24 stundir - 23.07.2008, Blaðsíða 16
Eftir Maríu Ólafsdóttur
maria@24stundir.is
Eftir að hafa verið rekinn úr ung-
lingavinnunni fyrir mistök ákvað
Brynjar Kjærnested að stofna sitt
eigið garðþjónustufyrirtæki sem í
dag heitir Garðlist. „Uppsögnin
var áfall fyrir 12 ára gutta en ég fór
heim og lagði höfuðið í bleyti og
þegar hringt var í mig nokkrum
dögum seinna og mér boðin vinn-
an aftur afþakkaði ég þar sem þá
hafði ég sjálfur keypt mér sláttuvél
með fjárhagsaðstoð frá föður mín-
um. Það var heilmikið að gera hjá
mér og sumarið eftir réð ég strák í
vinnu hjá mér en síðar slóst bróðir
minn í hópinn og hann var á bíl
þannig að þá gátum við boðið
þjónustuna um alla borg. Í gegn-
um árin hefur reksturinn síðan
undið upp á sig og margir við-
skiptavinir bæst þannig í hópinn
að þeir hafa séð verk okkar í garði
nágrannans og líkað vel,“ segir
Brynjar.
Kröfuharðir
Viðskiptavinir fyrirtækisins eru
margir hverjir í áskrift að þjónustu
og er þá garðurinn sleginn hjá
þeim á tveggja vikna fresti og beðin
hreinsuð um vor og aftur að
hausti. „Líkt og viðskiptavinir okk-
ar erum við mjög kröfuharðir og
hjá okkur starfa eftirlitsmenn sem
eitra garðana eftir hreinsun og sjá
til þess að allt sé vel gert. Við bæt-
um við mannskapinn yfir sum-
artímann og þá byggist starfsliðið
upp á skólafólki sem við þjálfum í
allt að einn og hálfan mánuð sem
skilar sér í góðri þjónustu en nú yf-
ir sumartímann erum við mest að
tyrfa, hreinsa, klippa og slá,“ segir
Þorsteinn Kr. Haraldsson, rekstr-
arstjóri fyrirtækisins.
Rafrænar sláttuvélar
Fyrirtækið hefur nú tekið í
notkun fjarstýrðar sláttuvélar sem
eru frábrugðnar að því leyti að þær
eyðileggja ekki manir líkt og venju-
legar vélar eiga það til að gera þeg-
ar þær festast og spóla. Rafrænu
vélarnar má nota í 50 gráðu halla
án vandkvæða og þær skilja ekki
eftir sig ljót för í grasinu.
Tyrfa, hreinsa, klippa og slá garða
Kröfuharðir líkt og
viðskiptavinirnir
➤ Starfsfólk fyrirtækisins erþjálfað í allt að einn og hálfan
mánuð sem tryggir vandaða
þjónustu.
➤ Margir viðskiptavinir hafabæst í hópinn þannig að þeir
hafa séð verk í garði ná-
grannans sem þeim hefur lík-
að vel.
GARÐLISTFyrirtækið Garðlist býður
upp á fjölbreytta garð-
þjónustu sem æ fleiri
nýta sér. Það var stofnað
fyrir tæpum tuttugu ár-
um þegar ungur drengur
var rekinn úr unglinga-
vinnunni fyrir mistök og
keypti sér sláttuvél.
Alhliða Garðlist býður
marghliða garðþjónustu.
16 MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 2008 24stundir
Fyrir sumarbústaði á örlítið af-
skekktari stöðum getur verið snúið
að koma sér í samband við raf-
magn. Fyrirtækið Skorri ehf. hefur
um árabil selt sólarrafhlöður sem
henta einkar vel fyrir þá sem í þess-
um aðstæðum eru en fyrirtækið
hefur flutt þær inn frá árinu 1985.
Að þeirra sögn hefur úrvalið svo
þróast út í ýmsar aðrar vörur fyrir
rafmagnslausa sumarbústaði, t.d.
gasvörur á borð við eldavélar, ís-
skápa og vatnshitara.
Umhverfisvænt og hættulaust
Einn kosta sólarrafhlaðna er að
af þeim stafar lítil sem engin eld-
hætta og rafmagnslausir sumarbú-
staðir geta hætt að reiða sig á olíu-
lampa og kerti. Og rafmagnið sem
þær framleiða er ekki einungis til
að lýsa upp bústaðinn heldur er
hægt að hafa hin ýmsu tæki í bú-
staðnum, t.d. sjónvörp, tölvur og
vatnsdælur.
Frekar lítið mál er að koma sól-
arrafhlöðum upp en best er að
koma þeim fyrir á þaki sumarhúss
eða hjólhýsis. Einnig þarf að vera
með rafgeymi til staðar sem hleðst
jafnt og þétt á meðan sólin skín og
þannig er tryggt að rafmagn sé
ávallt til staðar.
Margir halda að aðstæður á Ís-
landi séu ekki góðar til orkufram-
leiðslu en það er alrangt. Þvert á
móti eykst orkuframleiðslan eftir
því sem loft er kaldara og því eru
aðstæður hérlendis prýðilegar til
þess að reka sína eigin sól-
arrafveitu. Og svo eru þær líka um-
hverfisvænar. hj
Sólarrafhlöður geta leyst rafmagnsvanda hjólhýsa og sumarhúsa
Vertu þinn eigin rafmagnsstjóri
Fyrirferðalitlar Sól-
arrafhlöðurnar er best að
hafa á þaki hússins.
Sumarhús og garður
Umsjónarmenn:
Svanhvít
Ljósbjörg
svanhvit@24stundir.is
Kristjana
Guðbrandsdóttir
dista@24stundir.is
María
Ólafsdóttir
maria@24stundir.is
UNDRI
GARÐA
hreinsir
VERNDUM NÁTTÚRUNA – NOTUM UNDRA
Góður
í garðinn, á grillið,
pottinn og pallinn
Hreinsar mosa
og græna slikju
SJÁLFLÍMANDI HNÍFAPARASKORÐUR
Gullkistan - Frakkastíg 10 - Sími: 551-3160.
Hjálpa þér að halda öllu í skorðum í skúffum.Einning sjálflímandi filt
tilað klæða skúffur og filt með verjandi efni svo ekki falli á silfur og
silfur-plett.Við eigum líka fægilög, fægiklúta og ídýfulög til að hreinsa.
SENDUM Í PÓSTKRÖFU.
24 stundir/Valdís Thor