24 stundir - 03.07.2008, Page 15

24 stundir - 03.07.2008, Page 15
24stundir FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2008 15 Margir hafa að und-anförnu spáð því aðrík- isstjórn Sjálfstæð- isflokks og Samfylk- ingar standi ótraustum fæti, jafnvel þótt hóp- urinn sé stór sem standi að baki henni. Meira að segja Financial Times bætir sér í umræðuna um stjórnarslit á Ís- landi. Lúðvík Bergvinsson er spurður um þetta í Fréttablaðinu í gær og svarar á þessa leið: Það hefur ekkert komið enn upp sem gerir það að verkum að einhver fótur sé fyrir þessum orðrómi.“ Menn velta því nú fyrir sér hvað hann meini með þessu enn. Á Lúðvík sem sagt von á því að það muni koma að því fyrr en seinna? Egill Helgason gifti sig í gær-kvöldi á grískri strönd,eins og hann segir frá á bloggsíðu sinni og birt er hér til hliðar. Reyndar var vígslan borgaraleg og veislan í blóma- garði. Þó er aðeins vika síðan Egill hneykslaðist á ein- hverju auðmanns- liði sem flykktist á þessa rólynd- iseyju til að halda brúðkaupið sitt. „Einkenni á bænum eru þrjú lítil og einstaklega falleg torg, með kirkjum á milli. Mér skilst að þau verði öll upptekin á laugardags- kvöldið. Ekki er vitað til þess að þetta [fólk]hafi nein tengsl við eyjuna, því finnst þetta bara smartur staður. Mér er sagt að í blöðunum í Aþenu sé farið að kalla Folegandros litlu Mykonos,“ segir Egill súr. Þó að allir tali um kreppuvilja auðvitað allir eignastpeninga og verða ríkir. Guðmundur Magnússon sagn- fræðingur bendir á það á bloggsíðu sinni að eignir auð- kýfingsins Warren Buffetts hefðu hrapað um 20% í Kauphöllinni frá því í desember. Buffett þessi er sagður snillingur í fjármálum og nýlega kom út metsölubók um snilli hans hér á landi. „En nú berast slæmar fréttir. Eignir Buf- fetts hríðlækka í verði. Hinar var- færnu fjárfestingar hans hrapa ekkert síður í kauphöllunum en hlutabréf íslenskra útrásarvík- inga,“ segir Guðmundur. Svo bregðast krosstré sem önnur, bendir hann varfærnislega á. elin@24stundir.is KLIPPT OG SKORIÐ Fyrr í vikunni var kynnt opinber- lega mat greiningardeildar ríkislög- reglustjóra vegna hættu af völdum hryðjuverka og skipulagðrar glæpa- starfsemi hér á landi. Meginniður- stöður þessa mats eru á þá leið að hætta á hryðjuverkum sé lítil hér á landi en hins vegar er vakin athygli á aukinni skipulagðri glæpastarfsemi. Bæði er um að ræða umsvif erlendra glæpahópa hér á landi og starfsemi íslenskra hópa. Stundum er um að ræða samvinnu milli þessara hópa og er það mat greiningardeildar að íslenskir og erlendir glæpamenn muni í auknum mæli starfa saman með skipulögðum hætti. Hinn breytti veruleiki, sem greiningar- deildin lýsir, birtist í því að skipu- lögð glæpastarfsemi færist í vöxt hér á landi og sé að verða fjölbreyttari - það er, nái til fleiri brotaflokka en áður. Er meðal annars vísað til starf- semi hópa sem uppruna eiga í Aust- ur-Evrópu og orðið hefur vart við á undanförnum misserum. Er sérstak- lega tekið fram, að vísbendingar séu um að þessi starfsemi sé umfangs- meiri en flestir höfðu ætlað. Þótt sér- staklega sé vísað til þeirra breytinga, sem stafa af þessum auknu umsvif- um erlendra glæpahópa, er að sjálf- sögðu líka vakin athygli á því að ís- lenskir glæpamenn séu líka stórtækir á þessu sviði. Bent er á hættuna af aukinni hörku í glæpaheiminum vegna þessarar þróunar, bæði í sam- skiptum við lögreglu og einnig vegna átaka milli glæpahópa. Þessar niðurstöður greiningardeildar þurfa í sjálfu sér ekki að koma á óvart. Öll- um sem fylgjast með þessum málum hefur verið ljóst að umfang og eðli brotastarfsemi hér á landi hefur ver- ið að breytast með ýmsum hætti á undanförnum árum. Engu að síður er rökstutt hættumat greiningar- deildar mikilvægt innlegg í umræð- ur um þessi mál – ekki síst fyrir okk- ur þingmenn þegar við fjöllum um hugsanlegar lagabreytingar til að sporna við hættum af þessu tagi. Greiningardeildin hefur það hlut- verk að safna með skipulögðum hætti og leggja mat á upplýsingar sem fyrir liggja um glæpastarfsem- ina og hafa niðurstöður hennar því ótvírætt meira gildi en tilfinning manna fyrir ástandinu eða tilviljana- kenndar upplýsingar sem birtast í fjölmiðlum. Upplýsingar frá grein- ingardeild hafa mikið