24 stundir


24 stundir - 26.07.2008, Qupperneq 15

24 stundir - 26.07.2008, Qupperneq 15
voru bændur gestrisnir, gáfu öllum sem sáust í ná- munda við bæinn kaffi og með því. Þeir tóku sér tíma til að spjalla við ferðamenn sem þeir litu á sem gesti og gerðu engar athugasemdir þótt bíll væri skilinn eftir í vegarkanti eða tjaldað í túnfætinum. Viðskiptajöfrar sem ráða landi hugsa öðruvísi og vilja arð, dyggilega studdir af markaðssinnuðum stjórnmálamönnum. Þetta fólk tekur því eflaust vel, ef bændur fara að hlaupa í veg fyrir þá og rukka fyrir afnot af vegarkanti, vatn úr læk, villt blóm eða fyrir að hafa horft á foss. Einar Haraldsson, bóndi á Urriðafossi, er einn þeirra sem hefðu getað rakað saman peningum í sumar, því fjöldi fólks hefur heimsótt fossinn og farið um land Einars. „Mér hefur nú aldrei dottið það í hug og eng- inn bóndi sem ég þekki myndi láta sér detta í hug að rukka fólk fyrir að ganga um, leggja bíl eða tjalda. Óneitanlega hugsa nýir landeigendur öðruvísi, við höfum oft séð það,“ segir Einar. „Ég er undrandi á Kerfélaginu og vil ekki rukka fyrir aðgang að Urr- iðafossi, en ég vildi að merkingar yrðu bættar, því fólk villist heim á hlað til mín, akstur við bæinn skapar hættu fyrir börn og ónæði fyrir alla. Eins er mikið skil- ið eftir af rusli við fossinn sem ég þarf að tína. 140 sóttu um styrk, en innan við 30 fengu Vandi landeigenda sem leyfa frjálsan aðgang að landi samkvæmt lögum er augljós. Hægt er að sækja um fé frá opinberum aðilum, en fæstir fá. „Fjár- magnið er skelfilega lítið,“ segir Valur Þór Hilmarsson umhverfisfulltrúi. „Við auglýsum styrki til úrbóta og uppbyggingar á ferðamannastöðum, en sjáum ekki um rekstur. Í fyrra styrktum við 20 til 30 af 140 um- sækjendum.“ Ferðamálastofa vinnur nú tillögur um fjármögnun. Hún þarf 200 og 300 milljónir á ári, en fær 40-50. beva@24stundir.is aBjörg Eva Erlendsdóttir Markaðssinnaðir landeig- endur vilja arð. Þeir taka því eflaust vel, þegar bændur fara að hlaupa í veg fyrir þá og rukka fyr- ir afnot af vegarkanti, vatn úr læk eða útsýni að fossi. 24stundir LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2008 15 Í nýlegu áliti sendinefndar Al- þjóðagjaldeyrissjóðsins kemur fram að langtímahorfur íslenska hagkerfisins séu öfundsverðar. Hvorki meira né minna. Þetta er auðvitað eins og sólargeisli í það þunglyndi og svartsýni sem virðist hafa heltekið marga síðustu mán- uði þrátt fyrr sólskin úti. Slíkt þunglyndi er nú reyndar þekkt til- finning eftir mikil veisluhöld. Álitið byggir nefndin á því að Ís- land er að færast í hóp orkufram- leiðsluríkja þessa heims. Útflutn- ingur á áli, sem í reynd er útflutningur á þeirri vatns- og varmaorku sem notuð er í fram- leiðslu þess, hefur rúmlega tvöfald- ast á einu ári og er nú umtalsvert verðmætari en útflutningur sjávar- afurða. Heimsmarkaðsverð á orku og matvælum, þessum tveimur að- alútflutningsvörum okkar, hefur hækkað umtalsvert að undanförnu í kjölfar aukinnar neyslu í Kína og Indlandi. Sú hækkun er að flestra mati talin varanleg. Sjávarútvegur okkar hefur löngum verið einkarekinn og hefur það gefist vel. Hann nýtur engra styrkja eins og sjávarútvegur víða erlendis og hann er í fremstu röð varðandi tækni og framleiðni og hefur staðið undir lífskjörum okk- ar undanfarna öld. Orkufram- leiðslan, sem upphaflega var á hendi einkaaðila, er núna nánast öll í opinberri eigu og er það mið- ur. Einkaaðilar hafa miklu meiri og eðlilegri hvata til að framleiða orku og selja á hámarksverði en opin- berir og hálfopinberir starfsmenn sem eiga ekki von um nema tak- markaða umbun og taka helst