24 stundir - 03.07.2008, Síða 19

24 stundir - 03.07.2008, Síða 19
24stundir FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2008 19 Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynur@24stundir.is „Fólk er náttúrulega hugsi yfir sinni stöðu. En eins og við sjáum þetta er ennþá ekkert að óttast og við vonumst til að hagræðingin verði í öðru formi en með upp- sögnum starfsfólks,“ segir Ólafur Már Svavarsson formaður starfs- mannafélags SPRON. Tilkynnt var í fyrradag að stjórn- ir SPRON og Kaupþings banka hafi samþykkt samrunaáætlun fyrir- tækjanna tveggja, en Kaupþing mun yfirtaka eignir og skuldir SPRON. Langt og strangt ferli Ólafur segir það hversu langt samningaferlið hefur dregist hafi haft áhrif á andann á vinnustaðn- um, en fyrst var sagt frá sameining- arviðræðum um mánaðarmót apríl og maí. „Þetta er búið að vera langt tímabil, og það er það sem hefur gert fólk helst órólegt. Sem er bara eðlilegt, því þetta hefur áhrif á ýmsa ákvarðanatöku og t.d. frestað verkefnum. En starfsfólk SPRON er þekkt fyrir góðan anda, og er op- ið fyrir breytingum og nýjungum.“ Útibúin verða óbreytt Guðmundur Hauksson, forstjóri SPRON segir að markmiðið með sameiningunni sé að efla báða að- ila. Útibúum verði ekki fækkað og áfram rekin í samkeppni hvert við annað undir sitthvoru vörumerk- inu. „Viðskiptavinir SPRON geta því haldið áfram að fara í sömu útibúin, og hitt þar fyrir sömu ein- staklinga og hafa þjónað þeim hingað til.“ Útibú SPRON eru 7 og öll stað- sett á höfuðborgarsvæðinu. Útibú Kaupþings eru hins vegar 34. Hvað aðrar stærðir varðar er einnig tals- verður munur á bönkunum. Sem dæmi er fjöldi stöðugilda hjá SPRON 295, en 3.324 hjá Kaup- þingi. Eigið fé Kaupþings nemur 416,9 milljörðum króna en eigið fé SPRON 17,8 milljörðum. Engar hópuppsagnir Guðmundur segir að reynt verði að samþætta einhverja rekstrar- þætti, sem sé þó langtímaferli. „Þannig að það stefnir ekki í neinar hópuppsagnir vegna þessa.“ Hann segir of snemmt að segja til um hvort samþættingin þýði uppsagnir starfsmanna á einhverj- um sviðum. Ekki sé hægt að vinna að því fyrr en samþykki liggur fyrir um sam- runann, en samkeppnisyfirvöld, Fjármálaeftirlit og hluthafar í SPRON þurfa að gefa samþykki sitt áður en af samrunanum verður. Hluthafafundur SPRON verður líklega haldinn í byrjun ágúst, en Guðmundur reiknar ekki með að Fjármálaeftirlit og samkeppnisyfir- völd verði búin að segja af eða á fyrr en með haustinu. Hafði áhrif á starfsandann  Starfsmenn SPRON eru hugsi yfir stöðunni vegna sameiningar Samruni Stjórnir hafa samþykkt samruna SPRON og Kaupþings. ➤ Sameiginleg markaðs-hlutdeild SPRON og Kaup- þings á viðskiptabankamark- aði verður um 30%. ➤ Markaðshlutdeild SPRON áviðskiptabankamarkaði hefur verið um 6 til 7%. ➤ Stöðugildi hjá Kaupþingi eru3.324 en stöðugildi hjá SPRON 295. MARKAÐSHLUTDEILDIN MARKAÐURINN Í GÆR               ! ""#                      ! " !   # $  % !   ! &  '()*+ '   , - . /0.  1 2     345     6 1     (   (7/   /81  +9 0 1 - - :  -      ; 1    ;   !   -0   !  "                                                  :-  !  - <  ! # ' >4 ?3@ >AA >5> @35 A3B @BA CA@ C33 4AB 3C5 C3A B5? CD5 ADA D 5>@ AA4 ?D >5? 3AA 44B >@4 B5D 33D DBC ?AA @4 >5C 34A @BC 53C 43C C5 ?5C >>D ?@@ ?D3 B5B @ 4A3 35D , A 3 @>A D5@ ? 5AB 5AD C 4BB >CA , , , D@ B55 AAA , , DE?A 4E?D @BE?5 DE?@ ?5E35 ?>E3A ?4EDA D>5EAA @@EB5 BBEBA 3E3> CEDB ?ECB C@E3A ?E?3 ?C5EAA ?554EAA @54EAA ?>DEAA , , , >DBAEAA ?AEAA , DE?5 4E@C @BE3A DE?B ?5E>A ?>E>A ?4EB5 D>4EAA @@ECA BCE3A 3E>5 CEDC @EAA C@E4A ?E@A ?C4EAA ?5D?EAA @4@EAA ?>BEAA @@EAA , BE5A >B>AEAA , 4EAA /0! - B >B 3> 4C >@ B 3 4D 3A > D5 @A @A > , , B 3 @@ , , , 5 , , F   - - @ D @AAB @ D @AAB @ D @AAB @ D @AAB @ D @AAB @ D @AAB @ D @AAB @ D @AAB @ D @AAB @ D @AAB @ D @AAB @ D @AAB @ D @AAB @ D @AAB ? D @AAB ? D @AAB @ D @AAB @ D @AAB @ D @AAB 3A 4 @AAB 4 ?