24 stundir - 03.07.2008, Blaðsíða 2

24 stundir - 03.07.2008, Blaðsíða 2
Eftir Ásu Baldursdóttur asab@24stundir.is „Ef ekki tekst að komast til móts við okkar óskir munum við und- irbúa verkfallsaðgerðir með haust- inu,“ segir Birna Jónsdóttir, for- maður Læknafélags Íslands og bætir við að boðið þýði 8% raunkj- araskerðingu sem sé ekki ásættan- legt að mati félagsmanna. „Seinast var áherslan á að bæta taxtakjör yngstu læknanna en núna horfum við á að bæta kjör þeirra sem eru eldri og reyndari,“ segir Birna. Hún telur að flöt krónutölu- hækkun á launum bitni mest á þeim sem eru með lengstu starfs- reynsluna og mesta ábyrgð innan stéttarinnar. „Þetta er óviðunandi en við munum reyna að gera allt til þess að forðast verkfall,“ segir hún. Birna segir að Læknafélag Ís- lands og Skurðlæknafélagið séu að- skilin félög. „Ef skurðlæknar telja boðið ásættanlegt höfum við ekk- ert við það að athuga,“ segir hún og bætir við að Læknafélag Íslands fundi með samninganefnd í dag. Skurðlæknar sömdu „Við tókum boði um krónutölu- hækkun, 20.300.- kr á laun, 3,3% hækkun á yfirvinnu og hækkun á sjúkrasjóði,“ segir Tryggvi Stefáns- son formaður samninganefndar skurðlækna um undirritun samn- inga á þriðjudag. „Í sjálfu sér tengjumst við ekki Læknafélagi Íslands því Skurð- læknafélagið var stofnað til að verja hagsmuni skurðlækna,“ segir Tryggvi og bætir við að félagið styðji Læknafélag Íslands. Félag skurðlækna er ungt að ár- um en félagsmenn munu greiða at- kvæði um hvort samningurinn taki gildi í netkosningu. „Félagsmenn hafa tvær vikur til að hafna samningnum en að öðr- um kosti tekur hann gildi,“ segir hann. Félagsmenn í Skurðlækna- félaginu eru á bilinu 70-80 manns en allir skurðlæknar munu þiggja laun samkvæmt samningnum. Hjúkrunarfræðingar funda „Við erum um þessar mundir að funda með félagsmönnum úti á landi um stöðu okkar í kjaravið- ræðunum og boðað yfirvinnubann þann 10. júlí,“ segir Elsa Friðfinns- dóttir, formaður Hjúkrunarfræð- ingafélagsins. „Við sættum okkur engan veginn við boð ríkisins,“ segir hún og bætir við að ákveðin vonbrigði séu meðal félagsmanna að ríkið ætli ekki að koma til móts við hjúkrunarfræðinga. „Stofnanir reka sig á okkar yfirvinnu“. Ljósmæður hætta störfum Um helmingur ljósmæðra hafa sagt upp störfum á landinu öllu. „Við krefjumst launaleiðrétting- ar miðað við menntun okkar og hæfniskröfur,“ segir Guðlaug Ein- arsdóttir, formaður Ljósmæðra- félags Íslands. Ljósmæður skrifuðu ekki undir samning sem félög inn- an BHM samþykktu um helgina. „Við sættum okkur ekki við boð ríkis“  Læknafélagið hafnaði boði um krónutöluhækkun og vilja meira fyrir starfandi yfirlækna  Skurðlæknar tóku boði ríkis og bíða samþykkis félagsmanna með netkosningu þeirra Kjaradeilur Læknar, hjúkrunarfræðingar og ljósmæður ósátt.➤ Félagar í Læknafélagi Íslandseru hátt í þúsund manns. ➤ Það eru 3742 skráðir fé-lagsmenn í Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, en um 2062 þeirra taka þátt í boð- uðu yfirvinnubanni. Um 2729 taka laun samkvæmt kjara- samningi. ➤ Félagsmenn í Ljósmæðra-félagi Íslands eru um 220 tals- ins. HEILBRIGÐISSTÉTTIR 2 FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2008 24stundir Grill-leikur me› s‡r›um rjóma! Taktu þátt í grillleik MS og þú gætir unnið glæsilegt Weber-grill eða vandað grillsett. Kauptu dós af sýrðum rjóma frá MS, farðu á www.ms.is, sláðu inn lukkunúmerið sem er í lokinu og þú færð strax að vita hvort þú hefur unnið. H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA 0 8 -1 0 2 0 VÍÐA UM HEIM Algarve 30 Amsterdam 22 Alicante 30 Barcelona 29 Berlín 30 Las Palmas 27 Dublin 17 Frankfurt 31 Glasgow 16 Brussel 21 Hamborg 29 Helsinki 21 Kaupmannahöfn 21 London 18 Madrid 30 Mílanó 28 Montreal 20 Lúxemborg 31 New York 22 Nuuk 5 Orlando 23 Osló 22 Genf 29 París 20 Mallorca 29 Stokkhólmur 20 Þórshöfn 12 Austan og norðaustan 5-10 m/s, en hvassari á stöku stað á annesjum. Rigning eða súld fram á kvöld, en þurrt að kalla SV-til. Víða heldur hvassari um tíma í nótt, en lægir þegar líður á morgundaginn. VEÐRIÐ Í DAG 13 13 13 14 13 Hlýtt en votviðri víða Austan- og norðaustanátt, yfirleitt 3-8 m/s. Víða þurrt fyrripart dags, en dálítil væta aust- antil á landinu síðdegis. