24 stundir - 03.07.2008, Blaðsíða 10

24 stundir - 03.07.2008, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2008 24stundir Ferðaskrifstofa Fyrstur kemur, fyrstur fær. Nánari upplýsingar og bókanir á www.plusferdir.is 9., 16 og 23 júlí. Verðfrá: 39.900kr. Krít Netverð á mann í viku miðað við 2, 3 eða 4 í s túdíó, íbúð eða hótelh erbergi. Enginn barnaafsláttur. Innifalið er flug, gisting í 7 nætur, flugvallaskat tar og íslensk fararstjórn. Sjóðheitt sólarlottó! Spilaðu með og láttu sólina leika við þig. Þú velur áfangastaðinn og brottfarardaginn. Viku fyrir brottför staðfestum við á hvaða gististað þú dvelur í sumarfríinu. Gildir fyrir júlí, ein vika eða tvær. Eftir Atla Ísleifsson atlii@24stundir.is Hermönnum Bandaríkjahers í Gu- antanamo fangabúðunum á Kúbu var árið 2002 kennt að beita fanga viðurstyggilegum yfirheyrslu- og pyntingaraðferðum sem Kínaher beitti bandaríska stríðsfanga á tím- um Kóreustríðsins til að knýja fram játningar. Í frétt New York Times segir að leiðbeiningarnar hafi að stórum hluta verið teknar orðrétt upp úr skýrslu frá árinu 1957 um hvernig Kínverjar héldu bandarískum stríðsföngum lengi vakandi og létu þá standa upprétta í langan tíma við óþægilegar aðstæður, oft í miklum kulda. Tilgangurinn var að ná fram játningum, þó falskar væru. Báðar aðferðirnar hafa verið notaðar í Guantanamo-búðunum þar sem Bandaríkjaher er nú með grunaða hryðjuverkamenn í haldi. George Bush Bandaríkjaforseti hefur varið yfirheyrsluaðferðir Bandaríkjahers og segir þær hafa komið í veg fyrir frekari hryðju- verkaárásir. Þannig beitti forsetinn neitunarvaldi í mars síðastliðnum gegn lagatillögu sem gerði ráð fyrir að ákveðnar pyntingaraðferðir yrðu bannaðar, þar á meðal sú að- ferð að neyða vatn ofan í lungu fangans til að sannfæra hann um að hann sé að drukkna. Í haldi Fangabúð- irnar opnuðu á vor- mánuðum 2002. Lærðu kínverskar pyntingaraðferðir  Fangar látnir vaka í langan tíma og standa uppréttir í miklum kulda  Aðferðir notaðar á bandarískum föngum í Kóreustríðinu ➤ Um 270 manns er nú haldiðföngnum í Guantanamo- búðunum. ➤ Áætlað er að 185 séu í ein-angrunarklefum allt að 22 tíma á sólarhring. GUANTANAMO Bandaríska kaffihúsakeðjan Star- bucks hefur tilkynnt að til standi að loka 500 stöðum í Bandaríkj- unum til viðbótar við þá hundrað sem þegar var ljóst að yrði lokað. Áætlað er að um 12 þúsund manns missi vinnu sína. Um 70 prósent þeirra staða sem á að loka voru opnaðir eftir 2006 en keðjan opnaði fjölda staða á svæðum þar sem staðan á fast- eignamarkaði hefur verið sér- staklega erfið að undanförnu. aí Starbucks lokar 500 stöðum Þýski stjórnmálamaðurinn Ro- ger Kusch hefur vakið mikla hneykslan og reiði í heimalandinu eftir að hann aðstoðaði aldraða konu að deyja og birti svo mynd- band sem sýndi samtal þeirra í millum sem fram fór skömmu fyrir lát konunnar. Margir þrýsta nú á stjórnvöld að herða reglur og við- urlög við að aðstoða fólk að fremja sjálfsvíg. Kusch segist hafa ráðlagt hinni 79 ára Bettinu Schardt hvernig ætti að blanda saman banvænni lyfja- blöndu róandi lyfja og malaríu- lyfja. Þá hafi hann yfirgefið íbúð hennar skömmu áður en hún tók inn blönduna og lést. Schardt var ógift og barnlaus og almennt við góða