24 stundir - 23.07.2008, Síða 9
24stundir MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 2008 9
Breskir eiginmenn geta ekki
lengur borið við nöldri eigin-
kvenna sinna sem ástæðu fyrir að
myrða þær. Að sama skapi geta þeir
ekki lýst sig saklausa með því að
segjast hafa framið ástríðuglæp
vegna framhjáhalds maka síns.
Þessari lagabreytingu er ætlað að
tryggja að tekið sé á heimilisofbeldi
á sama hátt og öðru ofbeldi.
Flestir karlmenn sem myrða eig-
inkonur sínar á Bretlandi beita
ástríðunni fyrir sig í vörninni. Lög-
menn þeirra um 100 manna sem
mæta fyrir dómstóla ár hvert vísa
til nöldurs eiginkonunnar eða
slæmrar eldamennsku, morðingj-
anum til málsbóta.
Bætt réttarfar á Bretlandseyjum
Ástríðuglæpir
slegnir af Yfirvöld í Lahn-Dill-héraði í Hessen í suðurhlutaÞýskalands rannsaka fullyrðingar náttúruunnenda
þess efnis að brúnbjörn vappi um skóglendi héraðsins.
Fjöldi fólks segist hafa séð björninn undanfarinn mán-
uð. Raunar gengur eitt vitnið svo langt að segja tvo
birni hafa gengið framhjá sér 19. júní síðastliðinn.
Lögreglan hefur fengið bjarnasérfræðinga frá dýra-
garðinum í Þýringalandi til liðs við sig. Þeir hafa rann-
sakað ítarlega svæðin, þar sem til meintra bjarnardýra
hefur sést. Til þessa hafa aðeins fundist spor eftir
klaufdýr – sem þykir benda til þess að villisvín hafi átt
leið um svæðið.
Síðasta sjónarvitnið er maður sem segist hafa staðið
augliti til auglitis við björn á sunnudag. Segist hann
vita fullvel hvernig birnir líti út og segir af og frá að um
villisvín hafi verið að ræða.
Sérfræðingar segja að brúnbirnir þyrftu að leggja á
sig ferðalag yfir Alpafjöllin til að skjóta upp kollinum í
Þýskalandi. Það gerðist síðast í Bæjaralandi árið 2006.
Þeim birni var gefið nafnið Bruno, og var honum ban-
að af veiðimanni á vegum ríkisins. andresingi@24stundir.is
Þýskir útivistarmenn sjá rándýr í hverju horni
Víða leynast huldubirnir
Birna með húna
Eða villigylta með
gríslinga?
Kambódía hefur farið þess á
leit við öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna að það hlutist í deilu
landsins við grannríkið Taí-
land vegna gamals hofs. Und-
anfarna viku hafa 500 taí-
lenskir og um 1000
kambódískir hermenn um-
kringt Preah Vihear-hofið,
sem er við landamæri
ríkjanna tveggja. Alþjóðadóm-
stóllinn í Haag úrskurðaði ár-
ið 1962 að svæðið umhverfis
hofið tilheyrði Kambódíu, en
því hafna stjórnvöld í Bang-
kok.
Taíland og Kambódía
Karpa um hof
Óttast er að hundruð erlendra
starfsmanna við breska flug-
velli hafi aðgang að örygg-
issvæðum án þess að glæpa-
ferill þeirra hafi verið
kannaður nægjanlega vel, að
því er segir í skýrslu sem út
kom í gær. Þrátt fyrir viðvar-
anir um að hryðjuverka-
samtök gætu reynt að lauma
mönnum á sínum vegum inn
á flugvelli, kanna yfirvöld ekki
erlendan glæpaferil þeirra sem
hefja störf. Leggja skýrsluhöf-
undar til að úr þessu verði
bætt hið fyrsta. aij
Flugvellir í Bretlandi
Slakt öryggi
Ríkisstjórn Argentínu hefur
þjóðnýtt flugfélag landins að
nýju, tæpum tveimur áratug-
um eftir að það var einkavætt.
Fyrsta verk nýrrar yfirstjórnar
var að kyrrsetja nærri helming
67 flugvéla félagsins, þar sem
viðhaldi þótti ábótavant.
Rekstur flugfélagsins hefur
lengi gengið illa. Það skuldar
um 70 milljarða króna og bæt-
ast um 80 milljónir við reikn-
inginn dag hvern. aij
Flugfélag Argentínu
Endurþjóðnýtt