24 stundir - 26.07.2008, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2008 24stundir
Óhætt er að neyta kjöts og
mjólkur af einræktuðum
skepnum, að mati Matvæla-
öryggisstofnunar Evrópu,
EFSA. „Efnasamsetning og
næringargildi kjöts og mjólk-
ur af klónuðum dýrum og af-
kvæmum þeirra er í engu ólík
þeim dýrum sem til verða með
hefðbundnari hætti,“ segir
Vittorio Silano, yfirmaður vís-
indadeildar EFSA, en segir þó
að gögn vanti til að slá megi
því föstu að alls engin hætta
felist í neyslu kjöts af klón-
uðum dýrum. aij
Evrópusambandið
Óhætt að borða
klónuð dýr
STUTT
● Hnetuát Radovan Karadzic
neitar að leggja sér fangelsisfæði
til munns. Borðar hann aðeins
lindarvatn, heslihnetur og rús-
ínur – sem hann segir að sé
hluti af mataræði sem muni
tryggja að hann nái 120 ára
aldri.
● Of fullir Vafi leikur á hvort
diskóteki í Danmörku sé
heimilt að skrá fingraför gesta
sinna. Þótt gagnasöfnunin sem
slík standist persónuvernd-
arlög, gæti verið að gestirnir
séu í of annarlegu ástandi til
að veita upplýst samþykki.
● Sofið á verðinum Þrír menn
á vegum bandaríska flughersins
sofnuðu þegar þeir áttu að vera
að gæta langdrægra kjarna-
flauga í Norður-Dakóta á dög-
unum. Talsmenn hersins segja
enga hættu hafa verið á ferðum.
Eftir Andrés Inga Jónsson
andresingi@24stundir.is
Undanfarin sextíu ár hefur breski
Verkamannaflokkurinn getað
gengið að kjósendum í austurhluta
Glasgowborgar vísum. Í þingkosn-
ingunum fyrir þremur árum kusu
flokkinn 13.507 fleiri en næsta
flokk á eftir – góður 60% meiri-
hluti.
Nú hefur viðsnúningur orðið á
viðhorfum kjósendanna. Auka-
kosningar voru haldnar í austur-
hluta Glasgow á fimmtudag. Í gær
varð ljóst að Verkamannaflokkur-
inn hafði goldið afhroð – misst um
19% fylgis síns. Skoski þjóðar-
flokkurinn hlaut 365 atkvæði um-
fram Verkamannaflokkinn og kom
sínum manni því inn á þing.
Brown kallaður til ábyrgðar
Aukakosningarnar í Glasgow
austur eru þær síðustu í röð ósigra
Verkamannaflokksins að undan-
förnu. David Cameron, leiðtogi
Íhaldsflokksins, segir fylgistap
Verkamannaflokksins vekja spurn-
ingar um það hvort flokknum sé
vært á valdastóli.
„Ég velti því fyrir mér hvort við
getum látið bjóða okkur þetta
næstu 18 mánuði,“ segir Cameron,
sem hvetur til að boðað verði til
nýrra kosninga. „Alls staðar þar
sem fólki hefur gefist færi á að sýna
afstöðu sína til ríkisstjórnarinnar í
verki – í sveitarstjórnarkosningum,
í aukakosningum í Crewe eða Hen-
ley, í borgarstjórakosningum í
Lundúnum og nú í Glasgow – hef-
ur það kallað eftir breytingum.“
Gordon Brown vísar tillögum
Camerons á bug. „Ég tel að verk-
efni mitt sé að stýra þjóðinni í
gegnum það erfiða efnahagsástand
sem nú er,“ segir Brown. Sömu
augum lítur hann umræðu um að
hann víki til hliðar sem leiðtogi
Verkamannaflokksins.
Nýrrar stefnu þörf?
Alex Salmond, formaður Skoska
þjóðarflokksins, fagnar niðurstöð-
um kosninganna í Glasgow austur,
enda sé nýkjörni þingmaðurinn
John Mason framúrskarandi
fulltrúi kjördæmisins. Salmond
tekur ekki jafndjúpt í árinni og
David Cameron.
