24 stundir - 23.07.2008, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 2008 24stundir
ig í gegnum segulbandasafn á
Árnastofnun og fékk þaðan 600
viðtöl við fólk sem segir af kynnum
sínum við kynjadýr. Gagnasöfnun-
in tók í rauninni mörg ár,“ segir
Sigurður og bætir við að tilgang-
urinn með bókinni sé að varðveita
sögur þessa fólks.
Fyrir alla aldurshópa
„Þetta efni hefur hingað til legið
í gömlum skruddum og verið mjög
óaðgengilegt nútímafólki. Það sem
vakti fyrir okkur var einfaldlega að
flytja þennan arf yfir á 21. öldina
og sýna Íslendingum hvað þeir
eiga,“ segir Sigurður sem er viss
um að allir aldurshópar geti haft
gaman af bókinni.
Ný bók sem fjallar um íslensk furðudýr
Fólk trúði því að
þessi dýr væru til
Út er komin bókin Ís-
lenskar kynjaskepnur eft-
ir Sigurð Ægisson og Jón
Baldur Hlíðberg. Í bók-
inni eru rifjaðar upp
helstu þjóðsögur og
munnmælasögur um ís-
lensk kynjadýr og
ófreskjur.
Sigurður Æg-
isson Með eintak
af bókinni Íslensk-
ar kynjaskepnur.
Hrosshvalur Ein af þeim kynjaskepn-
um sem koma fyrir í bókinni.
Eftir Hauk Harðarson
haukurh@24stundir.is
„Það er alveg klárt að fólk trúði
þessum sögum hér áður fyrr því
bókin er öll byggð á heimildum,“
segir Sigurður Ægisson, guðfræð-
ingur og þjóðfræðingur. Hann
skrifar textann í bókinni Íslenskar
kynjaskepnur en myndlistarmað-
urinn Jón Baldur Hlíðberg teiknar
glæsilegar myndir í bókina.
Gríðarleg heimildavinna
Sigurður segir að Jón Baldur hafi
fengið hugmyndina að gerð bók-
arinnar og hafi beðið sig um að
taka að sér textagerð en henni
fylgdi gríðarleg heimildavinna. „Ég
fór í gegnum öll þjóðsagnasöfnin
og allt sem mér datt í hug sem ég
hélt að myndi gagnast. Ég fór einn-
LÍFSSTÍLL
lifsstill@24stundir.is a
Það er alveg klárt að fólk trúði þessum
sögum hér áður fyrr því bókin er öll
byggð á heimildum.
Eins og fyrri sumur bjóða Borg-
arbókasafn, Listasafn Reykjavík-
ur, Ljósmyndasafn Reykjavíkur,
Minjasafn Reykjavíkur og Viðey
upp á miðbæjargöngur klukkan
20 alla fimmtudaga í sumar.
Gangan á morgun ber yfirskrift-
ina Kennileiti minninganna en
þar mun Sigurlaug Ragnarsdóttir
listfræðingur leiða göngugesti í
gegnum sögu útilistaverka í mið-
borginni. Lagt verður af stað úr
Grófinni annað kvöld klukkan 20
og er þátttaka ókeypis.
hh
Fræðandi kvöldgöngur úr Kvosinni fyrir alla
Förum varlega í akstri um Ísland og höfum hugfast að ferðalagið er jafnmikil upplifun og áfangastaðurinn.
Mörgum hættir við að bruna framhjá markverðum stöðum og aldrei að vita hverju þú missir af ef farið
er um í óðagoti.
Ferðumst um landið – en förum okkur hægt og komum heil heim.
Ekki geysast í gegn!
TB
W
A
\R
EY
KJ
A
VÍ
K\
SÍ
A
90
80
33
9
40
60 80 100
120
30
Bolungarvík
menning