24 stundir - 19.06.2008, Page 15
24stundir FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ 2008 15
Bloggarar furða sig oghneykslast á því að Þór-unn Svein-
bjarnardóttir hafi
flogið með einka-
flugi í skyndi úr
sumarleyfi til að
vera viðstödd björg-
un hvítabjarnarins
sem síðar varð auðvitað engin
björgun. Vefþjóðviljinn, sem
frjálslyndir sjálfstæðismenn halda
úti, er þar engin undantekning en
á síðu þeirra má lesa: „Umhverf-
isráðherra æddi norður í land til
að fylgjast með því er ísbirninum
yrði bjargað með faglegum og yf-
irveguðum hætti. Hún hefði
reyndar getað sleppt ferðalaginu
en þá hefði hún hvorki komist á
mynd né lagt umhverfinu lið með
ferðalögum.“
Orðið á götunni segir aðstaða Þórunnar Svein-bjarnardóttur sé afar
veik innan ríkisstjórnarinnar og
bendir á forsíðu-
grein nýjasta heftis
Herðubreiðar því til
staðfestingar. „Þetta
er greinin Magra Ís-
land, skrifuð af
Kristínu Helgu
Gunnarsdóttur rithöfundi.
Greinin sú er eiginlega samfelld
árás á Þórunni. Orðið á götunni
segir að greinin sé til marks um
það að staða Þórunnar er lang-
veikust af öllum ráðherrum Sam-
fylkingarinnar. Að óbreyttu er lík-
legast að hún víki úr ríkisstjórn
fyrir Gunnari Svavarssyni þegar
að því kemur að einhver samfylk-
ingarmaður taki við starfi forseta
Alþingis af Sturlu Böðvarssyni á
næsta ári.“
Sverrir Stormsker er einnþeirra fjölmörgu semblogga um ísbjörninn góða
og hann setur sín skrif upp svona:
„Meira að segja
Björgólfur Thor
bauðst til að standa
straum af kostnaði
við björgun dýrsins
en allt kom fyrir
ekki. Björninn
reyndi að flýja land og það er
nokkuð sem verður aldrei liðið.
Þar að auki var hann aldraður og
kvenkyns í þokkabót og þá segir
það sig náttúrlega sjálft að hann
var dauður um leið og hann steig
á land. Mér finnst að við eigum
að taka vel á móti öldruðum dös-
uðum ísbjörnum. Við eigum að
gefa þeim eitthvað annað í vömb-
ina en kúlu. Við eigum ekki að
fara með þá eins og gamla fólkið.“
elin@24stundir.is
KLIPPT OG SKORIÐ
Það hefur varla farið framhjá
neinum að eitt af áherslumálum
viðskiptaráðherra er að frumvarp
um greiðsluaðlögun verði sem
fyrst að lögum. Málið hefur því
miður dregist nokkuð sökum
skiptra skoðana um tiltekin út-
færsluatriði. Vonir standa þó til að
lög um greiðsluaðlögun verði
samþykkt á Alþingi næsta haust.
Greiðsluaðlögun er úrræði sem
hefur þann tilgang að auðvelda
einstaklingum í greiðsluerfiðleik-
um að standa við fjárskuldbind-
ingar sínar og ná tökum á fjár-
málum sínum til frambúðar.
„Bigger, better, faster, more“
Það er ekki síður mikilvægt fyrir
íslenska hagkerfið í heild að ná
tökum á fjármálum sínum til
frambúðar. Aðstæður á fjármála-
mörkuðum eru nú afar óhagstæð-
ar og nú knýr nauðsyn á um að
dregið verði úr útgjöldum og
skuldastaðan löguð. Heimilin, fyr-
irtækin og stjórnvöld – allir, virð-
ast hafa tekið fullan þátt í að
spenna bogann of hátt.
Stundum er sagt að Íslendingar
séu sérlega óábyrgir í fjármálum.
Ég held að það sé ofsögum sagt.
Almennt eru Íslendingar eins og
fólk er flest og tiltölulega skyn-
samir. Allir geta þó gert mistök í
fjármálum og þar eru Íslendingar
engin undantekning heldur.