enga persónulega áhættu. Nú er hinsvegar hægt að einka- væða orkuframleiðsluna. Með lög- um frá Alþingi síðastliðið vor er opinberum aðilum, sveitarfélögum og ríkinu sem eiganda þjóðlendn- anna heimilt að leigja frá sér orku- réttindin í allt að 65 ár. Nú gæti t.d. ríkisstjórnin fyrir hönd Landsvirkj- unar boðið hæstbjóðanda orku- réttinn í t.d. Þjórsá til 65 ára og leigt eða selt þeim sama orkuverin og raforkusamninga og annað sem tilheyrir. Það yrði örugglega mikill áhugi á því í orkuhungruðum heimi og fengist gott verð fyrir. Fé sem ríkið gæti notað til að greiða niður skuldir Landsvirkjunar og mynda verulegan sjóð í gjaldeyri, sem myndi styrkja stöðu Seðla- bankans og þar með atvinnulífsins. Vitaskuld ætti við fyrstu útboð að hafa endurskoðunarákvæði eftir t.d. 15 ár, sem tækju mið af heims- markaðsverði á hreinni orku sem mun hækka miklu meira en verð á „óhreinni“ orku ef kenningar um hlýnun jarðar ganga eftir. Svo mætti selja orkuréttindin í Jöklu, sem lokins er farin að vinna fyrir okkur eftir að hafa verið nágrönn- um sínum til bölvunar í 1000 ár. Leigja eða selja svo Kárahnjúka- stíflu, göngin, stöðvarhúsið og lín- urnar. Auðvitað yrði að tryggja að- gengi ferðamanna að þessum nýja ferðamannastað. Í kjölfarið fylgdu Laxá og Tungnaá og sitthvað smá- legt sem Landsvirkjun á. Rarik kæmi svo á eftir sem og Orkubú Vestfjarða. Mér segir svo hugur að andvirði þessarar 65 ára nýtingar á orku og allra mannvirkjanna yrði heilmikill sjóður, Orkusjóður Ís- lands, sem yrði ekki síðri en Olíu- sjóður Norðmanna. Eftir 65 ár mætti svo selja réttinn aftur. Og aftur. Það er nefnilega sá regin- munur á orku okkar Íslendinga og annarra þjóða að hún endist og endist en olíulindir og kolabirgðir annarra þjóða ganga til þurrðar. Enn eru 60% til 70% orkunnar ónýtt. Reykjavíkurborg og önnur sveit- arfélög sem og einstaklingar gætu farið sömu leið og selt hæstbjóð- anda orkuréttindin til allt að 65 ára. Það yrði spennandi að sjá hvaða tilboð bærust í Orkuveitu Reykjavíkur eða Hitaveitu Suður- nesja. Allur vandræðagangur með REI, sölu á þekkingu, kaupréttum, lífeyrisréttindi og önnur launakjör hálfopinberra starfsmanna í orku- geiranum hyrfi eins og dögg fyrir sólu. Þegar búið er að búta orkumark- aðinn niður á þennan hátt ætti góð samkeppni að myndast á markaði með raforku undir sterku eftirliti Samkeppniseftirlitsins öllum neyt- endum til góðs. Kannski eru langtímahorfur ís- lenska hagkerfisins einfaldlega öf- undsverðar. Höfundur er alþingismaður Einkavæðing orkugeirans VIÐHORF aPétur H. Blöndal Það er nefni- lega sá reg- inmunur á orku okkar Íslendinga og annarra þjóða að hún endist og endist en olíu- lindir og kolabirgðir ann- arra þjóða ganga til þurrðar. Það er meira í Mogganum Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1800 í dag Laugardagur 26. júlí 2008  Heldur nýr burstabær með taílensku ívafi » Meira í Morgunblaðinu Ekki minjasafn!  Örn Arnarson bjartsýnn á Ólympíuleikana » Meira í Morgunblaðinu „Mitt besta form“  Þriggja daga tónaveisla um verslunarmannahelgi » Meira í Morgunblaðinu Organ á afmæli  Skuldum vafin heimili geta orðið gjaldþrota. » Meira í Morgunblaðinu Verðbólguvofan  Sjálfboðaliðar fá engin laun og verða líka að borga » Meira í Morgunblaðinu Viltu hjálpa?LÆKKAÐ VERÐ SUMARTILBOÐ ® Skipholti 50b • 105 Reykjavík - kemur þér við AUGLÝSINGASÍMI: 510 3744 íþróttir útivist pólitík heilsa fréttir fé&frami golf 24fólk veiði neytendavaktin golf dagskrá menning viðtöl ferðalög viðskipti garðurinn grill 24lífið bílar neytendur umræða

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.