24 stundir - 26.07.2008, Side 4

24 stundir - 26.07.2008, Side 4
4 LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2008 24stundir Eftir Elías Jón Guðjónsson elias@24stundir.is „Það eru bara ráðnar hreindýraskytt- ur á 30 þúsund kall á dag,“ segir Frið- rik Jóhannsson, ferðaþjónustubóndi hjá Grunnuvík, um hópa á leið til Hornstranda. „Þetta er orðið mjög algeng hjá þeim sem þora að koma. Svo eru aðrir sem bara afpanta ferð- irnar,“ segir hann og vísar þar til ótta við ísbirni á Hornströndum. Frikrik tekur fram að hann útvegi ekki skytt- ur. Mikið tjón „Upphlaupið í Hælavíkinni um síðustu helgi er búið að kosta okkur eina og hálfa milljón vegna afpant- aðra ferða. Þannig að þetta er ekkert grín,“ segir Friðrik. „Ég segi fyrir mína parta að ég hef engan áhuga á því að mæta svona kvikindi í fjör- unni. Þannig að ég skil þetta að mörgu leyti,“ bætir hann við. Eftirlit nauðsynlegt Friðrik gagnrýnir stjórnvöld fyrir að sinna ekki nægilega vel eftirliti með ferðum ísbjarna. „Þau koma ekki nema það sé útkall. Það á auðvit- að bara að vera eftirlit ef við ætlum að halda ferðaiðnaðinum hér áfram,“ segir Friðrik og bætir við: „Það verð- ur bara að taka þetta alvarlega. Fyrst þeir komu á Skaga, af hverju ekki hingað því þetta eru þekktar ísbjarna- slóðir hér beint á móti Grænlandi.“ Friðrik telur að best væri ef Land- helgisgæslan sinnti eftirlitinu. „Hún er með tækin og hún er með þjálf- aðan mannskap en hún þarf bara fjárveitingu í þetta.“ Gönguhópar á Hornströndum eru farnir að taka með sér vanar hreindýraskyttur í gönguferðir Vígvæðing á Hornströndum ➤ Vitað er til þess að tveir ís-birnir hafi gengið á land á árinu. Þeir hafa báðir verið felldir. ➤ Síðan þá hafa margir talið sighafa séð ísbirni. TVEIR BIRNIR Hornbjarg Ótti við ísbirni fælir fólk frá fegurðinni. Eftir Atla Ísleifsson atlii@24stundir.is Neysla Íslendinga á offitulyfjum hefur nærri tvöfaldast á rúmu hálfu ári. Samkvæmt tölum frá Trygg- ingastofnun neyttu Íslendingar um 31 þúsund dagskammta af offitu- lyfjum á fjórða fjórðungi síðasta árs, en rúmlega 59 þúsund á öðr- um fjórðungi þessa árs. Aðstoðar- landlæknir bendir á að lyfin séu alls engin töfralyf. Ekki heppileg þróun Neyslan hefur aukist mest á lyf- inu Reductil síðustu mánuði, en lyfið virkar á miðtaugakerfið og leiðir til aukinnar mettunartilfinn- ingar og viðheldur brennslu í lík- amanum. Notkun á lyfinu Acomplia hefur einnig aukist mik- ið það sem af er ári. Magnús Jóhannsson, læknir hjá Lyfjastofnun, segist ekki kunna neina skýringu á þessari gríðarlegu aukningu. „Það er helmingsaukn- ing á rúmu hálfu ári. Ég tel þetta ekki heppilega þróun. Við leysum ekki offituvandann með lyfjum, heldur þarf að gera það með öðr- um leiðum.“ Konur í miklum meirihluta Tölur frá landlæknisembættinu sýna að um þúsund Íslendingar neyta offitulyfja, og eru um 80 pró- sent þeirra konur. Matthías Halldórsson aðstoðar- landlæknir segir samanburð á dagskömmtum að vissu leyti vara- saman, þar sem skilgreiningar geti breyst. Þá sé betra að skoða ár fyrir ár. „Þetta getur þó bent til þess að Reductil sé að sækja á, kannski vegna þess að hættan á hækkuðum blóðþrýstingi hefur ekki verið eins mikil og upphaflega var talið.“ Engin töfralyf Matthías segir offituvandann smám saman hafa verið að aukast hér eins og annars staðar á Vest- urlöndum og víðar. Hann segir lyf- in geta haft ýmsar aukaverkanir. Þannig megi ekki gefa þeim sem eru með of háan blóðþrýsting lyfið Reductil og Acomplia geti haft áhrif á sálarlífið. Hann segir marga hafa haft oftrú á lyfjum við offitu. „Þetta eru alls engin töfralyf. Þau eru meira ætluð til að aðstoða fólk sem er ákveðið í að gera eitthvað í sínum málum. Það þýðir ekkert að taka bara töfl- urnar, heldur þarf að breyta um lífsstíl, mataræði og auka hreyf- ingu.