24 stundir - 19.06.2008, Blaðsíða 34

24 stundir - 19.06.2008, Blaðsíða 34
Eftir Birgi Örn Steinarsson biggi@24stundir.is Það er kominn miður júní og enn bólar lítið á hinum týpísku sum- arslögurum sem einkenndu ís- lenskt tónlistarlíf hérna fyrir örfá- um árum síðan. Gömlu sveitaballaböndin eru fæst með ný lög þetta árið, og aðeins ein ný sveit komin á sjónarsviðið, með liðsmönnum undir þrítugu, er gæti talist í sama flokki. Hvar er næsta kynslóð af Birgittu, Hreim og Jónsa? Og hvar eru þau sjálf? Svona er sumarið 2008 Óli Palli á Rás 2 nefnir Dísu, Múgsefjun, Veðurguðina og Buff þegar hann er spurður út í hverjir eigi séns á sumarslagara í ár. „Íslendingar nota tónlist mis- mikið. Við notum hana í útvarp- inu, þegar einhver giftir sig og þeg- ar einhver deyr. Svo notum við líka tónlist þegar við höldum árshátíðir og böll. Það vantar sveitir í þennan geira,“ segir Óli Palli á Rás 2. „Ný- dönsk hefur verið að sinna þessu svolítið. Sálin stundum, þegar þeir eru starfandi. Í svörtum fötum er ekki starfandi, ekki Írafár heldur. Paparnir eru hættir og það fer lítið fyrir Stuðmönnum. Það er voða- lega lítið að gerast í þessari deild. Það er ekki um auðugan garð að gresja. Þessi deild er svolítið eins og tannlaust tígrisdýr eins og er.“ Hvað er að gerast? Þegar leitað er að ástæðum fyrir hnignun hins týpíska íslenska poppslagara er aðeins hægt að velta vöngum. „Indí-tónlist hefur verið allsráð- andi upp á síðkastið og það er í rauninni komið í meginstrauminn. Kannski sér ungt fólk ekki eins mikla framtíð í því að vera í ís- lenskri hljómsveit að syngja á ís- lensku fyrir Íslendinga. Sveitaballið er dautt meira og minna og það þykir kannski ekki eins heillandi og áður? Ég átta mig ekki alveg á þessu.“ Það er greinilega gat á mark- aðnum því Óli Palli segir að íslensk tónlist, sungin á íslensku fyrir Ís- lendinga muni alltaf eiga greiðustu leiðina í dagsspilun á Rás 2. „Ef við skoðum boxið 100 bestu lög lýðveldisins er gaman að telja hversu mörg þar eru sungin á ensku? Þau eru ekki mörg, því það sem lifir hjá þjóðinni eru lögin á íslensku sem við tengjum við.“ Er íslenski sumarpoppslagarinn í útrýmingarhættu? Og hvar er svo draumurinn? Aldrei hefur farið minna fyrir hinum týpíska ís- lenska sumarpoppslag- ara en í ár. Sveitaballa- böndin eru hætt og fáir nýir popparar að ryðjast út. Hvað veldur? Óli Palli Segir fæsta syngja á íslensku. Veðurguðirnir Ba- hama? Eini týpíski sumarsmellurinn í ár? Fjörið heldur áfram! Tvær glænýjar bækur um krakkana í East High skólanum sem tilvaldar eru fyrir sumarfríið. Skólasöngleikurinn 2 byggir á sjónvarpsmyndinni vinsælu og tómstundabókin Klappað og klárt er stútfull af fróðleik, persónuleikaprófum og þrautum tengdum East High stjörnunum. Síðumúla 28 • 108 Reykjavík • Sími 522 2000 Glænýjar kiljur! H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA 38 FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ 2008 24stundir „Já, þetta er firring. Við drottn- um yfir alheiminum. Misnotum náttúruna og mengum að vild. En síðan verður allt brjálað útaf einu bjarndýri sem ráfar á land og minna en engar líkur á að það lifi landgönguna af. Þetta er hræsni og ekkert annað og tvískinn- ungur mikill.“ Grímur Atlason eyjan.is/grimuratlason „Íslendingar standa í þeirri trú að matur sem er matreiddur utan- dyra sé grillmatur. Staðreyndin er sú að matur lagaður á gaseldavél er ekki grillmatur. Alvöru grill- matur fær sitt góða grillbragð vegna grillkola eða trjákurls. Annað er plat.