24 stundir - 19.06.2008, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ 2008 24stundir
Sjö einstaklingar á sambýli fyrir
aldraða á höfuðborgarsvæðinu
hafa nú í júní greinst með sýkingu
af völdum salmonellu. Um er að
ræða fremur sjaldgæfa tegund af
salmonellu, poona eða farmsen, og
ekki hefur áður komið upp innlent
smit af hennar völdum hér á landi.
Þeir sem smituðust eru þrír
heimilismenn og fjórir starfsmenn.
Nokkrir eru enn veikir, að sögn
Guðrúnar Sigmundsdóttur, yfir-
læknis á sóttvarnasviði landlækn-
isembættisins.
„Fólk er hætt að veikjast þannig
að þetta virðist vera gengið yfir,“
segir Guðrún sem segir ekki vitað
um upptök veikindanna.
„Fólk hefur smitast á mismun-
andi tímum og smitleiðirnar geta
verið margar. Þetta kann að hafa
komið með mat inn á heimilið. Það
getur líka verið um að ræða kross-
mengun við annan mat á heim-
ilinu. Þetta smitar mest ef viðkom-
andi er með niðurgang og
smitleiðin er með höndunum.
Hver og einn verður að bera
ábyrgð á því að þvo sér um hend-
ur,“ tekur Guðrún fram.
Þeir sem smitast af salmonellu
geta fengið háan hita, niðurgang og
uppköst. Salmonella getur einnig
verið einkennalítil eða einkenna-
laus, að sögn Guðrúnar.
Sýkingar af völdum salmonella
poona hafa greinst í nokkrum Evr-
ópulöndum í apríl og maí og eru
tilfellin samtals 30 til 40. Sótt-
varnastofnanir þeirra landa þar
sem sýkingin hefur greinst vinna
saman að rannsóknum á henni.
ingibjorg@24stundir.is
Starfsmenn og heimilismenn á sambýli fyrir aldraða
Sjö veikir af salmonellu
Upptökin
ókunn Guðrún
Sigmundsdóttir
segir smitleiðir
óljósar.
Eftir Elías Jón Guðjónsson
elias@24stundir.is
„Við skoðum þessi mál eins oft og
við þurfum. Það þarf ekki hvatn-
ingu frá öðrum til þess,“ sagði Geir
H. Haarde forsætisráðherra að-
spurður um ákall fulltrúa vinnu-
markaðarins um aðgerðir ríkis-
stjórnarinnar í efnahagsmálum að
loknum ríkisstjórnarfundi í gær.
„Við erum með sérstakan samráðs-
fund á morgun [í dag] með þessum
mönnum og þar geta menn haldið
áfram að skiptast á skoðunum,“
bætir hann við.
Fylgjandi virkjunum
Meðal þess sem komið hefur
fram í máli forystumanna atvinnu-
lífsins er ósk um að ríkisstjórnin
beiti sér fyrir því að farið verði í
virkjanir. „Ég er fylgjandi því. Ég
tel að við þurfum að byggja upp at-
vinnulífið, meðal annars á grund-
velli þess að nýta fallvötnin og jarð-
varmann,“ segir Geir en bendir
jafnframt á að slíkt sé ekki ákveðið
á einum ríkisstjórnarfundi. „Það
eru ákvarðanir sem koma frá fyr-
irtækjunum. Fyrirtækin sjá um að
ákveða það, Landsvirkjun og stóru
orkuveiturnar. Þannig að það er
ekki beint inni á okkar borði.“
Skilur óskir atvinnulífsins
Össur Skarphéðinsson iðnaðar-
ráðherra segist skilja vel að forystu-
menn í atvinnulífinu vilji virkja.
„Við verðum hins vegar að fara hér
eftir lögum um mat á umhverfis-
áhrifum og öðrum lögum,“ segir
hann og bætir við: „Það er í sjálfu
sér engin óheyrileg fyrirstaða af
hálfu ríkisins í þessum efnum.
