24 stundir - 03.07.2008, Page 4
4 FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2008 24stundir
Opnunartími mánud. - föstud. kl. 10.00-18.00
Bonito ehf. Friendtex, Faxafen 10, 108 Reykjavík
sími 568 2870
Útsala!
www.friendtex.is
Þú kaupir tvennar buxur
og færð þriðju fríar.
Tilboð gildir aðeins
fimmtudag og föstudag.
Lokum vegna
sumarleyfa 7. júlí.
OFNÆMI… NEI TAKK
527 040
Neutral vörurnar eru
viðurkenndar af Ofnæmis-
og astmasamtökum
Norðurlanda
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
3
4
3
7
3
VIKUTILBOÐ
OPIÐÖLL
FIMMTUDAGSKVÖLD
TIL KL. 21:00
Í SUMAR
VÍKURHVARF 6
SÍMI 557 7720
WWW.VIKURVERK.IS
Eftir Björgu Evu Erlendsdóttur og
Elías Jón Guðjónsson
Fjórir af fimm framkvæmdastjór-
um Reykjavík Energy Invest sögðu
upp á mánudaginn. Þeir eru Vil-
hjálmur Skúlason, Gunnar Örn
Gunnarsson, Gestur Gíslason og
Þorleifur Finnsson. Einn fram-
kvæmdastjóri er eftir hjá REI og
hann er Guðmundur Sigurjónsson.
Sem kunnugt er lét forstjóri REI,
Guðmundur Þóroddsson, af störf-
um fyrir um mánuði eftir að stjórn
fyrirtækisins ákvað að láta hann
fara. Framkvæmdastjórarnir fjórir
sem sögðu upp nú um mánaða-
mótin eiga eftir að vinna út þriggja
mánaða uppsagnarfrest. Enginn
þeirra er í vinnunni og fæstir í
símasambandi. Þeir fóru saman í
gönguferð um Hornstrandir, nema
Vilhjálmur sem er varaformaður
Landssambands hestamanna og
því á landsmóti. Hann var því sá
eini sem loks náðist í.
Staðfestir þreytu á ástandi
Vilhjálmur staðfesti uppsagnirn-
ar, en sagði að ekki hefði staðið til
að ræða þær í fjölmiðlum, nóg væri
komið af slíku. Hann staðfesti að
pólitíkin væri ástæðan. „Við erum
orðnir þrekaðir af samstöðuleysi.
Okkur sýnist menn ekki vera póli-
tískt sammála og eru einhverjar
líkur á að það sé að breytast? “ spyr
Vilhjálmur Skúlason.
Starfsmennirnir hafa komið að
helstu verkefnum REI og OR, sum-
ir mjög lengi. Grímur, sem er jarð-
eðlisfræðingur, hefur komið að
nær öllum verkefnum REI sem vís-
indamaður. Gestur vann í rúman
áratug við undirbúning Bitruvirkj-
unar sem hefur verið slegin af. Þor-
leifur hefur verið hjá OR á þriðja
áratug. Gunnar Örn hefur verið í
verkefnum REI í Afríku og Vil-
hjálmur kom að Rússlands- og
Alaskaverkefnum ásamt Guð-
mundi Þóroddssyni.
Kjartan Magnússon, stjórnarfor-
maður REI, segir stjórnina hafa
verið viðbúna því að þetta gæti
gerst. Fyrirtækið eigi alveg að kom-
ast yfir þetta. Þetta mun ekki setja
verkefni fyrirtækisins í hættu.
Lykilmenn REI
segja upp starfi
Allir framkvæmdastjórar REI nema einn sögðu upp á mánudag
Þeir gáfust upp á pólitískum glundroða
Hvasst Pólitískir vindar
næða enn um OR og REI.
➤ Tólfta október síðastliðinnsprakk meirihluti borg-
arstjórnar Reykjavíkur. Síðan
hefur óvissa ríkt um REI.
➤ Fimmtán starfsmenn vinnafyrir REI á Íslandi og erlendis,
þriðjungur á uppsagnarfresti.
ÓVISSUFERÐ REI
Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau
verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda.
Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is
Ef farið er í sund tvisvar í viku eða oftar getur borgað
sig að kaupa árskort. Sundlaug Kópavogs og Sund-
laugin í Borgarnesi bjóða árskort á 17.500 krónur en
dýrast er árskortið í sundlaug Akureyrar 27.300 kr.
Munur á hæsta og lægsta verði er 56%.
Ekki er um tæmandi könnun að ræða.
56% munur á árskortinu
Brynhildur
Pétursdóttir
NEYTENDAVAKTIN
Könnun á verði á árskorti í sund
Sundstaðir Verð Verðmunur
Sundlaugin í Borgarnesi 17.500
Sundlaug Kópavogs 17.500
Sundlaug Garðabæjar 20.000 14%
Sundlaugar Reykjavíkur 24.000 37%
Sundlaugin á Egilsstöðum 25.300 45%
Sundlaug Akureyrar 27.300 56%
„Við höfum höfðað staðfesting-
armál og það verður tekið fyrir í
Héraðsdómi Reykjaness í byrjun
september,“ segir Sigurður G.
Guðjónsson lögmaður íbúa í
Lundi 1 í Kópavogi sem fengu í
síðustu viku lögbann á vegafram-
kvæmdir við húsið sem þeir telja
ekki vera samkvæmt skipulagi.
Lögbannið mun því standa að
minnsta kosti fram í september
þegar það verður dómtekið. ejg
Lögbann áfram
í september
Eftir Elías Jón Guðjónsson
elias@24stundir.is
„Það er ekki allt sem sýnist þegar
farið er að skoða hvert er raunveru-
legt framlag greinarinnar,“ segir
Vilborg H. Júlíusdóttir hagfræð-
ingur hjá Hagstofunni um áhrif ál-
framleiðslu á Íslandi. Fram hefur
komið að ál verði helsta útflutn-
ingsafurð Íslendinga á þessu ári.
Hagnaður úr landi
Vilborg tekur sem dæmi að árið
2006 hafi framleiðsluvirði í ál- og
kísiljárnsframleiðslu verið 69,5
milljarðar króna og bendir á að
eftir að búið er að taka út annan
rekstrarkostnað annan en laun þá
standi eftir 19,7 milljarðar sem
séu framlag til landsframleiðsl-
unnar. „Þar inni er hagnaður sem
rennur út úr landinu því þetta eru
erlend fyrirtæki og það sem eftir
situr eru í raun og veru bara laun-
in sem eru framlag til þjóðartekn-
anna.“
Launin helsta framlagið
Hún segir að árið 2006 hafi verið
greiddir um 5,6 milljarðar í laun í
þessum iðnaði. „Þetta er það sem
er kannski hreint framlag greinar-
innar til þjóðartekna,“ segir hún og
bætir við: „Svo er hagnaðurinn
sem er 13,2 milljarðar og hann
rennur kannski úr landi til eigenda
þegar búið er að borga af fjármagn-
inu og annað.“
Meira frá sjávarútvegi
Hún segir að í sjávarútvegi og
ferðaþjónustu sitji töluvert hærra
hlutfall eftir í landinu. „Því að
hagnaðurinn situr eftir í landinu
auk launanna.“
Ekki allt sem sýnist
Álver skilja minna eftir en sjávarútvegur og ferðaþjónusta
➤ Því er spáð að flutt verði út álfyrir 165 milljarða króna á
þessu ári.
➤ Á síðasta ári var flutt út ál fyr-ir rúma 80 milljarða króna.
ÁLÚTFLUTNINGUR
Álver Skila minna til
þjóðarbúsins en virt-
ist í fyrstu.