“ Neysla offitulyfja tvöfaldast á hálfu ári  Neyslan hefur farið úr 31 þúsund dagskömmtum á 4. ársfjórðungi 2007 í 59 þúsund dagskammta á 2. fjórðungi þessa árs  Aðstoðarlandlæknir segir offitulyfin engin töfralyf NOTKUN OFFITULYFJA 50.000 45.000 40.000 35.000 30.000 25.000 20.000 15.000 10.000 5.000 0 2003 2004 2005 2006 2007 2008 Lyfjanotkun mæld í fjölda skilgreindra dagskammta. Tölur frá Tryggingastofnun ríkisins. Reductil Xenical Acomplia 14.420 19.348 44.891 4.228 9.944 4.872 ➤ Offita og ofþyngd er stóráhættuþáttur fyrir ýmsa sjúk- dóma og aðra fylgikvilla. ➤ Meðal þeirra eru sykursýkitegund 2, hjarta- og æða- sjúkdómar, háþrýstingur, ým- is krabbamein, röskun á blóð- fitu, slitgigt, mæði o.fl. OFFITA Matthías Halldórsson aðstoðarlandlæknir Hestur sem Sæunn Oddsdóttir á Steinum í Stafholtstungum lán- aði til hestaferðar fyrir þremur ár- um fannst nýlega í Þýskalandi. Er haft eftir Sæunni í Skessuhorni að sá sem fékk hann lánaðan hafi neitað því ítrekað að hann hefði hestinn í girðingunni hjá sér en hún hafi komist að því að hann hefði látið örmerkja hestinn, breytt nafni hans og ættfærslu og selt til Þýskalands. Upp komst um glæpinn vegna þess að kaupand- inn í Þýskalandi samþykkti að DNA-strok væri tekið úr honum til ættgreiningar, sem staðfesti grun Sæunnar. Bannað er að flytja hesta hingað til lands vegna smit- hættu og því kemur hesturinn ekki til baka en Sæunn hefur fengið hestinn bættan. þkþ Hestur fundinn sem stolið var í hestaferð Fannst í Þýskalandi Hitinn í Reykjavík fór mest í 22 gráður í gær og þar með varð dagurinn sá hlýjasti á höfuðborgarsvæðinu í ár. Sunnan- og vestanlands fór fólk heldur ekki varhluta af hlýindunum og fór hitinn upp í 23 stig á Þingvöllum og við Hjarðarland í Biskups- tungum. Að sögn Haraldar Eiríkssonar á Veðurstofu Íslands mun blíðan haldast hér eitthvað áfram og er hlýindum spáð vel fram eftir næstu viku. mbl.is Blíðan í gær Dagurinn sá hlýjasti á árinu Tólf mánaða verðbólga mælist nú 13,6% og hefur ekki verið meiri síðan í ágúst 1990, þegar hún mældist 14,2%. Vísitala neysluverðs í júlí hækkaði um 0,94% frá fyrra mánuði, en sérstaka athygli vekur að vísi- talan án húsnæðis hækkaði um 0,87%. Verð á nýjum bíl- um hækkaði um 5,3%, en á bensíni og dísilolíu um 2,0%. Þá hækkaði verð á mat og drykkjarvörum um 2,2%. aí Vísitala neysluverðs Verðbólgan sú mesta í 18 ár Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær 25 ára karlmann í 18 mánaða fangelsi fyrir fíkniefnalagabrot og umferð- arlagabrot. Með brotum sín- um rauf maðurinn skilyrði reynslulausnar, en hann hefur áður hlotið fjölda dóma. Hann játaði skýlaust brot sín. Maðurinn var nú dæmdur fyr- ir vörslu á 52 g af amfetamíni, 2 g af marijúana og 14 g af kókaíni, auk þess að hafa ekið bíl án þess að hafa endurnýjað ökuréttindi sín. aí Fíkniefnalagabrot Síbrotamaður fær nýjan dóm Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda. Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is Neytendasamtökin könnuðu verð á 336 g dós af Meta- mucil í lyfjaverslunum. Verðmunur á lægsta og hæsta verði er 556 krónur en það er ódýrast í Garðsapóteki. Ekki er heimilt að vitna í þessa könnun í auglýsingum. 28,3% munur á Metamucil Ragnhildur B. Guðjónsdóttir NEYTENDAVAKTIN Metamucil 336 g dós Apótek Verð Verðmunur Garðsapótek 2.000 Laugarnesapótek 2.100 5,0 % Apótekið 2.109 5,4 % Lyfjaver 2.122 6,0 % Lyfja 2.149 7,4 % Lyfjaval 2.400 20,0 % Árbæjarapótek 2.566 28,3 %

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.