyrtur áberandi
Herratískan í sumar
Sumartískan
Skyrtur í fal-
legum litum.
LÍFSSTÍLL
lifsstill@24stundir.is a
Flott föt og fylgihlutir þurfa ekki að
kosta mann aleiguna heldur er um
að gera að vera útsjónarsamur.
tíska
Flott föt og fylgihlutir þurfa ekki að kosta
mann aleiguna. T.d. er hægt að að kaupa sér
eitthvað í líkingu við hátísku merki sem kost-
ar mun minna eins og hér má sjá.
maria@24stundir.is
Sparnaður Evita Perony
sólgleraugu frá ISIS á
3.990 krónur.
Sparnaður
Sindy skór frá
Topshop
9.990 krónur.
Spreð Prada
Fairy Bag frá
Prada að and-
virði 175.000
króna.
Sparnaður Taska frá Fri-
is & Co 5.490 krónur.
Sparnaður Taska frá Fri-
is & Co 7.890 krónur.
Laugaveg 54,
sími: 552 5201
Gallabuxur háar í mitti 3.990 kr
St. 36-46
Gallakvartbuxur 3.990 kr
St. 36-44
Gallapils 3.990 kr
Spreð Ma-
nolo Bla-
hnik að
andvirði
51.000
króna.
Spreð Gucci sól-
gleraugu að and-
virði 21.000
króna.