24 stundir - 03.07.2008, Síða 8

24 stundir - 03.07.2008, Síða 8
8 FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2008 24stundir Eftir Þóru Kristínu Þórsdóttur thorakristin@24stundir.is Hestamenn fengu heldur betur út- reið þegar mikið hvassviðri og moldrok reið yfir gesti Landsmóts hestamanna á Gaddastaðaflötum á þriðjudagskvöld. Fólki leist ekki á blikuna Haft var samband við lögregluna á Hvolsvelli um klukkan hálf níu um kvöldið vegna fellihýsis sem var að fjúka. Kom hún á staðinn og lokaði fyrir almenna umferð um svæðið fram eftir kvöldi. Var unnið í að koma fólki í skjól og meðal annars Íþróttahúsið opnað og und- irbúið sem gistiaðstaða fyrir þá sem vildu. „Þetta var náttúrlega helvítis hvellur og fólki leist ekki á blikuna þegar fór að rjúka hér upp grjót. Moldarbakki var út við sjóndeild- arhringinn og síðan fóru mann- virki af stað og tjöld fuku,“ segir Jens Einarsson, hestablaðamaður. Hjálpaði björgunarsveit og lög- regla fólki við að leggja niður tjöld og snúa fellihýsum upp í vindinn auk þess sem veðurtepptur hópur vöruflutningabílstjóra myndaði borg í kringum veislutjaldið og kom þannig í veg fyrir að það fyki. Slapp fyrir horn Hákon Bjarnason hjá Flugbjörg- unarsveitinni á Hellu segir smá skemmdir hafa orðið á tjöldum og fellihýsum en þær hafi ekki verið teljandi. „Þetta slapp fyrir horn. Aðalhvellurinn stóð í um einn og hálfan tíma og það hefði ekki mátt vera lengra,“ segir hann. Telma Tómasson, upplýsinga- fulltrúi mótsins, segir mikinn sam- hug hafa myndast hjá mótsgestum í óveðrinu. „Menn spruttu út úr sínum hjólhýsum og aðstoðuðu aðra við að fella tjöld og snúa felli- hýsum,“ segir hún. Erfitt fyrir knapa og hross Þó mesti hvellurinn hafi skollið á um kvöldið var hvasst allan dag- inn. Sölvi Sigurðsson knapi, sem keppir á mótinu, segir aðstæður hafa verið erfiðar fyrir bæði knapa og hross. „Þetta voru frekar erfið skilyrði og náttúrulega einhverjir sem liðu fyrir það en aðrir sem fóru í gegnum þetta. Öll vit voru full af sandi,“ segir hann. Í mótinu taka yfir eitt þúsund hross þátt og um fimm hundruð knapar. Í heildina er búist við á milli tíu og tólf þúsund gestum og voru komnir á fimmta þúsund í gær. Segir Telma gesti ekki hafa lát- ið óveðrið á sig fá og að góð stemmning sé á mótinu. Óveður Veislutjaldið var hætt komið þegar vörubíl- stjórar komu til bjargar. Hestamenn fá slæma útreið  Veðurhvellur reið yfir mótsgesti Landsmóts  Smávægilegar skemmdir á mannvirkjum  Erfiðar keppnisaðstæður, segir knapi ➤ Formleg mótsetning verður íkvöld kl. 20 með hópreið en mótið stendur til kl. 16 á sunnudag. ➤ Vegleg skemmtidagskrá er ákvöldin fyrir alla fjölskylduna sem hefst í kvöld með Karla- kór Rangæinga. Meðal ann- arra sem spila um helgina er Labbi í Mánum, Merzedes Club, Hundur í óskilum og Partísveit Jónsa. HESTAMANNAMÓT 52 prósent borgarbúa myndu kjósa Samfylkinguna en aðeins 29 prósent Sjálfstæðisflokkinn ef nú yrði gengið til borgarstjórnarkosn- inga samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallup í júní. Vinstri græn mælast með 13 prósent, F-listinn með 4 og Fram- sóknarflokkurinn með 3. Þá heldur stuðningur við ríkis- stjórn Sjálfstæðisflokks og Sam- fylkingar áfram að minnka og er nú komið í 52 prósent auk þess sem 68 prósent eru óánægð með viðbrögð hennar við versnandi efnahagsástandi. Enn undir kjörfylgi Fylgi Sjálfstæðisflokksins lands- vísu er 33 prósent og stendur í stað á milli mánaða. Fylgi hans er því enn nokkuð undir kjörfylgi sem var 37 prósent í kosningunum fyrir rúmu ári. 30 prósent segjast styðja Samfylkinguna og 20 prósent Vinstri græn. Fylgi Framsóknar- flokksins er 9 prósent, Fjálslynda- flokksins 4 prósent og Íslands- hreyfingarinnar 2 prósent. ejg Þjóðarpúls Gallup í júní Fylgi Samfylkingar 52% í Reykjavík „Þegar starfsmenn fóru að bera saman bækur sínar kom í ljós að hugsanlegt er að gengið hafi valdið fleiri skemmdum,“ segir Tómas Óskar Guðjónsson, forstöðumaður Fjölskyldu- og húsdýragarðsins. Eins og sagt hefur verið frá í 24 stundum ollu þrír ungir menn skemmdum á fallturni í garðinum. Grunur leikur á að þeir hinir sömu hafi ógnað starfsmönnum á Nátt- úrutónleikum í Laugardal. „Ef vísbendingarnar eru réttar held ég að það sé bara tímaspurs- mál hvenær skemmdarvargarnir nást,“ segir Tómas, sem hvetur þá sem hafa upplýsingar um málið til að láta lögreglu vita. hos Fleiri skemmdarverk í Laugardalnum Sískemmdarvargar? LÆKKAÐ VERÐ SUMARTILBOÐ ® Skipholti 50b • 105 Reykjavík www.gardheimar.is allt í garðinn á einum stað! Stekkjarbakka 6 - Sími 540 3300 Falleg garðhúsgögn Fjölbreytt úrval af styttum og tjarnarvörum Skrautsteinar GARÐPLÖNTU- ÚRVALIÐ og allt fyrir garðinn!

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.