24 stundir - 03.07.2008, Side 32

24 stundir - 03.07.2008, Side 32
32 FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2008 24stundir Allt fyrir útihátíðina veislurnar & partíin pöntunarsími: 6613700 NÚ ERU VAXTA- LAUSIR DAGAR TROMMUSETT – MAGNARAR – GÍTARAR FENDER AMERICAN SERIES 119.900 KR. 9.992 KR. Á MÁNUÐI VAXTALAUST Í 12 MÁNUÐI HLJÓÐFÆRAHÚSIÐ SÍÐUMÚLA 30 108 REYKJAVÍK TAMA IMPERIALSTAR TROMMUSETT 104.900 KR. 8.742 KR. Á MÁNUÐI Í 12 MÁNUÐI VAXTALAUST HEILL HEIMUR AF SKEMMTUN Opið sunnudaga til fimmtudaga 11.00 -24.00 Opið föstudagaoglaugardaga 11.00 - 02.00 Aðþrengdur Afsakið að ég er til! EIGUM VIÐ EKKI BARA AÐ GIFTA OKKUR? ÉG ER ORÐIN LEIÐ Á ÞVÍ AÐ FARA Í RÆKTINA ER ÞAÐ BARA ÉG, EÐA ER ÞETTA FYRIRTÆKI FARIÐ AÐ RÁÐA HVERN SEM ER ÞESSA DAGANA? Bizzaró ÞETTA ER ÞAKKAR- BRÉF FRÁ BÖRNUM LÆKNISINS MÍNS. ÞAÐ ER VÍST MÉR AÐ ÞAKKA AÐ ÞAU FENGU AÐ FARA TIL „DISNEY WORLD“ UM HELGINA MYNDASÖGUR Madonna og Guy Ritchie fara ekki ótroðnar slóðir í baráttu sinni við skiln- aðarsögurnar. Um leið og Guy lenti í New York spáðu menn því að þau myndu sjást á rómantísku stefnumóti áður en langt um liði. Það reyndist rétt því þessi mynd var tekin af hjónunum þar sem þau gengu hönd í hönd út af rómantískum veitingastað í borginni. Sjónarvottar á staðnum sögðu að þau hefðu virst mjög afslöppuð og litu ekki út fyrir að vera að sækjast eftir athygli. Madonna þurfti í vikunni að svara því hvort hún ætti í ástarsambandi við Yan- kee-leikmanninn A-Rod. Hún neitaði því að sjálfsögðu. iav Rómantísk Madonna Eftir Trausta Salvar Kristjánsson traustis@24stundir.is „Meðan við báðir höfum líf og heilsu til, munum við reyna að spila saman, ég og Maggi,“ segir tónlistarmaðurinn Kristján Krist- jánsson, eða KK. Ferðalögin búin Þeir félagar Magnús Eiríksson og KK munu halda uppteknum hætti í sumar sem áður, að spila ferðalögin sín af samnefndum plötum og flytja mörg af sínum þekktustu perlum. Þeir félagar hafa gefið út fimm plötur saman, þar af þrjár ferðalagaplötur, sem notið hafa mikilla vinsælda. Þeir segjast þó ekki eiga von á annarri slíkri. „Ég held að það sé komið nóg í bili. Það eru allir farnir að gera þetta, Megas og allt! En við erum búnir með þennan pakka,“ segir KK og Magnús tekur undir það. „Þessir diskar njóta enn vinsælda, tuðast út alveg. Og það er alltaf þannig með það sem vinsælt er, að það herma allir eftir því.“ Leggja kannski land undir fót Þeir félagar fóru til Kína í fyrra við góðan orðstír og nú gætu öll vötn fallið til Chile. „Maggi hefur farið þarna áður og kynntist hljómsveit, sem hann kallar Dalamenn. Hann lagði til að ég kæmi með því ég sagði hon- um að ég væri Dalamaður, úr beinum karllegg aftur í landnáms- öld og við skyldum stofna hljóm- sveitina Dalamenn, því Maggi er Dalamaður sjálfur!“ segir KK. Iðnir við kolann Þeir félagar munu spila á Borg í Grímsnesi núna á fimmtudaginn og í Fossatúni í Borgarbyggð, næstkomandi sunnudag. Sama dag verða þeir á Hótel Ólafsvík, en um verslunarmannahelgina verða þeir í Félagsheimilinu að Flúðum á laugardeginum og Hótel Geysi í Haukadal á sunnudeginum. Vegbúnir Líklegra er að fé- lagarnir ferðist í vel búnum jeppa Óttars Felix Hauks- sonar, heldur en með rútu. Tveir dægurkóngar á ferð og flugi í sumar Maggi Eiríks og KK í ferðalag Tveir af ástsælustu tón- listarmönnum Íslands, Magnús Eiríksson og Kristján Kristjánsson, leggja upp í árlega ferð sína um landið, þar sem þeir taka ferðalögin sín, auk helstu dægurperla. FÓLK 24@24stundir.is a „Meðan við báðir höfum líf og heilsu til, munum við reyna að spila saman, ég og Maggi,“ segir tónlistarmaðurinn Kristjáns Krist- jánsson, eða KK. fréttir

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.