Vandamálið með Íslendinga er þó
það, að þegar þeir gera mistök þá
eiga þeir til að gera sömu mistök-
in. Allir í einu. Þetta er líklega
skýringin á því af hverju hagsveifl-
ur hér eru almennt ýktari en ann-
ars staðar. Kjörorð fjallkonunnar
eru, að virðist: „Bigger, better, fas-
ter, more.“
Ekki gera ekki neitt
Slagorð innheimtufyrirtækis
eins, „ekki gera ekki neitt“, á við
um fleira en skynsamlegt viðhorf
gagnvart gjaldföllnum skuldum
einstaklinga. Að sjálfsögðu á hag-
kerfi sem komið er á bullandi yf-
irdrátt ekki að gera ekki neitt.
Langmikilvægasta verkefnið í
augnablikinu er að vinna bug á
verðbólgunni sem knúin er af
þenslu undangenginna ára og
hækkun eldsneytis og hrávöru-
verðs. Á sama tíma eru glögg
merki þess að nú kólni verulega í
efnahagslegu tilliti. Vegna þessa
samspils ólíkra þátta er úrlausn-
arefnið ekki auðvelt.
Tilgangurinn með greiðsluað-
lögun fyrir fjölskyldur er einkum
að forða fólki frá algeru gjaldþroti.
Sambærilega greiðsluaðlögun þarf
fyrir samfélagið í heild. Vinna þarf
á skuldastöðunni án þess að reka
samfélagið í þrot. Umfram allt
þarf að tryggja að framtíðarvaxt-
armöguleikar séu sem bestir.
... en þó ekki hvað sem er
Menn greinir á um leiðir að
þessu marki. Stór lántaka erlendis
til að efla gjaldeyrisforðann er í
margra huga einhvers konar töfra-
lausn. Slík ráðstöfun er mikilvæg
til skamms tíma litið til varnar
fjármálastöðugleika en er varla
nein töfralausn til lengri tíma.
Auknar útlánaheimildir Íbúða-
lánasjóðs er annað sem verið hefur
til skoðunar. Engar patentlausnir
er þar að finna heldur, því enginn
veit með vissu hvert hið raunveru-
lega jafnvægisverð fasteigna er og
aukin innspýting á fasteignamark-
aði gæti tafið nauðsynlega aðlögun
svo viðskipti fari af stað á ný.
Staðreyndin er að leiðin fyrir
skynsamar og yfirvegaðar ákvarð-
anir stjórnvalda er ögn lengri en
leiðin á milli heila og munns
helstu gagnrýnenda. Allir eru
dæmdir af verkum sínum og þegar
upp er staðið er betra að taka upp-
lýstar og yfirvegaðar ákvarðanir í
stað þess að hlaupa eftir því sem
best hljómar í hvert skipti.
Höfundur er aðstoðarmaður
viðskiptaráðherra
Greiðsluaðlögun
samfélagsins
VIÐHORF aJón Þór Sturluson
Stór lántaka
erlendis til að
efla gjaldeyr-
isforðann er í
margra huga
einhvers kon-
ar töfralausn.
Slík ráðstöfun er mik-
ilvæg til skamms tíma lit-
ið til varnar fjármálastöð-
ugleika en er varla nein
töfralausn til lengri tíma.
Opnunartími mánud. - föstud. kl. 10.00-18.00
Bonito ehf. Friendtex, Faxafen 10, 108 Reykjavík
sími 568 2870
Útsala!
www.friendtex.is
Enn meiri
verðlækkun
Mikið úrval af
fallegum fatnaði
Gallerí Fold · Rauðarárstíg og Kringlunni
Íslensk list
gerir hús að heimili
· · ·
Opið laugardaga,
í Kringlunni 10–18, Rauðarárstíg 11–14,
á sunnudögum,
opið í Kringlunni 13–17, lokað á Rauðarárstíg
Rau›arárstígur 14, sími 551 0400 · Kringlan, sími 568 0400 · www.myndlist.is
Karólína Lárusdóttir