Staðan er einfaldlega sú að sveita-
félögin hafa skipulagsvaldið í þess-
um efnum. Það var meirihlutinn í
Reykjavíkurborg sem sló af Bitru-
virkjun eftir að umsögn kom frá
Skipulagsstofnun.“
Ágreiningur um landsskipulag
Greint var frá andstöðu þing-
manna Sjálfstæðisflokksins við
frumvarp umhverfisráðherra um
landsskipulag í Morgunblaðinu í
gær. „Það hefur komið í ljós að það
er meiri ágreiningur um þetta mál
en ég hafði áttað mig á,“ segir Geir
aðspurður um það mál.
Þarf ekki hvatn-
ingu frá öðrum
Forsætisráðherra vill virkja, en segir það ekki vera á sínu borði
Segir ágreining um landsskipulag meiri en hann hafði áttað sig á
Undir pressu Segir
skipulagsmálin umdeild-
ari en hann hélt.
➤ Fullrúar vinnumarkaðarinsvilja að ríkið auki mannafla-
frekar framkvæmdir.
➤ Þeir vilja einnig að íbúðalána-sjóði verði beitt til þess að
koma í veg fyrir stöðnun og
verðhrun á fasteignamarkaði.
➤ Og að gengið verði frá láni tilað styrkja gjaldeyrisvara-
forðann sem fyrst.
ÁKALL ATVINNULÍFSINS
Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau
verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda.
Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is
Gerð var verðkönnun á tjaldsvæðum á Suðurlandi.
Um er að ræða verð fyrir 2 nætur, hjón með 2 börn (5
og 10 ára) í fellihýsi m/rafmagni. Könnunin er ekki
tæmandi. Bent skal á að hægt er að kaupa kort sem
veitir aðgang að 33 tjaldsvæðum á landinu öllu án raf-
magns á kr. 12.900. Hægt er að gista á hverju tjald-
svæði fjóra daga í senn. Sjá nánar á utilegukort.is.
Óeimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum.
58% munur á fellihýsastæði
Kristín
Einarsdóttir
NEYTENDAVAKTIN
Stæði fyrir fellihýsi, 2 nætur m/rafmagni
Tjaldsvæði Verð Verðmunur
Tjaldsvæðið Laugarvatni 2.400
Útilífsmiðstöðin Úlfljótsvatni 3.200 33,3 %
Tjaldsvæðið v/Engjaveg Selfossi 3.400 41,7 %
Laugargerði Laugarási 3.400 41,7 %
Tjaldsvæðið Árnes 3.600 50,0 %
Hellishólar Fljótshlíð 3.800 58,3 %
VIKUTILBOÐ
OPIÐ ÖLL
FIMMTUDAGSKVÖLD
TIL KL. 21:00
Í SUMAR
VÍKURHVARF 6
SÍMI 557 7720
WWW.VIKURVERK.IS
flugfelag.is
Skráðu þig í
Netklúbbinn
REYKJAVÍK
AKUREYRI
EGILSSTAÐIR
VESTMANNAEYJAR
ÍSAFJÖRÐUR
VOPNAFJÖRÐUR
ÞÓRSHÖFN
GRÍMSEY
Félagar í Netklúbbnum
fá fyrstir upplýsingar
um tilboð og nýjungar
í tölvupósti.
Alltaf ódýrast á netinu
www.flugfelag.is
ÍS
LE
N
SK
A
S
IA
.I
S
F
LU
4
16
84
0
4.
20
08
ÍS
LE
N
SK
A
S
IA
.I
S
S
FG
4
20
40
0
4.
20
08
Allt til rafhitunar
Olíufylltir
rafmagnsofnar
Norskir hitakútar
Fyrir sumarhús og heimili.
Yfir 30 ára reynsla hérlendis.
Brenna ekki rykagnir•
Auðveld uppsetning á vegg•
250 - 400 - 750 - 800 - 1000 •
- 1600 - 2000 wött
Kennarar í 21 grunnskóla og 9
framhaldsskólum á vegum Kun-
skapsskolan í Svíþjóð eiga fram-
vegis að fá árangurstengd laun.
Kunskapsskolan, sem stofnaður
var árið 2000 og er fjármagnaður
af sveitarfélögum, getur hækkað
laun kennara um 2,6 til 3,6 pró-
sent, allt eftir því hvort mark-
miðum í starfi hafi verið náð. Þar
af er tæpur þriðjungur einkunnir
nemenda, að því er segir á frétta-
vef Folkbladet í Svíþjóð. ibs
Fá laun eftir
einkunnum