24 stundir - 26.07.2008, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2008 24stundir
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Heimsferðir bjóða frábært sértilboð á síðustu sætunum til Costa del
Sol, 14. ágúst í 2 vikur eða 21. og 28. ágúst í 1 eða 2 vikur. Bjóðum
takmarkaðan fjölda íbúða á vinsælustu gististöðum Heimsferða,
Aguamarina, Arcosur og Castle Beach. Njóttu lífsins á þessum vin-
sæla áfangastað við góðan aðbúnað og traustrar þjónustu
fararstjóra Heimsferða.
14. ágúst
Verð kr. 64.990 - 2 vikur
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2
börn, 2 -11 ára, saman í íbúð á
Aguamarina, Arcosur eða Castle Beach 14.
ágúst í 2 vikur. Netverð á mann, m.v 2 full-
orðna saman í stúdíó.
21. og 28. ágúst
Verð kr. 49.990 - 1 vika
Verð kr. 59.990 - 2 vikur
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2
börn, 2 -11 ára, saman í íbúð á
Aguamarina, Arcosur og Castle Beach 21.
eða 28. ágúst. Netverð á mann, m.v 2 full-
orðna saman í stúdíó.
Aðeins örfáar íbúðir í boði!
Costa del Sol
í ágúst
frá kr. 49.990
Frábær sért
ilboð á vins
ælu gististö
ðunum
Aguamarina
, Arcosur o
g Castle Be
ach
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
„Ríkisstjórnin siglir í fullum
friði.“
Þetta skrifaði Össur Skarphéð-
insson á bloggsíðu sinni í fyrradag.
Hvílík endemis vitleysa!
Össurar vegna vona ég eiginlega
að þetta prat sé fremur til marks
um að hann hafi verið of mikið í
útlöndum upp á síðkastið, en að
hann sé einfaldlega orðinn staur-
blindur á ástandið í landinu.
Hann var að tala um stjórnar-
andstöðuna, að hún væri máttlítil.
Og því siglir ríkisstjórnin sem
sagt í fullum friði.
Ég endurtek bara: Hvílík en-
demis vitleysa!
Hér er enginn friður
Vel má það vera rétt hjá Össuri
að hin formlega stjórnarandstaða
sem aðsetur hefur á Alþingi sé
máttlítil þessa dagana. En telji
hann sjálfkrafa samasem-merki
milli þess og „friðar“ sem ríki um
ríkisstjórnina“, þá hefur hann verið
of lengi í pólitík.
Þá skynjar hann ekki lengur líð-
an fólksins í landinu; svo mjúkur er
ráðherrastóllinn, svo ljúfur Saga-
Classinn og svo mildur og góður
kokkteillinn í boðunum erlendis.
Því hér ríkir ekki friður.
Hér ríkir kvíði og það munar
ekki nema því sem munar að þessi
kvíði breytist í ótta.
Og hér ríkir undrun og gremja
yfir því að ráð öflugustu ríkis-
stjórnar í Íslandssögunni til að
vinna bug á efnahagskreppu, sem
gæti orðið langvarandi og alvarleg,
séu að gera … EKKERT.
Undrun hins erlenda banka-
manns
Og hér er farinn að læðast að
fólki illur grunur um að þessi rík-
isstjórn sé að hafa landsmenn að
fíflum.
Þú hafðir altso ekki gert þér
grein fyrir því, Össur?
„Ríkisstjórnin siglir í fullum
friði.“
Nei, líklega hafðirðu ekki gert
þér grein fyrir því.
Í sjónvarpinu í fyrrakvöld var
viðtal við bankamann hjá Merrill
Lynch í London. Bankamenn í
London eru vissulega ekki óskeik-
ulir. En hann var þó alveg ósvikinn,
furðu- og vorkunnarsvipur banka-
mannsins, þegar hann lýsti því að í
útlöndum skildu menn hvorki upp
né niður í aðgerðaleysi íslensku
ríkisstjórnarinnar og Seðlabank-
ans.
Það hlyti að búa eitthvað undir.
Þeim hafði helst dottið í hug að
ríkisstjórnin ætlaði að keyra bank-
ana í þrot og þjóðnýta þá svo.
Þeim er kannski vorkunn,
spesjalistunum í útlöndum, að láta
sér detta þetta í hug. En ég hefði al-
veg getað fullvissað þá um að hjá
ríkisstjórn Íslands og Seðlabanka
byggi ekkert slíkt undir.
