24 stundir - 19.06.2008, Blaðsíða 25

24 stundir - 19.06.2008, Blaðsíða 25
Starfsmaður á afgreiðslukassa í Tesco-stórmarkaði á Bretlands- eyjum neitaði að selja hinni 25 ára gömlu Claire Birchell Jack Danieĺs grillsósu. Ástæðan fyrir því var sú að grillsósan inniheld- ur tveggja prósenta alkóhólmagn og Birchell var ekki með per- sónuskilríki meðferðis. Þegar 27 ára mágur hennar sem hafði skil- ríki á sér ætlaði að koma henni til bjargar fékk hann sömu meðferð, og var gefin sú ástæða að hann væri augljóslega að kaupa sósuna fyrir mágkonu sína og myndi af- henda henni fenginn eftir á. Það er ljóst að hin 25 ára gamla Birchell mun hugsa sig tvisvar um áður en hún fer á „grill- sósufyllirí“ aftur, en það er reyndar ekki loku fyrir það skotið að hún hafi í sakleysi sínu aðeins ætlað að bragðbæta steikina sína með þessari góðkunnu grillsósu og viðbrögð starfsmanns Tesco hafi verið í ýktari kantinum. hh Of ung til að kaupa grillsósu 24stundir FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ 2008 29 Á sumrin er algengast að grilla hamborg- ara og steikur en það getur verið gaman að brjóta hefðirnar stöku sinnum og setja sjáv- arrétti á grillið. Hægt er að búa til gómsæta sjávarréttaveislu á innan við klukkutíma. Fyrir 2-3 Hráefni: 2 stórir ferskir humrar u.þ.b. 1 kg ferskur skelfiskur u.þ.b. 1 kg ferskar rækjur (stórar) 3 ferskir maísstönglar smjör hvítlaukur Aðferð: Byrjið á því að leggja humarinn og skelfisk- inn í þar til gerða grillpönnu úr áli og dreifið rækjunum ofan á. Leggið svo maís- stönglana ofan á allt saman. Allt verður þetta „gufugrillað“ og því er gott að hella næst smá vatni í botninn á álpönnunni. Að því búnu er allt komið ofan í pönnuna sem á að fara þangað og tími kominn á að loka henni. Það er gert með álpappír og til að tryggja það að gufan haldast innan í pönn- unni er best að nota nokkur lög af álpappír. Nú má setja pönnuna á grillið. Eftir að hafa grillast í tíu til fimmtán mínútur er gott að snúa bakkanum á punktinum (ekki á hvolf) í hálfhring. Þetta er gert til að hitinn dreif- ist sem best innan í bakkanum. Þetta á að endurtaka nokkrum sinnum og þegar pannan hefur verið á grillinu í alls 30 mín- útur má taka hana af. Athugið að fara gríð- arlega varlega þegar álpappírinn er tekinn af því hann er mjög heitur. Það er kjörið að drekka kalt hvítvín með máltíð sem þessari og þá ekki síst þegar sólin skín og borðað er úti. haukurh@24stundir.is Það er hægt að grilla humar og annað sjávarfang eins og skelfisk og rækjur á einfaldan hátt Gufugrilluð sjávarréttaveisla Grillaður humar Þarf ekki endilega að vera flókinn. Sniðugur kolastrompur Mörgum líkar illa við að nota ol- íur til að kveikja upp í kolagrill- um. Þá er tilvalið að nota „kola- stromp“ sem virkar þannig að þú kemur kolunum fyrir í strompn- um og kveikir svo í dag- blöðum fyrir neðan hann. Við þetta næst náttúrulegt bragð sem margir kjósa. hh MIRALE Síðumúla 33 108 Reykjavík sími: 517 1020 Opið mán.–föstud. 11–18 laugardag 11–14 www.mirale.is 30% afsláttur þriggja daga veisla aðeins fimmtudag, föstudag og laugardag af öllum vörum húsgögn gjafavara ljós 4ára Verslunin Mirale var stofnuð árið 2004 og á því fjögura ára afmæli. Einnig fögnum við að eitt ár er síðan verslunin flutti í 800m2 húsnæði að Síðumúla 33.

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.