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast vestantil. Sól skín part úr degi á Suð- ur- og Vesturlandi. VEÐRIÐ Á MORGUN 13 16 13 11 14 Hlýjast á Suður- og Vesturlandi Rannsókn Kauphallar Íslands á umfangi við- skipta Landsbanka Íslands með íbúðabréf dag- inn sem ríkisstjórnin kynnti aðgerðir á fast- eigna- og fjármálamarkaði hefur verið vísað til Fjármálaeftirlitsins. „Okkar gögn benda til þess að ekki sé úti- lokað að um ójafnfræði meðal fjárfesta á mark- aðnum þennan dag hafi verið að ræða,“ segir Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar. Hann tekur þó fram að í vísun málsins til Fjármálaeftirlitins felist ekki sakbending eða fullvissa um að brot hafi verið að ræða. „En á grundvelli okkar gagna er ekki hægt að útiloka að þarna hafi fjárfestar haft mismunandi upplýsingar. Við teljum því mikilvægt að kanna málið til hlítar. En það kunna hins vegar að vera skýringar á því, sem frekari rannsókn af hálfu Fjármálaeftirlitsins mun leiða í ljós.“ Þann 19. júní sl. eftir lokun markaða tilkynnti ríkisstjórnin umfangsmiklar aðgerðir á fjár- mála- og fasteignamarkaði. Póstur frá Halldóri J. Kristjánssyni, bankastjóra Landsbankans og formanni Samtaka fjármálafyrirtækja, til fram- kvæmdastjóra samtakanna, sýnir að honum var kunnugt um aðgerðirnar áður en þær voru kynntar almenningi. Þennan sama dag seldi Landsbankinn talsvert mikið af íbúðabréfum umfram það sem hann keypti, sem sést best ef viðskiptin eru borin saman við viðskipti annarra banka sama dag. Landsbankinn seldi þennan dag íbúðabréf fyrir tæpa 4,2 milljarða umfram það sem hann keypti en Kaupþing fyrir 105 milljónir umfram það sem það keypti. Glitnir keypti hins vegar íbúðabréf fyrir um 200 milljónir umfram það sem bankinn seldi. Í tilkynningu frá Landsbankanum vegna málsins segir að almennir starfsmenn bankans hafi ekki vitað um aðgerðir ríkisstjórnarinnar fyrr en þær voru kynntar almenningi. hlynur@24stundir.is Mál Landsbankans vegna viðskipta með íbúðabréf vísað til Fjármálaeftirlitsins Landsbankinn liggur enn undir grun STUTT ● Lundaveiði Bæjarstjórn Vest- mannaeyja hefur samþykkt nýj- ar reglur um lundaveiði til þess að bregðast við slæmum varp- árangri stofnsins á und- anförnum árum. Eru veiðar í Heimaey nú bannaðar nema í gegnum veiðifélög. ● Hvítabirnir Byggðaráð Sveitarfélags Skagafjarðar vill funda með umhverfisráðherra um stofnun viðbragðshóps vegna bjarndýra á landsvísu. Á aðstaða fyrir búnað hópsins að vera á Sauðárkróki. ● Vatnsskortur Forsvarsmenn Vatnsveitu Flóahrepps hafa beðið íbúa í Flóahreppi að stilla vatnsnotkun í hóf. Er um að ræða fyrirbyggjandi aðgerðir því ekki hefur rignt nóg til við- halds og endurnýjunar á vatns- birgðum. þkþ Laust fyrir klukkan átta í gær- morgun varð banaslys við Hafnarfjarðarhöfn. Lést mað- ur á fimmtugsaldri sem var við lestun á skipinu Selfoss þegar hann klemmdist á milli vörugáms og lunningar. Engar frekari upplýsingar liggja fyrir um slysið, að sögn Óskars Sig- urðssonar, lögreglufulltrúa á höfuðborgarsvæðinu. þkþ Banaslys í Hafnarfirði Á milli gáms og lunningar Lögreglan á höfuðborg- arsvæðinu fann um 200 grömm af fíkniefnum, að- allega am- fetamíni, í húsleit í Grafarvogi á þriðju- dagskvöld. Húsleitin var fram- kvæmd með að- stoð sérsveitar ríkislög- reglustjóra og fíkniefnaleit- arhunds frá tollgæslunni. Karlmaður um fimmtugt var handtekinn vegna rannsóknar málsins. hj Húsleit í Grafarvoginum Með fíkniefni á heimilinu Breska verslanakeðjan Wool- worths spáir því að Rúbíks- kubburinn og Star Wars og In- diana Jones leikföng muni vera meðal vinsælustu jólagjafanna í ár. Gary Grant, talsmaður keðj- unnar, segir hluti tengda for- tíðarþrá ávallt seljast vel. „For- eldrar vilja alltaf kaupa gjafir sem minna þá á eigin æsku.“ aí Gamli Rúbíkskubburinn Jólagjöfin í ár SKONDIÐ

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.