Nei, hjá ríkisstjórn Íslands og
Seðlabanka byggi einfaldlega EKK-
ERT undir.
Ný ögurstund
Nú er ný ögurstund í vændum
hjá íslensku bönkunum. Skulda-
tryggingarálag aftur komið upp úr
öllu valdi. Ég veit að það er nú í
tísku að tala illa um bankana og
margir fussa og sveia yfir þeirri til-
hugsun að ríkið „komi þeim til
bjargar“ á einhvern hátt. En þótt
vísast hafi bankarnir gengið full-
hratt um gleðinnar dyr í peninga-
bólunni undanfarin misseri, þá vill
nú samt enginn láta sigla þeim í
strand.
Því þeir verða að sjá íslensku at-
vinnulífi fyrir þeirri smurolíu sem
knýr hjólin áfram.
Altso peningum.
En hvað gerir ríkisstjórnin?
Eee … ekkert.
Geir Haarde fór í sumarleyfi.
Verður á sólarströnd næstu þrjár
vikur – eða einhvers staðar.
Annað hefur hann ekki gert í
sumar.
Æ jú! – Hann réði sér efnahags-
ráðgjafa sem á að redda okkur út
úr þessum vandræðum.
Sá byrjaði á því að fara í sum-
arleyfi. Verður á sólarströnd næstu
þrjár vikurnar – eða einhvers stað-
ar.
Er Tryggvi að fórna sér?
(Og meðal annarra orða: Er
Tryggvi Þór Herbertsson ráðinn
efnahagsráðgjafi af því hann hefur
eitthvað til málanna að leggja eða
bara af því að hann vantaði vinnu?
Hann beið jú svo lengi með að
hella sér út í fjárfestingarkapítal-
ismann að þegar hann lét loks til
skarar skríða var bólan sprungin,
og mér segir svo hugur að það sé
enginn ofsalegur hasar í fjárfesting-
unum hjá Askar Capital þessa dag-
ana. Svo talar Tryggvi eins og hann
sé að fórna sér fyrir íslensku þjóð-
ina með því að „taka á sig launa-
lækkun“ með því að hverfa frá
þessu þjóðþrifafyrirtæki Askar
Capital í sex mánuði!).
Í Seðlabankanum, er verið að
gera eitthvað þar?
Ætli séu ekki bara allir á sólar-
strönd? Eða fyrir austan?
Í fjármálaráðuneytinu?
Aaa, eee, humm og ha, sko, fjár-
málaráðherra er dýralæknir. Talaðu
við hann ef hesturinn þinn fót-
brotnar eða kötturinn fær kveisu,
en ef það kemur efnahagskreppa,
ekkert vera þá að tala við hann.
Nei, slepptu því bara alveg!
Afleiðingin af öllu þessu er sú að
kreppan, sem hefði ekki þurft að
verða neitt svakaleg, stefnir nú í að
geta orðið ein hin versta í sögu lýð-
veldisins. Ef ekki verður eitthvað
gert, og helst í gær.
Uppsagnir byrjaðar
En þegar uppsagnir fyrirtækja
eru byrjaðar af fullum krafti, jafn-
vel stöndug og gróin og vel rekin
kompaní geta ekki lengur borgað
skuldir sínar, og eiga varla fyrir
launagreiðslum fram yfir næstu
mánaðamót, og þegar fólk hristir
hausinn yfir okurvöxtum og verð-
bólgu og yfirvofandi atvinnuleysi,
þá segir Össur Skarphéðinsson að
„ríkisstjórnin sigli í fullum friði“.
Hversu blindir geta ráðherrar
verið?!
Menn ættu kannski að hafa bak
við eyrað að Titanic sigldi líka í
fullum friði.
Og ef ég mætti velja myndi ég
frekar kjósa að ríkisstjórnin væri
Titanic í þeirri samlíkingu en ís-
lenskt efnahagslíf.
Útilegu
menn
Siglt í fullum friði
– en hvert?
aIllugi Jökulsson skrifar um siglingar
Aaa, eee, humm
og ha, sko, fjár-
málaráðherra
er dýralækn-
ir. Talaðu við
hann ef hest-
urinn þinn
fótbrotnar eða kötturinn
fær kveisu, en ef það
kemur efnahagskreppa,
ekkert vera þá að tala við
hann.
Össur Skarphéðinsson
Hversu blindir geta ráð-
herrar verið?