@ @AAD 3 4 @AAB @ D @AAB @A 4 @AAB D 3 @AAB ● Mest viðskipti í kauphöll OMX í gær voru með bréf Glitnis, fyrir um 850 milljónir króna. ● Mesta hækkunin var á bréfum Teymis, eða 4,71%. Bréf SPRON hækkuðu um 4,70% og bréf Ex- ista um 3,16%. ● Mesta lækkunin var á bréfum Century Aluminum, eða 2,13%. Bréf Føroya Banka lækkuðu um 1,33% og bréf Alfesca um 0,84%. ● Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,32% í gær og stóð í 4.307 stig- um í lok dags. ● Íslenska krónan styrktist um 0,65% í gær. ● Samnorræna OMX40- vísitalan hækkaði um 0,10% í gær. Breska FTSE-vísitalan lækk- aði um 0,98% og þýska DAX- vísitalan um 0,17%. Gengið hefur verið frá sam- komulagi um að Þór Sigþórsson, forstjóri Encode – Íslenskra lyfja- rannsókna, kaupi fyrirtækið af Ís- lenskri erfðagreiningu og tók hann við rekstrinum 1. júlí síðast- liðinn. Fyrirtækið var stofnað árið 1999 en Íslensk erfðagreining keypti það árið 2000. „Þegar fyrirtækið var keypt á sín- um tíma var megináherslan í raun á rannsóknir fyrir Íslenska erfða- greiningu. En starfsemi okkar er nú farin að felast að mestu leyti í þjónustu og vinnu fyrir erlend fyrirtæki,“ segir Þór en hann stofnaði fyrirtækið og hefur stýrt því frá upphafi. „Ég er mjög ánægður með þetta fyrirkomulag og bjartsýnn á fram- haldið.“ Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, tekur í sama streng og fagnar því að starfsemi fyrirtækisins sé áfram tryggð. Dótturfyrirtæki ÍE selt Þýska stórfyrirtækið Siemens greindi frá því í gær að vegna nið- ursveiflu í efnahagslífinu þyrfti að segja upp starfsmönnum á næstunni. Hversu margir missa vinnuna verður ekki gefið upp fyrr en á þriðjudag í næstu viku en þýskir fjölmiðlar hafa sagt að fjöldi þeirra verði um 17.200, víðsvegar um heiminn, eða um 4% af heildar starfsmannafjölda fyrirtækisins. „Við erum að sjá fyrstu skýin á himni viðskiptalífsins og erum því að gera Siemens-veðrið tilbú- ið,“ sagði Peter Loescher, for- stjóri fyrirtækisins. Siemens framleiðir mikinn fjölda ólíkra vara, allt frá ljósaperum til hraðlesta, og starfa alls 435 þús- und manns hjá fyrirtækinu. Þar af eru 136 þúsund starfsmenn í Þýskalandi einu saman. hj Siemens boðar uppsagnir Ákveðið hefur verið að loka Veiðimanninum í Hafnarstræti 5 með haustinu og líkur þar með 70 ára veru verslunarinnar í mið- bænum. Segir í tilkynningu Bráð- ar ehf., rekstarfélags Veiðimanns- ins, að ákvörðunin hafi verið sársaukafull en ekki sé útilokað að verslunin opni á ný ef borg- aryfirvöld framtíðarinnar bæta starfsumhverfi verslana í mið- borginni. hj Veiðimanninum öllum lokið Í grein sem birtist í Financial Time segir Robert Wade, prófessor í stjórnmálahagfræði við London School of Economics, að efnahagsleg vandamál Íslendinga megi rekja til þess að bankarnir hafi verið einka- væddir í of miklum flýti og að stjórnmál hafi ráðið för. Fullyrðir hann jafnframt að uppi sé orðrómur um að Samfylkingin hyggist slíta rík- isstjórnarsamstarfinu og boða til nýrra kosninga. Enda bendi kannanir til þess að Sjálfstæðisflokkurinn kæmi illa út ef kosið væri nú. Þingflokksformenn beggja stjórnarflokkanna, Lúðvík Bergsveinsson og Arnbjörg Sveinsdóttir, segja þessar sögusagnir ekki á rökum reistar. „Það er ekkert til í þessu. Ríkisstjórnin hefur næg verkefni en það er enginn fótur fyrir því að Samfylkingin vilji hlaupa frá þeim, eða hygg- ist slíta þessu samstarfi,“ segir Lúðvík og bætir við: „Ég hef ekki heyrt þann orðróm að minnsta kosti.“ hj Segir ríkisstjórnina í vanda Vaxtaákvörðunardagur Seðla- banka Íslands er í dag. Grein- ingadeildir íslensku bankanna búast allar við að vextir haldist óbreyttir. Segir Bloomberg- fréttaveitan flesta erlenda grein- ingaraðila sammála þeirri spá. hj Vextir óbreyttir? FÉ OG FRAMI frettir24stundir.is a Fólk er náttúrulega hugsi yfir sinni stöðu. En eins og við sjáum þetta er ennþá ekk- ert að óttast. SALA JPY 0,7368 3,02% EUR 124,05 1,83% GVT 158,62 1,98% SALA USD 78,42 1,90% GBP 155,87 2,37% DKK 16,634 1,83% Silfurarmband verð 64,900 kr.

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.