gildi, bæði þegar kemur að áherslum lögregl- unnar í starfi sínu og einnig þegar löggjöf á sviði refsiréttar og réttarfars er til skoðunar. Ýmsar lagabreytingar hafa verið gerðar á undanförnum árum með hliðsjón af því breytta umhverfi sem lýst er í skýrslu greiningardeildar. Aðrar eru einnig í farvatninu og er þar nærtækast að nefna frumvarp til breytinga á almennum hegningar- lögum, sem allsherjarnefnd Alþingis fjallaði um og samþykkti á vordög- um og bíður afgreiðslu á haustþingi í september. Meginefni þess felst í ákvæðum, sem ætlað er að sporna við skipulagðri glæpastarfsemi og hryðjuverkum og er með þeim ætl- unin að innleiða í íslenska löggjöf efni alþjóðlegra samþykkta á því sviði. Meðal helstu nýmæla eru ít- arleg ákvæði um upptöku eigna, sem miða að því að auðvelda yfirvöldum að gera upptækan ávinning af brota- starfsemi, enda sýnir reynslan að slík eignaupptaka hefur verulegt gildi í baráttunni við afbrot, sem framin eru í hagnaðarskyni. Skipulögð glæpastarfsemi er drifin áfram af hagnaðarvon og fjárhagslegt bol- magn glæpahringjanna ræður að sjálfsögðu miklu um afl þeirra og þá hættu sem af þeim stafar. Með skýr- um og víðtækum ákvæðum um eignaupptöku eru því yfirvöldum færð mikilvæg vopn í þessari bar- áttu. Skýrsla greiningardeildar und- irstrikar mikilvægi þess að framan- greint frumvarp nái fram að ganga. Skýrslan gefur líka tilefni til að hug- að sé að fleiri atriðum í löggjöfinni og má þar nefna ábendingu um að skortur á svokölluðum forvirkum rannsóknarheimildum setji lögreglu meiri takmarkanir en tíðkast í ná- grannalöndunum, til dæmis varð- andi söfnun upplýsinga um einstak- linga eða hópa, sem hætta kann að stafa af. Dómsmálaráðherra hefur í fjölmiðlum tekið undir þetta og jafnframt getið þess, að slíkum víð- tækum heimildum til upplýsinga- söfnunar þurfi að fylgja eftirlit, bæði þannig að dómsúrskurðar yrði kraf- ist í tilvikum af þessu tagi og að starfsemin yrði þar að auki undir eftirliti sérstakrar þingnefndar. Mik- ilvægt er að á vettvangi Alþingis fari fram yfirveguð umræða um þessi efni – umræða sem byggir á stað- reyndum og röksemdum en ekki upphrópunum og gífuryrðum eins og iðulega hefur borið við á und- anförnum árum þegar rætt hefur verið um auknar heimildir yfirvalda í baráttunni við skipulagða glæpa- starfsemi og hryðjuverk. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokks- ins í Reykjavík og formaður allsherjarnefndar. VIÐHORF aBirgir Ármannsson Bæði er um að ræða um- svif erlendra glæpahópa hér á landi og starfsemi íslenskra hópa. Breyttur afbrotaheimur Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu · · · Opið laugardaga í Galleríi Fold, Rauðarárstíg kl. 11–14, lokað á sunnudögum í sumar Rau›arárstígur 14, sími 551 0400 · Kringlan, sími 568 0400 · www.myndlist.is Erum að taka á móti verkum á næsta listmunauppboð Listmunauppboð Fyrir viðskiptavini leitum við sífellt að góðum verkum gömlu meistaranna. Af gefnu tilefni tökum við fram að við vitum ekki til þess að sölulaun séu lægri annars staðar. Jóhannes S. Kjarval Ljósþing óskar eftir að ráða starfsmann. Í starfinu felst: • Ljósleiðaratengingar í brunnum og dreifistöðvum • Ljósleiðaralagnir • Ljósleiðaratengingar í fyrirtækjum og stofnunum Leitað er að nákvæmum og ábyrgum einstakling sem getur unnið sjálfstætt í stóru langtíma Verkefni. Reynsla æskileg en ekki skilyrði. Áhugasamir sendi umsókn á netfangið maggi@ljosthing.is frekari upplýsingar í síma 840-6680 Ljósþing ehf sérhæfir sig í lagningu og tengingu á ljósleiðurum og vinnur næstu árin að stóru langtímaverkefni við ljósleiðaralagnir. Ljósþing ehf – S: 588-0027 Stapahrauni 7 – 220 HF – www.ljosthing.is Ljósleiðaratengingar Vinnulyftur ehf. Smiðsbúð 12 • 210 Garðabæ Sími: 544 8444 • Fax: 544 8440 www.vinnulyftur.is Vinnulyftur og jarðvegstæki til leigu og sölu Erum með fjölbreytt úrval af vönduðum vinnulyftum og jarðvegstækjum til leigu og sölu. Ef þig vantar innilyftur eða stórar útilyftur þá höfum við lausnina. Hafið samband og fáið verðtilboð! STÓRÚTSALA 40 -70% afsláttur Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsunum Fákafeni) www.gala.is • S:588 9925 Opið 11-18 og 11-16 lau.

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.