„Skilaboðin eru að Brown þurfi
að skipta um stefnu eða skipta um
starf,“ segir Salmond. „Það eru
samt litlar líkur á að verði boðað til
kosninga í bráð. Það sem þjóðin
þarf er stefnubreyting. Við getum
ekki leyft landinu að steypast í
kreppu. Við þurfum aðgerðir gegn
verðhækkunum sem koma illa við
pyngju fjölskyldufólks og gegn
orkuverði.“
Austurhluti Glasgow hefur orðið
illa fyrir barðinu á versnandi efna-
hagsástandi. Þykja niðurstöðurnar
benda til þess að skuldinni sé skellt
á ríkisstjórnina. Fjöldi íbúa svæð-
isins býr við fátækt og félagsleg
vandamál eru þar mikil. Um helm-
ingur íbúa í sumum hverfum er
upp á félagslega aðstoð kominn.
Fylgið rjátlast af
Verkamannaflokki
Verkamannaflokkur Gordons Browns missir fylgi og þingmenn í röð aukakosninga
Sigurreif Forvígismenn
Skoska þjóðarflokksins
fagna sigri í Glasgow austur.
➤ Í kosningum árið 2005 hlautVerkamannaflokkurinn
18.775 atkvæði í Glasgow
austur en Skoski þjóðarflokk-
urinn 5.268.
➤ Í aukakosningunum núnakusu 10.912 Verkamanna-
flokkinn en 11.277 Skoska
þjóðarflokkinn.
GLASGOW AUSTUR
Kvenkyns prófessorar við Ósló-
arháskóla þéna meira en karlkyns
kollegar þeirra. Meðalkarl sem
gegnir prófess-
orsstöðu við há-
skólann hefur um
9,4 milljónir ís-
lenskra króna í
árslaun, en með-
alkonan fær 59
þúsund krónum
meira á ári. Þetta
er á skjön við almennan launa-
mun kynjanna í Noregi, þar sem
konur eru að meðaltali með 15%
lægri laun, samkvæmt Dagens
Næringsliv. Konur skipa um
fimmtung prófessorsstaða við
Óslóarháskóla. aij
Prófessorar í Ósló
Konur launa-
hærri en karlar
Flugvél á vegum ástralska flug-
félagsins Qantas þurfti að nauð-
lenda þegar gat kom á hana í
30.000 feta hæð. Gatið er um fjór-
ir metrar á lengd og varð þess
valdandi að þrýstingur snarféll í
farþegarými vélarinnar. Allt laus-
legt fór á ferð inni í vélinni en
farþega sakaði ekki. aij
Flugvél hlekkist á
Gat rifnar á þotu
í miðju flugi
Á milli 40 og 50 menn vopnaðir
bareflum og sveðjum réðust inn á
heimili hælisleitenda í Våler í Aust-
fold í suðausturhluta Noregs seint
á fimmtudag. 23 flóttamenn þurftu
aðhlynningu lækna vegna sára
sinna, þar á meðal konur og 11 ára
barn.
Lögregla hefur ekki haft hendur
í hári árásarmanna, en telur að or-
saka árásarinnar sé að leita í deilum
á milli hópa hælisleitenda. Telur
hún mennina sem réðust inn á
heimilið vera frá Tsjetsjeníu. Hafa
flóttamenn frá Tsjetsjeníu og Kúr-
distan eldað grátt silfur saman
undanfarið, og árás fimmtudagsins
er hluti þeirrar deilu.
andresingi@24stundir.is
Járnrörum og sveðjum beitt í Noregi
Ráðist á flóttamenn
Faxafeni 12, Reykjavík • Glerárgötu 32, Akureyri.
Glymur orðinn frægur!
Jakkinn sem Anita Briem klæðist í myndinni
Journey to the Center of the Earth.
66north.is
/Júlí2008
Glymur Softshell,
dömu jakki með hettu
23.800 kr.
15.300 kr.
Glymur Softshell,
herra jakki
23.800 kr.
15.300 kr.