24 stundir - 23.07.2008, Page 17
Ert þú einn af þeim sem njóta
þess að fylgjast með fuglalífinu út
um gluggann? Þá eru nokkrir hlut-
ir sem þú getur gert til þess auka
vinsældir garðsins þíns á meðal
fuglanna í nágrenninu.
Matur er auðvitað helsta að-
dráttaraflið en þótt vissulega sé
auðveldara fyrir fuglana að afla
sér fæðu á sumrin þá munu
margir þeirra velja þennan kost.
Margir fuglar eru t.d. hrifnir af
alls konar fræjum á borð við
sólblómafræ.
Berjarunnar eru skiljanlega vin-
sælir líka, ekki einungis vegna
gómsætu berjanna heldur veita
þeir líka gott skjól.
Vatn er fuglum mikilvægt eins og
svo mörgum öðrum en ekki ein-
ungis til drykkjar heldur er mik-
ilvægt fyrir þá að halda fiðrinu
hreinu og vatnsþéttu og böð aðstoða
við það. Hægt er að kaupa sértilbúin
fuglaböð en nokkurra sentimetra
djúp skál eða panna er nægilega
spennandi fyrir flesta fugla.
Loks getur hjálpað að setja niður
nokkur blóm og um að gera að
leyfa þeim að standa þótt þau visni
því einhverjir gætu viljað kroppa í
þau. Þá er einnig mikilvægt að
huga að því að kettir hafi ekki of
auðveldan aðgang að fiðruðu vin-
unum þínum í garðinum.
hj
Hvernig lokkar maður fuglana til sín?
Fiðraður félagsskapur í garðinum
24stundir/Sverrir
Vinalegt Margir leggja á sig vinnu til þess að
losna við fugla úr garðinum, jafnvel til að losna
við hljóðmengun í morgunsárið, en aðrir njóta
þess að fylgjast með fuglalífinu út um gluggann.
Yu Yuan-garðurinn í Kína var
byggður á Ming-tímabilinu fyrir
400 árum síðan og er í dag verð-
mæt arfleifð. Í garðinum má
finna mjög fágæta steina, fallegan
gróður og tré en þar er einnig
rekinn markaður sem laðar að
sér fjöldann allan af ferðamönn-
um.
Garður frá
Ming-tímabilinu
Það er ekki hægt að segja að í Ver-
sölum í París ríki látlaus stíll ríkj-
um og það sama má segja um
garða hallarinnar. Þeir voru hann-
aðar af André Le Nôtre sem var
fróður um plöntur, arkitekt og list
en sólkonungurinn sjálfur skrifaði
leiðarvísi um hvernig gestir fengju
best notið garðsins.
Garður hæfur
sólkonungi
Blómabreiður fylla Butchart-
garðinn á Vancouver-eyju en upp-
bygging hans hófst árið 1904 þegar
Jennie Butchart hófst handa við að
fegra umhverfið í kringum ónýtta
grjótnámu. Afkomendur Jennie sjá
um garðinn í dag en innan hans er
meðal annars ilmandi rósagarður
frá tíð hennar.
Skrýddur
blómabreiðum
Þeir sem dvelja löngum stundum
við garðrækt tala gjarnan um hve
afslappandi slík vinna sé og því
ekki úr vegi fyrir sem flesta að
prófa að vinna í garðinum eina
dagstund. Ferska loftið hefur góð
áhrif á líkama og sál auk þess sem
garðurinn lítur mun betur út eftir
á. Það er ýmislegt sem má gera í
garðinum til að fegra hann án þess
að taki mikinn tíma eða vinnu.
Það má til dæmis finna fallegt grjót
víðs vegar um land og mála það
auk þess sem strandargrjót utan úr
heimi getur verið einkar fallegt
innan um íslenska grjótið.
Afslöppun
í garðinum
Geymsluskápar fyrir gashylki.
Hannaðir í samráði við og samþykktur af Brunamálastofnun.
Einangraðir útiskápar fyrir hita-
veituinntök og varmaskipta.
1,5 mm stál,
galvaniseraðir og
sprautulakkaðir.
Þriggja punkta læsing.
Upphengigrind fáanleg.
Til í tveim stærðum.
A. h 94, b 79, d 32,5 sm
B. h 150, b 75, d 45 sm.
Einangruð
PEX-hitaveiturör
í sumarhús, bændabýli og íbúðarhús.
Hámarks einangrun – lágmarks
hitatap. Sérstök framleiðsluaðferð
tryggir einangrunargildið í áratugi.
Framleitt samkvæmt ISO 9001
gæðastaðli.
ÍSRÖR ehf | S. 565-1489 | Hringhella 12 | 221 Hafnarfjörður
Henta fyrir sumarhús, íbúðarhús og húsbíla.
1,5 mm galvaníserað og duftlakkað stál.
Utanmál í mm: h: 850, b: 750 og d: 350.
Veggfestingar fáanlegar
Skápurinn er gerður fyrir tvær 11 kg gosflöskur
og er með læsingu. Hann fæst í tveimur litum,
grár og grænn.
Sumarhúsa- og landeigendur
SÓLSTOFUR – SVALA-LOKANIR
Sem dæmi um notkun hér á landi:
Fyrir einkaheimili: Stofur, sólstofur, borðstofur, el-
dhús, svalalokanir, sumarbústaðir og margt fleira.
Fyrir atvinnuhúsnæði: Veitingahús, hótel,
verslunarhúsnæði, söluskálar, barnaheimili
og margt fleira.
Viðhaldsfríar með sólarvarnargleri
Verkhönnun
Kirkjulundi 19, 210 Garðabæ, Sími 565 6900,
Veffang: verkhonnun.com, Netfang verkhonnun@simnet.is
Four Seasons glerbyggingar eru
frábær lausn sem hefur verið
mikið notuð á Íslandi.
Glerið er háeinangrandi með
mjög góðri sólarvörn og er öryg-
gisgler.
Glerið gerir húsin að 100%
heilsárshúsum. Tré-ál eða ál
útfærsla.
www.verkhonnun.com
24stundir MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 2008 17