heilsu. Hún sagðist þó óttast mikið að verða flutt á hjúkrunarheimili og hafi viljað binda endi á líf sitt. Kusch, sem hefur verið áberandi talsmaður fyrir líknardrápi, birti nýlega myndband þar sem hann sést ræða við Schardt. Lögregla hefur nú myndbandið til rannsóknar. Í Þýskalandi er bannað með lögum að aðstoða fólk að fremja sjálfsvíg, en Kusch vonast til að sleppa við ákæru þar sem hann lét Schardt lyfin ekki per- sónulega í té. Árið 2002 varð Holland fyrsta landið til að heimila líknardráp, en það er nú einnig leyft í Belgíu og Lúxemborg. Líknardráp hefur verið sérstak- lega viðkvæmt málefni í Þýskalandi þar sem áætlað er að nasistar hafi drepið um 100 þúsund fatlaða ein- staklinga og einstaklinga með ólæknandi sjúkdóma á tímum seinna stríðs. atlii@24stundir.is Látin Schardt var ekki með ólækn- andi sjúkdóm. Stjórnmálamaður aðstoðaði konu að deyja Sjálfsvígsmyndband vekur mikla reiði Breska lögreglan hefur hand- tekið 1.214 manns í Lund- únum síðustu sex vikurnar í aðgerðum til að bregðast við tíðum hnífstunguárásum í höfuðborginni. Á vef Reuters segir að rúmlega 500 hnífar hafi fundist á um 27 þúsund manns sem leitað var á. Boris Johnson, borgarstjóri Lundúna, hafði áður lofað að bregðast við tíðum árásum og lét það verða eitt sitt fyrsta verk eftir að hann var kjörinn borgarstjóri að láta skipu- leggja aðgerðirnar. Hinn sextán ára Ben Kinsella er síðasta fórnarlamb slíkra árása, en hann fannst myrtur um helgina og er sautjándi unglingurinn til að láta lífið í borginni eftir árás á árinu. aí Handtökur í Lundúnum Brugðist við hnífstungum Danski stjórnmálamaðurinn og lögfræðingurinn Mogens Glistrup lést á þriðjudags- kvöldið, 82 ára að aldri. Glist- rup var stofnandi Framfara- flokksins og var mjög áberandi í dönsku þjóðlífi frá 1971 til 2005. Glistrup stóð að stofnun Framfaraflokksins sem var þjóðernisflokkur, en Þjóð- arflokkurinn er byggður á grunni hans. Flokkurinn náðu góðri kosningu 1979 og kom Glistrup í kjölfarið með marg- ar umdeildar yfirlýsingar um innflytjendur. Glistrup hlaut marga dóma vegna ummæla sinna, þar á meðal 20 daga fangelsisdóm árið 2005. mbl.is Dönsk stjórnmál Mogens Glist- rup er látinn Milli þrjú og fjög- ur þúsund manns hafa smitast af salmonellu í Danmörku síð- ustu vikurnar. Ekki hafa fleiri smitast á svo skömmum tíma í landinu í rúm fimmtán ár. Á vef Politiken segir að margir séu svo alvarlega veikir að þeir hafi neyðst til að leggjast inn á sjúkrahús. Fjöldi hinna smituðu eru börn og aldraðir sem eru sér- staklega viðkvæm fyrir smiti. aí Salmonella í Danmörku Forseti Mongólíu hefur lýst yfir neyðarástandi og komið á útgöngubanni í hluta höf- uðborgarinnar Ulan Bator eft- ir að fimm létust og um þrjú hundruð særðust í mótmæla- aðgerðum á þriðjudagskvöld. Þúsundir manna komu saman í miðborg Ulan Bator til að mótmæla ríkisstjórninni sem er sökuð um kosningasvindl í þingkosningunum sem fóru fram á sunnudaginn. Fyrstu tölur bentu til þess að stjórnarflokkurinn hafi tryggt sér hreinan meirihluta á mongólska þinginu. Að sögn var kveikt í höf- uðstöðvum stjórnarflokksins og brotist inn í opinberar byggingar í aðgerðunum. aí Mótmæli í Mongólíu Neyðarástand

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.