24 stundir - 19.06.2008, Side 20

24 stundir - 19.06.2008, Side 20
24 FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ 2008 24stundir Samkvæmt nýlegri rannsókn virðast þunglyndissjúklingar vera í meiri hættu en aðrir á að fá syk- ursýki 2. Lengi hefur verið vitað að offita og hreyfingarleysi auka hætt- una á sykursýki 2 og að sykursjúkir eru líklegri til þess að stríða við þunglyndi en heilbrigt fólk. Í ný- legri rannsókn vísindamanna við læknaháskóla í Baltimore í Banda- ríkjunum kom í ljós að tengsl syk- ursýki og þunglyndis virðast vera á tvo vegu, það er, að hvort um sig ýti undir hættuna á hinu. Um fimm þúsund menn og konur af öllum kynþáttum á aldrinum 45 til 84 ára voru rannsökuð á um þriggja ára tímabili. Í ljós kom að þunglynd- issjúklingar voru um 34 prósentum líklegri til þess að fá sykursýki 2, jafnvel þótt búið væri að taka tillit til annarra áhættuþátta á borð við offitu, reykingar og hreyfingarleysi. Einnig kom fram að því alvarlegri sem þunglyndiseinkennin voru, þeim mun meiri líkur voru á syk- ursýki 2. Tengsl þunglyndis og sykursýki LÍFSSTÍLL lifsstill@24stundir.is a Hér eru nokkur dæmi um hvernig hægt er að krydda matinn og gera hann safaríkari án þess að fjölga mjög hitaeiningum. heilsa Gildir fyrir ALLA skó Ódýrasta parið frítt! Tilboðið gildir 19-21 júní. Ómengaðar án allra aukefna og 100% náttúrulegar. – Hentar allri fjölskyldunni. Dr.Hauschka Náttúrulegar snyrtivörur Rósakrem fyrir þurra og viðkvæma húð Lífrænt ræktuð Rósablóm og rósaber hjálpa til við að varðveita rakann í húðinni. Það gerir húðina silkimjúka og veitir henni sérstaka vernd. Rósakremið inniheldur einungis hrein náttúruleg efni og lífrænt ræktaðar lækningajurtir. Það er án allra kemiskra rotvarnarefna og ilmefna. Imurinn er úr hreinum ilmkjarnaolíum. Þetta á einnig við um allar aðrar vörur frá Dr.Hauschka. Útsölustaðir: Yggdrasill Skólavörðustíg 16, Fræið Fjarðarkaup, Lyf & heilsa Kringlunni, Lífsins Lind Kringlunni, Lyfja, Maður Lifandi og Heilsuhornið Akureyri. dreifing: Hitaeiningaríkar sósur út í kuldann fyrir bragðbetra krydd í tilveruna Betra bragð og aukin hollusta Yfirleitt er mælt með því að þykkum sósum, smjöri og majónesi sé sleppt eða að dregið sé úr notkun þess þegar skera á niður hitaeiningar í fæðinu. Þó er ekki þar með sagt að heilsusam- legur matur þurfi að vera þurr, einhæfur eða bragðlaus. Hér eru nokkur dæmi um hvernig hægt er að krydda matinn og gera hann safaríkari án þess að fjölga mjög hitaeiningum. hilduredda@24stundir.is Balsamedik eða kampavínsedik Mjög bragðgóð viðbót við kjúklinga- og fiskrétti. Einnig er gott að hella því yfir aspas og borða hann sem bita milli mála. Einnig er hægt að sjóða edikið og nota sem sósu með hvaða kjöti sem er. Ferskt basil Ómissandi með salati og pastaréttum. Saxið niður í smáa bita og bætið við pastað eða setjið heilu blöðin í heilu lagi út í grænmetissalatið. Rauður chili-pipar Afar bragðsterkur. Gott er að hafa hann þurrkaðan og skorinn í litla bita og sáldra honum í litlu magni yfir pastarétti, kúskús eða hrís- grónarétti. Engifer Gott með svínakjöti, kjúklingi eða tófú. Til dæmis er hægt að saxa það niður eða mauka og strá því síðan yfir kjúkling áður en hann er hitaður í ofni. Lime-safi Til dæmis er hægt að blanda honum við sojasósu til þess að marinera magra grillsteik eða kjúkling. Þá er afar ljúffengt að kreista lime yfir eldaðan lax. Skalottlaukur og hvítlaukur Sérstaklega góðir með alls kyns grænmetisréttum og í raun hverju sem er. Skerið niður í litla bita, snögg- steikið og bætið út í matinn eftir smekk.

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.