“ Jens Guðmundsson jensgud.blog.is „Í textavarpinu stóð: "Hvíta- björninn á Skaga hefur verið felldur. Björninn var aldraður og kvenkyns." Einmitt: Aldraður og kvenkyns. Tvær góðar og gildar ástæður fyrir því að skjóta hann. Mér finnst að við eigum að taka vel á móti öldruðum dösuðum ís- björnum.“ Sverrir Stormsker stormsker.blog.is BLOGGARINN HEYRST HEFUR … Barði Jóhannsson er á leiðinni út til Berlínar um næstu helgi til þess að klára væntanlega plötu Merzedes Club. Platan á að koma út í byrjun næsta mánaðar og verður hljóðblönduð í þekktu dauða- rokkshljóðveri í höfuðborg Þýskalands. Það er eins gott að Barði hafi vöðvabúntin með sér í hljóð- verinu ef pirraðir metalhausarnir fara að láta tónlist sveitarinnar fara í taugarnar á sér. bös Athygli vakti að Kjartan Sveinsson, liðsmaður Sig- ur Rósar, hlaut riddarakrossinn á þjóðhátíðardag fyrir nýsköpun í tónlist. Hann átti það vissulega skilið en af hverju voru aðrir liðsmenn sveitarinnar ekki verðlaunaðir? Allir liðsmenn sveitarinnar koma jafnt að lagasmíðum sem og útsetningum. Skrifstofa forseta Íslands gaf enga skýringu þegar leitað var til hennar í gær. bös Dr. Gunni hneykslast á Megasi á bloggi sínu fyrir að hafa selt lag sitt í Toyota-auglýsingu. Þar segist hann hafa heyrt að Megas hafi fengið eina og hálfa milljón fyrir erfiðið. Hann heldur því fram að Meg- as hafi oft verið beðinn um að selja lög sín en aldrei þegið, fyrr en nú. Fyrir vikið kallar Dr. Gunni hann „sell-át“ og veltir því fyrir sér hvort síðasta arðan sé komin í kjaft kapítalistanna. bös „Sól, lýstu mína leið, svo logi sundin blá og leiði mig til þín.“ Svona hefst þjóðhátíðarlag Vestmanneyja í ár sem heitir Brim og boðaföll, samið af Hreimi Heimissyni, söngvara í Landi og sonum. Er þetta fjórða þjóðhátíð- arlag Hreims, sem ætti orðið að vita hvað hann syngur (eða sem- ur) í þeim efnum. Öllum frjálst að senda lag Hreimur hefur þó samtals kom- ið að fimm þjóðhátíðarlögum, en hann flutti lag Helga Jónssonar, Í dalnum, ásamt hljómsveit sinni, árið 1999. Hann segist þó ekki vera einráður í þessu, enda ekki einu sinni frá Vestmannaeyjum. „Ég kem nú úr Landeyjunum, en það er ekki erfitt að semja óð til Vestmannaeyja, enda góður staður og fallegur. Annars er öllum frjálst að senda inn lag og þjóðhátíð- arnefnd hlustar á öll þeirra. En samstarf okkar hefur óneitanlega verið mjög lipurt og ljúft í alla staði. Það er mikill heiður að fá að taka þátt í þessari hefð,“ segir Hreimur sem þarf að klóra sér að- eins í hausnum þegar hann er inntur eftir sínu uppáhalds- þjóðhátíðarlagi. Hann var þó klár á því hvaða frumsamda þjóðhá- tíðarlag væri í uppáhaldi. „Lífið er yndislegt hefur lifað vel og er eitt besta lag sem ég hef samið,“ sagði Hreimur stoltur. Nýja lagið, Brim og boðaföll, mun fyrst heyrast í dag í þætt- inum Zúuber á FM957 klukkan 8.45. traustis@24stundir.is Hreimur semur eitt þjóðhátíðarlagið enn Veit hvað hann syngur, og semur Lífið er yndislegt … Hreimur mundar míkrófóninn. Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. Su doku 1 2 8 7 4 9 3 6 5 9 3 5 1 2 6 8 4 7 7 4 6 5 3 8 1 9 2 2 9 7 8 5 1 4 3 6 3 5 1 2 6 4 9 7 8 6 8 4 9 7 3 2 5 1 5 7 9 3 8 2 6 1 4 8 6 3 4 1 7 5 2 9 4 1 2 6 9 5 7 8 3 „Er fóturinn á þér ennþá stífur" Valtýr, ertu grænn af öfund ú́t í Einar Bolla? Íþróttafréttamaðurinn Valtýr Björn Valtýsson er lands- þekktur Los Angeles Lakers-aðdáandi en þeir Einar Bollason, Boston-aðdáandi nr. 1, lýstu NBA lengi vel í „gamla daga“. Boston varð NBA-meistari í fyrrakvöld, þegar liðið lagði Lakers. FÓLK 24@24stundir.is a Já, auðvitað. Þeir eru svo sem ekki með neina grænjaxla í þessu Boston liði. fréttir

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.